16.08.1919
Efri deild: 32. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 910 í B-deild Alþingistíðinda. (628)

18. mál, fasteignamat

Atvinnumálaráðherra (S. J.) Jeg tel víst, að ekki sjeu misskiftar skoðanir manna hjer í háttv. þingdeild, eða meðal þeirra manna, sem hafa kynt sjer fasteignamatið um það, að við svo búið megi ekki standa, heldur þurfi að athuga málið nánar og skipa yfirmatsnefnd þá, er frv. fer fram á til að ,,endurskoða“ það og „samræma.“

Ætíð þegar ályktanir eru gerðar um að skipa nefndir, verður að taka sem skýrast fram. hvert sje ætlunarverk nefndarinnar. — Mjer er tæplega ljóst hversu langt verkefni yfirmatsnefndarinnar á að ná eftir frv., og þá sjerstaklega hvað leggja megi í orðið „endurskoða “

Jeg tel líklegt að svo fari, að væntanleg yfirmatsnefnd komist að þeirri niðurstöðu að matið sje annaðhvort of hátt eða of lágt. Líklega er það frekar of lágt yfirleitt þar sem það mun víðast hvar metið eftir peningagildi fyrir stríðið.

Jeg skal ekki fjölyrða um þetta, en vil skjóta því til nefndarinnar, hvort ekki sje ástæða til að taka nánar fram í 3. gr. hvort yfirmatsnefndinni sje ekki heimilt að breyta matinu í heild, ef henni finst ástæða til þess, en mjer er ekki ljóst að það liggi í orðinu „endurskoða“ — Yrði þá starfssvið heimar líkt og yfirmatsnefndar innan sýslu en þar er verðinu breytt, ef svo ber undir — jafnvel í heilli sýslu — til hækkunar.

Jeg vona, að nefndin athugi þetta nánar og að yfirlýsing komi frá henni um það, hvað sje meint með að „endurskoða.“

Í 4. gr. á þgskj. 360 er gert ráð fyrir að væntanleg yfirmatsnefnd hafi lokið störfum fyrir 1. apríl 1921, en jeg tel mjög hæpið að svo geti orðið. — Jeg get ekki annað ætlað en að starfið verði mjög umfangsmikið, og það vex enn meir, ef breyta má verði á fasteignum.

Enn eru ekki komnar skrár úr öllum sýslum, og eftir nál. getur væntanleg yfirmatsnefnd ekki látið sjer nægja þær skýrslur, er nú liggja í stjórnarráðinu heldur verður hún að afla sjer ítarlegri skýrslna, en það tekur tíma og getur nefndin ekki tekið til starfa fyr en alllöngum tíma eftir þetta þing, má ske ekki fyr en að áliðnum næsta vetri

Að vísu má búast við að fresturinn verði framlengdur á næsta þingi, ef þörf gerist og legg jeg því enga verulega áherslu á þetta atriði. Hitt skiftir aftur miklu máli, hvernig skilja beri orðið að „endurskoða.“ Það er í þessu sambandi þýðingarmikið orð og vil jeg þess vegna ítreka ósk mína til nefndarinnar.