28.08.1919
Neðri deild: 48. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 928 í B-deild Alþingistíðinda. (656)
18. mál, fasteignamat
Frsm. (Jón Jónsson):
Frv. hæstv. stjórnar hefir tekið nokkrum breytingum í háttv. Ed. í stjórnarfrv er ætlast til, að matstíminn sje lengdur fyrir þá matsmenn, sem hann hefir reynst of stuttur. En nú hefir háttv. Ed. skotið því inn í frv., að skipa nýja nefnd til að fara yfir matið og samræma það.
Nefndin í Nd. hefir ekki viljað eyða löngum tíma í þetta mál. Lætur hún sitja við rannsókn Ed. á málinu. Hefir hún þess vegna ekki skoðað matsbækur í stjórnarráðinu. Nefndin í Ed. hefir gert það og sjeð, að brýn ástæða er til að bæta samræmið í matinu.
Jeg skal geta þess, að einstakir menn í landbúnaðarnefnd Nd. vissu fullvel, að mikið ósamræmi á sjer stað í þessu efni víðs vegar á landinu. Það er sem sje kunnugt, að vegna mismunandi skoðana á verðmæti fasteigna í landinu, verður matið alt of lágt á einum staðnum og of hátt á öðrum, þegar farið er að bera saman.
Margir gætnir og rosknir menn álíta, að verð það, sem nú er á fasteignum, sje ekki tryggilegt og varanlegt til frambúðar. Öfugstreymi tímanna hafa skapað það. Geti því orðið snöggleg breyting á þessu síðar meir. Aftur líta aðrir svo á, að fasteignir muni hækka stórkostlega í verði, t. d. jarðir. Vilja þeir þá haga matinu eftir því. Sumir eru því bjartsýnir á þetta, en aðrir svartsýnir. Fyrir það verður ósamræmið.
Það hefir og víst ekki verið venja yfirmatsmanna að bera saman matið í nágrannasýslunum. Mun því hafa verið lítið gert að því. Það hefir verið hægt, en ekki verið gert að neinu ráði. Og þó að það kunni að hafa verið gert sumstaðar, hefir það ekki verið fullnægjandi. Ef fult samræmi á að komast á, verður að gerskoða af kunnugum mönnum matið á öllu landinu.
Nú ætlast frv. til, að skipuð sje matsnefnd, er lokið hafi starfi sínu 1. júlí 1920. Er það vel að verið, ef þessu á að vera lokið fyrir þann tíma. Það er mjög mikilsvert, að gott skipulag komist á matið hjá okkur. Nefndinni hjer sýnist sjálfsagt að gera tilraun til að koma þessu svona fyrir. Hygg jeg, að hæstv. stjórn sje sannfærð um, að þetta sje nauðsynjamál, og breyting þessi sje gerð með vilja hennar og samþ.
Að síðustu skal jeg geta þess, að búnaðþingið vakti athygli á málinu og áleit það mjög þarft. Jeg vonast því eftir góðum undirtektum í hv. deild og að hún samþ. frv. óbreytt.