15.08.1919
Neðri deild: 36. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 937 í B-deild Alþingistíðinda. (671)
2. mál, fjáraukalög 1916 og 1917
Frsm. (Magnús Guðmundsson):
Fjárhagsnefndin hefir borið frv. þetta saman við athugasemdir yfirskoðunarmanna landsreikninganna og svör stjórnarinnar, og ekki orðið annars vör en að tekið sje upp í frv. og leitað einkafjárveitingar á öllu því, sem yfirskoðunarmenn og stjórn eru sammála um, að aukafjárveitingar sje þörf.
Það eru að eins örfá atriði, sem ágreiningur er um, og mun jeg minnast á þau. Þó eru tvö atriði á þgskj. 344, sem jeg geri ráð fyrir að verði geymd þangað til kemur að tillögunum út af athugasemdum yfirskoðunarmanna landsreikninganna fyrir árin 1916 og 1917.
Annað er um bæjarsímann í Reykjavík. Jeg held, að það sje rjett skilið, að tilætlun yfirskoðunarmanna sje, að leitað sje aukafjárveitingar á 59.299 kr. 22 a., er eytt hafi verið til bæjarsímans í Reykjavík. En stjórnin telur ekki ástæðu til þess, því að Alþingi hljóti að hafa gengið út frá því, er það tók ekki tekjur bæjarsímans upp í fjárlögin 1916 og 1917, að gjöld þessi ættu að greiðast af tekjunum eins og gert hefir verið.
Hitt atriðið snertir 85. athugasemdina við landsreikninginn 1916; þar heimta yfirskoðunarmennirnir, að leitað sje aukafjárveitingar á 18 kr. 52 a., er Iðnaðarmannafjelaginu á Akureyri voru greiddar umfram fjárveitingu. Stjórnin telur eigi ástæðu til að leita aukafjárveitingar fyrir upphæð þessari, af því að fjelaginu hafi eigi verið greiddar nema 879 kr. 49 a. af 1000 kr. fjárveitingu árið 1915: 40 kr. 51 e. af hinum greiddu 1018 kr. 52 a. hafi því í raun rjettri verið eftirstöðvar af styrk fyrir árið 1917, en orðið greiddar svo seint, af því skýrslu hafi vantað frá fjelaginu.
Jeg játa það, að formelt rjett sje það, að heimta aukafjárveiting fyrir upphæð þessari, en af því hjer er um svo litla fjárupphæð að ræða, þótti nefndinni ekki taka því að fara fram á það.
Þá kem jeg að 43. athugasemd yfirskoðunarmanna við landsreikninginn 1916, út af því, að á árinu 1916 hafa verið greiddar til Skagfirðingabrautar 7741 kr. 43 a., þótt ekkert fje væri veitt til hennar í fjárlögum það ár. Þar stendur svo á, að af 10,000 kr. fjárveitingu til brautar þessarar 1917 var upphæð þessi notuð þegar 1916 en ekkert 1917. Því hefir verið haldið fram af hálfu stjórnarinnar, að hjer þurfi ekki aukafjárveitingar samkvæmt þeirri reglu að ekki þurfi að leita aukafjárveitingar, þótt greiðsla einhverrar upphæðar sje færð frá öðru ári fjárhagstímabilsins til hins. Jeg skil ekki heldur í þessari kröfu yfirskoðunarmanna, því að annarsstaðar þar sem eins hefir staðið á, hafa þeir ekki farið fram á aukafjárveiting.
Þá er eftir að minnast á eitt enn. Það eru umframgreiðslur til opinberra stofnana og millifærslur milli útgjaldaliða hjá þeim. Yfirskoðunarmenn fara fram á að leitað sje aukafjárveitinga þar sem svo stendur á, og að endurgreitt sje í landssjóð það, sem óeytt kann að vera af fje þessara stofnana í höndum forstöðumanna þeirra.
Að þessu lýtur annar liðurinn í till. nefndarinnar út af athugasemdum yfirskoðunarmanna á þgskj. 345. Vildi jeg mælast til, að geymt yrði að ræða um þetta atriði, þangað til till. koma til umr. Vilji einhver koma hjer með brtt., getur hann gert það til 3. umr.
Fleira mun það svo ekki vera, sem ágreiningur er um milli stjórnarinnar og endurskoðunarmanna landsreikninganna.