16.08.1919
Efri deild: 32. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 921 í B-deild Alþingistíðinda. (642)
18. mál, fasteignamat
Magnús Torfason:
Jeg hygg, að hjer sje um vandaverk að ræða, hvort sem matið verður lagt til grundvallar undir skatta eða ekki, en eins og matið er nú er ekkert vit í því. Jeg hefi sjeð matið úr tveimur sýslum, og þar skilur mælikvarðann eins og nótt og dag, og það er talsverður mismunur á matinu, þó í nágrannasýslum sje. Jeg hefi sjeð matið úr báðum Ísafjarðarsýslum; í annari er afgjaldið reiknað með 4%, en í hinni með 5%; í annari þeirra er matsverðið altaf reiknað eftir afgjaldinu, hvernig svo sem afgjaldið er. Í hinni sýslunni eru jarðirnar meir metnar eftir söluverði, og sumar jarðir eru of hátt metnar vegna þess, að þeir, sem hafa ætlað að selja þær, hafa ýtt sem mest undir að meta þær hátt.
Undirbúningur á matinu hefir verið gerður í flaustri, og það er spursmál, hvort það er ekki of seint að reyna nú að bæta úr því. Það vantaði alfarið fyrirmynd fyrir allri bókfærslu, og þetta varð til þess, að sumstaðar hefir það verið tekið með og metið, er átti að sleppa, en annarsstaðar hefir því verið slept, er taka átti.
Mjer finst tími sá, er frv. setur — til 1. júlí 1920 — vera of stuttur, og að það stæði ekkert um þetta í frv. Væri æskilegt að nefndin vildi athuga þetta til 3. umr.