18.08.1919
Efri deild: 33. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 927 í B-deild Alþingistíðinda. (651)
18. mál, fasteignamat
Frsm. (Sigurjón Friðjónsson):
Háttv. 4. landsk. þm. (G. G.)virðist ekki hafa skilið orð mín rjett. Jeg gerði aldrei kröfu til nákvæmrar skoðunar af hálfu undirmatsnefnda, eftir því sem ástæður lágu til, en taldi hins vegar, að matið gæti ekki verið fullkomlega ábyggilegt þar, sem kunnugleika vantaði, og stóð það í sambandi við þá skoðun mína, sem fram er tekin í nál., að heppilegra mundi hafa verið að hafa undirmatsnefndirnar fleiri og með smærri verkahring.