25.08.1919
Efri deild: 39. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 896 í B-deild Alþingistíðinda. (586)

14. mál, stofnun Landsbanka

Magnús Kristjánsson:

Hv. þm. Snæf. (H. St.) talaði um misskilning hjá mjer. En jeg hygg, að honum muni veitast æðiörðugt að sanna það. Yfirleitt finst mjer fremur óheppileg aðferð að gera mönnum upp orð, sem menn aldrei hafa sagt, og byggja sína röksemdafærslu á þeim. Jeg skal játa, að jeg var að reyna til að finna einhverja skynsama hugsun í till., til að komast að raun um, hver væri meiningin með henni; annars skal jeg ekki endurtaka það, sem jeg sagði um hana áðan. Jeg verð samt að taka fram, að jeg var ekki á móti ákvæðinu í 8. gr.: „nema staðhættir banni“, tók einmitt fram, að það væri nægilegt og gerði brtt. óþarfa. Háttv. þm. Snæf. (H. St.) reyndi þar til að snúa út úr, eins og hans er vandi.

Jeg býst ekki við, að Íslandsbanki muni gefa hærri vexti af innlánum en landsbankinn: því hefir háttv. þm. Snæf. (H. St.) líka haldið fram, svo þar erum við sammála. Annars vil jeg geta þess, að mjer þóttu ummæli háttv. þm. Snæf. (H. St.) hálfóviðkunnanlegt, er hann sagði, að þessi lög settu einokunarstimpil á Landsbankann; tel jeg slík ummæli trauðlega viðeigandi.

Áður en jeg sest niður ætla jeg að víkja örfáum orðum að því, sem háttv. 1. þm. Rang. (E. P.) sagði. Hann hjelt fram, að miklar líkur væru til, að þetta fyrirkomulag gæti orðið Landsbankanum til stórtjóns; honum gæti borist svo mikið fje, að hann ætti örðugt með að svara því út. — Það er algerlega ástæðulaus ótti. Það eru einmitt slík viðskifti sem þessi, er bankarnir sækjast mest eftir, því þess meira fje, sem bankarnir hafa á þennan hátt, þeim mun meiri líkur eru til, að að eins lítill hluti af innlánsfje þeirra verði tekinn út í einu. Einnig gæti stjórn og þing tekið í taumana, ef útlit væri fyrir, að einhverskonar aðsúgur yrði gerður að bankanum. Svo þessar ástæður hv. 1. þm. Rang. (E. P.) eru fremur lítilfjörlegar.

En þegar verið er að tala um hættu, sem stafað geti frá Íslandbanka í þessu sambandi, er eins og menn hafi hálfvegis gleymt því, að við höfum þó bankaráðið — og ætti þó hv. 1. þm. Rang. (E. P.) að minsta kosti að muna, að það er til. Og hafi jeg á sínum tíma talið það góða ráðstöfun, að þessi hv. þm. var skipaður í bankaráðið, þá var það af því, að jeg hafði álit og traust á honum til þess — traust á honum til þess, að vera þar trúnaðarmaður landsins, eins og hann auðvitað á að vera.