18.07.1919
Efri deild: 10. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 903 í B-deild Alþingistíðinda. (598)
16. mál, brunabótafélag Íslands
Frsm. (Guðjón Guðlaugsson):
Það er fremur fátt að segja um frv. þetta. Nefndin hefir komist að þeirri niðurstöðu, að samþ. það óbreytt. Annars standa í nál. ástæður hennar, svo jeg sje ekki ástæðu til að taka þær nákvæmlega fram. Nefndin áleit, að aðalbreytingin, sem gerð er, sem sje að fasteignir landssjóðs utan Reykjavíkur skuli trygðar í fjelaginu, sje til mikilla bóta, sömuleiðis að full upphæð lausafjár verði trygð eftir ákvæðum stjórnarráðsins. En eins og stendur í nál., rákum við okkur á ákvæði í frv., sem og er í núgildandi lögum, að samanlögð upphæð lausafjár, sem trygt er í fjelaginu, megi aldrei nema meiru en 1/3 samanlagðrar vátryggingar húsa í fjelaginu. Þetta ákvæði er í rauninni mjög eðlilegt, en ef mikið bættist við af vátryggingum lausafjár í Reykjavík, þar sem ekkert hús er trygt í fjelaginu, er hætt við, að upphæðin yrði hærri en lög standa til, og gæti þá farið svo, að neita yrði mönnum utan Reykjavíkur um trygging lausafjár. Væri illa farið, ef sömu menn, sem skyldir eru að tryggja hús sín í fjelaginu, geta ekki fengið lausafje sitt vátrygt þar vegna þess, að menn í Reykjavík vátryggja hús sín í öðrum fjelögum. Í nefndinni kom til mála, hvort Reykvíkingar skyldu eigi líka skyldir að tryggja hús sín í fjelaginu, en menn fjellu frá því, þar eð Reykjavík stendur langtum betur að vígi en nokkur annar staður á landinu, hefir komist að svo hagfeldum samningum, að vart er hægt að koma því við. Nefndinni fanst mjög svo óviðfeldið, að Reykjavík skuli hafa sjerstöðu í þessu efni, að almenn landslög skuli ekki ná yfir hana, sem aðra kaupstaði landsins, en eins og á stendur er ilt við því að gera. Það er sjerstaklega einn háttv. nefndarmaður, sem samkvæmt ósk kjósenda sinna hefir beiðst að fá þessu breytt. Krafan er í sjálfu sjer mjög eðlileg, og ætluðum við að kalla á fund formann brunabótafjelagsins, til að fá skýringu á þessu atriði og fyrnefndu ákvæði í 1. gr. frv., en hann var farinn burt úr bænum í sumarleyfi.
Nefndin vill ekki tefja málið, og ræður því háttv. Ed. til að samþ. það óbreytt, en geymir sjer rjett til að vera með, eða koma með breytingar, ef hún að fengnum upplýsingum sjer þess þörf.