18.07.1919
Neðri deild: 10. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 945 í B-deild Alþingistíðinda. (701)
8. mál, mat á saltkjöti til útflutnings
Frsm. (Pjetur Þórðarson):
Jeg geng út frá því sem sjálfsögðu, að hv. þm. hafi kynt sjer frv. þetta, ásamt rökum, sem því fylgja, svo að jeg get lofað að vera stuttorður. Aðalefnið í þessu frv. er það að koma á samræmi í kjötverkun og slátrun. Málið hefir fengið góðan undirbúning, því að í fyrra, þegar saltkjöt — eins og aðrar útflutningsvörur — átti að ganga í gegnum hendur útflutningsnefndar, þá samdi stjórnin eftir tillögum og í samráði við nefndina, reglugerð um mat og flokkun á þessari vörutegund, svipað því, sem lögboðið er um ýmsar aðrar útflutningsvörur. Matsmenn voru þá skipaðir og helstu ákvæðum frumvarps þessa fullnægt í framkvæmdinni. Frumvarpið er því aðallega til orðið eftir tillögum hv. þm. S.-Þ. (P. J.), sem á sæti í útflutningsnefnd og er þessu máli manna kunnugastur. Það er samið og undirbúið í samræmi við það, sem best gerist nú í saltkjötsverkun í sláturhúsum hjer á landi.
Jeg get ekki skilið annað en að flestir sem hugsa þetta mál, sjeu því samþykkir og samdóma um, að nauðsyn beri til að setja lög um málið. Það geta verið dálítið skiftar skoðanir um, hvort það fyrirkomulag, sem hjer er skipað, geti alstaðar komið að fullum og tilætluðum notum, en þó mun vera hægt að koma reglunum við á öllum þeim höfuðstöðum sem slátrað er á. Þó munu vera til staðir, þar sem slátrað er og ilt að koma fram ákvæðum frv., svo sem ákvæðinu um læknisskoðun, en jeg sje enga ástæðu til að láta það standa í vegi fyrir þessu máli.
Jeg skal svo ekki fara fleiri orðum um frv., nema ef einhverjar mótbárur koma fram á móti því. En því vil jeg lýsa yfir, að nefndin hefir öll orðið sammála um, að ráða deildinni til þess að samþykkja frv. eins og það liggur fyrir.