16.08.1919
Efri deild: 32. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 912 í B-deild Alþingistíðinda. (630)
18. mál, fasteignamat
Frsm. (Sigurjón Friðjónsson):
Til andsvara hæstv. atvinnumálaráðh. (S. J.) skal það tekið fram að nefndin leit svo á að þessi nýja nefnd mundi yfirleitt ekki breyta verðhlutföllum innan sýslna. Nefndin hjelt þó, að fyrir gæti komið að svo illa væri frá matinu gengið, að gera þyrfti það upp aftur, en vildi ekki setja fyrirmæli um það að svo stöddu. Það er líklegt að tíminn, sem settur er í frv., sje of stuttur en því takmarki má þá breyta síðar, þegar reynsla er fengin um það, að tíminn sje ekki nægur sem settur er.