03.09.1919
Neðri deild: 53. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 200 í B-deild Alþingistíðinda. (67)

1. mál, fjárlög 1920 og 1921

Pjetur Ottesen:

Jeg mótmæli því algerlega, sem hv. 1. þm. Húnv. (Þór. J.) sagði, að það hefði aldrei verið tilætlunin fyrir Eimskipafjelagi Suðurlands að láta stærra skipið ganga til Borgarness. Þetta er allsendis rangt, enda hefir það hvergi komið fram í skjölum þessa máls, sem jeg hefi haft með höndum og fengið lánað hjá samgöngumálanefnd. Þetta stærra skip átti að ganga til Borgarness, eftir því sem flutningaþörfin krefði, en smærra skipið, sem aldrei hefir komið til mála að væri annað en gufuskip, átti að fara smærri ferðir, t. d. inn í Hvalfjörð, suður með sjó og svo til Borgarness, þegar minna væri að flytja. Ferðum stærra skipsins til annara hafna, vestur á Breiðafjörð og til Vestmannaeyjum og Austurlandsins, átti að haga að miklu leyti eftir flutningaþörfinni til Borgarness. Þá kem jeg að því, sem hv. 1. þm. Húnv. (Þór. J.) sagði um mótorbátaferðirnar upp í Borgarnes, samhliða „Skildi“. Svo stóð á, er „Ingólfur“ bilaði að þá var ekki í annað hús að venda en að fá mótorbáta til ferðanna. Því var það, að ráðinn var stór mótorbátur til þessara ferða, sem einnig átti að flytja póstinn, og naut því nokkurs styrks. En þetta var neyðarráðstöfun, því þessi bátur var alt of lítill, og auk þess eru vjelbátar allsendis ótryggir til fólksflutninga, og þá ekki hvað síst á jafnháskalegri siglingaleið og er í Borgarnes, þar sem ekkert má út af bera, þá er dauðinn vís.

Það kom því, sem von var, brátt fram megnasta óánægja út af þessu ástandi. Jeg reyndi því að bæta úr þessu á aukaþinginu í fyrra, með því að fá heimild fyrir stjórnina til að hækka styrkinn til Faxaflóaferðanna frá því sem var, í von um, að þá fengist betri farkostur. Hv. 1. þm. Húnv. (Þór. J.) var þá frmsm. samgöngumálanefndar og mælti eindregið með þessu þá.

En þegar til kom, var ekki um auðugan garð að gresja með skipakostinn, því ekkert gufuskip var fáanlegt til ferðanna nema ,,Skjöldur“. „Ingólfur“ lá í lamasessi, óviðgerður, og enginn vissi, hve nær úr rættist með hann.

„Skjöldur“ var því tekinn, og var það skársta úrlausnin þá. Það sem olli því, að mótorbátar gengu fyrst samhliða ,.Skildi“ til Borgarness, var það, að ráðningartími mótorbátsins. sem gekk í millibilinu, var ekki úti fyr en síðla sumars, og svo hitt, að „Skjöldur“ var allsendis ófullnægjandi til að uppfylla flutningaþörfina, að því er að þungavöru laut. Og meðan Skjöldur er hafður til þeirra ferða verða menn í viðkomandi hjeruðum að sjá sjer fyrir flutningum á annan hátt og það því meir, sem bættar og greiðari samgöngur við önnur lönd, og á öðrum sviðum, auka samgönguþörfina hjer.

Því er það, að jeg trúi því ekki fyr en jeg þreifa á því sem jeg vona að komi ekki til, að hv. deildarmenn taki ekki því tilboðinu sem fullnægir flutningaþörfinni, ekki einasta nú, heldur einnig í framtíðinni.

Út af fyrirspurn hv. þm. A.-Sk. (Þorl. J.) þá vil jeg taka það fram, að það var í ráði, að skip þetta færi eitthvað til Hornafjarðar, og mun hafa komið fram ósk um það einmitt frá Þórhalli Daníelssyni kaupmanni þar.