16.08.1919
Efri deild: 32. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 911 í B-deild Alþingistíðinda. (629)

18. mál, fasteignamat

Fjármálaráðherra (S. E.):

Stjórninni var ljóst, að nauðsyn bar til að nefnd væri skipuð til þess að yfirfara endurskoða og samræma fasteignamatið.

Ástæðan til þess, að frv. í þessa átt var ekki meðal stjórnarfrv., er sú að stjórninni þótti rjett að hafa tal af ýmsum mönnum, sem þekkingu hafa á þessu máli, áður en frv. kæmi fram. — Er stjórnin þakklát háttv. landbúnaðarnefnd fyrir að hafa flutt þessar brtt. á frv. stjórnarinnar fyrir hönd stjórnarinnar.

Hæstv. atvinnumálaráðh. (S. J) gerði athugasemdir um það, hvernig ætti að skilja orðið „samræma.“ Jeg hygg, að ekki geti leikið neinn vafi á því, að það beri að skiljast svo, að yfirmatsnefndinni sje veitt heimild til að hækka eða lækka matið eftir því sem hún telur rjett, enda færi töluvert að draga úr þýðingu nefndarskipunarinnar ef þetta væri ekki meiningin.

Hitt er rjett, að búast má við, að ekki veiti af tíma þeim er gert er ráð fyrir, en verði hann of naumur, þá má altaf framlengja frestinn með bráðabirgðalögum. Meiningin er að 5 menn skipi nefndina og ætti með því að vera hægt að útvega töluverða þekkingu á landsháttum í hana. Ætti það að geta flýtt fyrir störfum hennar en ekki kemur til mála að nefndarmennirnir forðist neitt, en hins vegar verða þeir að leita sjer upplýsinga hjá matsnefndunum, ef þess reynist þörf.