03.09.1919
Neðri deild: 53. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 187 í B-deild Alþingistíðinda. (59)

1. mál, fjárlög 1920 og 1921

Björn Kristjánsson:

Jeg verð að leyfa mjer að gera fáeinar athugasemdir út af ræðu hv. 2. þm. S.-M. (B. St.). Hv. þm. var að reyna að skýra, hvað hann teldi ríkinu skylt að ganga langt í því, að sjá fyrir samgöngubótum á sjó, og þóttist með því hafa svarað fyrirspurn minni. Hann vildi halda því fram, að ríkinu væri ekki skylt að styrkja vöruflutninga á sjó. Þrátt fyrir þetta veit jeg ekki betur en að hingað til hafi ríkið styrkt mótorbátaferðir um firði og flóa, báta, sem mjög hafa verið notaðir til vöruflutninga: hefir þetta einkum verið á þeim stöðum, sem millilandaskipin hafa ekki haft viðkomustaði. Eins er því háttað hjer, að millilandaskipin hafa ekki haft áætlunarferðir, hvorki til Borgarness nje Keflavíkur; en ríkið hefir stutt flóabáta til að koma vörunum úr millilandaskipunum á þessa staði og til þess að flytja íslenskar vörur þaðan; og hefi jeg ekki orðið þess var, að enn sje alment horfið frá þessari stefnu; má því ætla, að háttv. þm. (B. St.) standi nokkurn veginn einn uppi með skoðun sína. Það er brýn þörf fyrir flutninga á fólki og vörum, eigi síður hjer en annarsstaðar. En til fólksflutninga eru mótorbátar óhæfir, og ætti að vera bannað að hafa þá til þess.

Hv. þm. (B. St.) hjelt því fram, að jeg hefði sagt, að bæta yrði upp fjelaginu sem ferðunum hjeldi uppi, ef það biði tjón af því. Það sagði jeg ekki, en hitt sagði jeg, að er það færi að gera samninga að nýju, mundi það setja ferðirnar svo hátt, að það gæti náð upp halla sínum á þeim.

Hv. þm. (B. St.) sagði, að brjefið, sem jeg las upp, hefði ekki haft nein áhrif á sig. Það skil jeg vel, þegar athugað er, hvernig hv. þm. hefir talað í kvöld. Það yrði líklega fátt, sem fengi hann til að hverfa frá ,,Skildi“ sínum. Það er ekki rjett, að ekki sje góð trygging fyrir efndum á því, sem fram er boðið í brjefinu. Framboðið er skilyrðislaust, og flestir munu telja, að full trygging sje í mönnum þeim, sem á bak við tilboðið standa.

Hv. þm. (B. St.) kvað vera rúm fyrir 50 farþega í ,,Skildi“ undir þiljum. Það má vera, að svo sje, ef hann ætlast til, að þeim sje hlaðið hvorum ofan á annan eins og vörupokum; öðruvísi er það ekki hægt. Þá las hv. þm. (B. St.) upp skoðunargerð á „Skildi“, þar sem sagt er, að alt væri í „góðu standi“ í skipinu. Jeg hefi líka sjeð litla skútu, þar sem alt var í „góðu standi“, en hún þó óhæf til fólksflutninga.

Það var rjett hermt hjá hv. þm. V.-Sk. (G. Sv.), að nefndarmenn meiri hlutans voru óbundnir með atkvæði sitt, þótt hann hallaðist í heild sinni fremur að ódýrara tilboðinu. En jeg vona þó, að eftir þær upplýsingar, sem nú eru komnar fram, muni nefndin hallast að betra tilboðinu, að varatillögunni.