16.08.1919
Efri deild: 32. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 922 í B-deild Alþingistíðinda. (644)

18. mál, fasteignamat

Fjármálaráðherra (S. E.):

Háttv. þm. Ísaf. (M. T.) var að tala um að fresta því, hve nær lögin kæmu til framkvæmda, en það er nógur tími til þess, þegar það kemur fram, hversu langan tíma nefndin þarf til starfa sinna. Það er víst, að eins og matið er nú, er það mjög óábyggilegur skattagrundvöllur, og var ekki von á öðru, eins og til matsins er stofnað, þar sem margar nefndir meta án þess, að samband sje á milli þeirra innbyrðis um það, hvaða mælikvarða eigi að leggja til grundvallar.