03.09.1919
Neðri deild: 54. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 205 í B-deild Alþingistíðinda. (71)

1. mál, fjárlög 1920 og 1921

Frsm. fjárveitinganefndar (Bjarni Jónsson):

Eins og menn hafa eflaust tekið eftir, hefir nefndin farið fram á lítils háttar hækkun á gjaldalið fjárlaganna. En hún hefir líka klipið af, og til þess að háttv. deildarmenn geti gert sjer ljósari grein fyrir þessu, vil jeg nefna nokkrar tölur til skýringar þessum hluta fjárlaganna, sem jeg er framsögumaður í.

14. gr. Hækkanir: Fyrra ár 56,250 kr., síðara ár 42,850 kr. Lækkanir: Fyrra ár 11,850 kr., síðara ár 7,850 kr. Hækkanir alls: Fyrra ár 44,400 kr., síðara ár 35,000 kr.

15. gr. Hækkanir: Fyrra ár 128,850 kr., síðara ár 55,450 kr. Lækkanir: Fyrra ár 600 kr., síðara ár 600 kr. Hækkanir alls: Fyrra ár 128,250 kr., síðara ár 54,850 kr.

16. gr. Hækkanir: Fyrra ár 230,700 kr., síðara ár 189,600 kr. Lækkanir: Fyrra ár 18,000 kr., síðara ár 18,000 kr. Hækkanir alls: Fyrra ár 212,700 kr., síðara ár 171,600 kr.

18. gr. Hækkanir: Fyrra ár 11,447 kr., síðara ár 8,447 kr. Lækkanir: Fyrra ár engar, síðara ár engar. Hækkanir alls: Fyrra ár 11,447 kr., síðara ár 8,447 kr.

14. gr., 15. gr., 16. gr. og 18. gr. hafa hækkað alls: Fyrra ár 396,797 kr., síðara ár 269,897 kr., bæði árin 666,694 kr.

Jeg hefi leyft mjer að lesa upp þessar yfirlitstölur háttv. þm. til ánægju og hressingar, því að jeg veit, að þá hefir tekið að syfja eftir strangt starf og langar vökur. Þótt einhver kunni að hafa gerst vondur í skapi undir upplestrinum, vona jeg, að hann láti ekki geðvonsku sína koma niður á fjárlagaliðunum við atkvgr., en velkomið er, að það bitni á mjer í ræðum manna.

Þá sný jeg mjer fyrst að 14. gr. Tel jeg þar rjettast að vísa háttv. þingdm til nál. Það er að vísu stuttort, en þó drepur það á till. nefndarinnar, svo að ef háttv. þingdm. hafa lesið það með athygli í gærkvöldi, áður en þeir fóru að sofa, þá munu þeir hafa getað gert sjer nokkra grein fyrir, hvert till. stefna.

Jeg skal geta þess, að nefndin hefir látið allar launaupphæðir standa óbreyttar eins og þær eru í frv. stjórnarinnar; þær eru flestar teknar upp í launafv. stjórnarinnar, og sá nefndin ekki til neins að taka þær til meðferðar að svo stöddu, á meðan alt er óútkljáð með launafrv. Að öðru leyti mun nefndin taka til íhugunar til 3. umr. þá menn, sem eigi eru teknir upp í launalögin, en eiga að taka laun sín eftir 14. gr., svo sem er háskólaritarinn og einhverjir fleiri. Jeg bið menn því að kippa sjer ekki upp við það, þótt þessir menn sýnist verða hart úti, bornir saman við þá, sem eiga að fá launabætur eftir launalögunum.

Kem jeg þá að 66. brtt. nefndarinnar, að aftan við 4. gr. A, b. 2 komi nýr liður, til Björns prests Stefánssonar, uppbót á húsabótarkostnaði, 1200 kr. Jeg vænti þess, að háttv. þingdm. hafi kynt sjer skjölin um málið. Styrkur sá, sem presturinn fjekk áður í þessu skyni, reyndist allsendis ónógur, er alt hækkaði svo stórum í verði; og er því sanngjarnt, að hann fái viðbót þessa. Sama er að segja um annan nýjan lið, styrkinn til Jónmundar prests Halldórssonar. Hann er einskonar uppbót fyrir það, að hann hefir sýnt fádæma dugnað í því, að húsa upp gerfallinn stað, og lagt ærið fje fram til þess. Þessar 10.000 kr., sem lagt er til að honum sjeu veittar, eru í raun rjettri ekki annað en að landið leggur fje þetta fram til þess að húsa stað, sem það á sjálft. Húsabætur þær, sem hjer ræðir um, eru virtar á 19,500 kr. Gegn þessu 10,000 kr. framlagi úr landssjóði er þess krafist af prestinum, að hann skili þessum húsum öllum sem jarðarhúsum, er hann hverfur frá staðnum. Er það þá sama sem að presturinn leggi mismuninn, 9500 kr., fram frá sjálfum sjer. En til þess að gera prestinum auðveldara með að bera þennan kostnað, gerir nefndin ráð fyrir, að hann fái prestakallalán, er hvíli á honum og eftirmönnum hans til afborgunar, uns lokið er. Jeg geri ráð fyrir, að háttv. deild muni þykja þetta vel ráðið og sanngjarnlega til lagt, eftir því sem atvik standa til. Brauðið er afskekt, en bújörðin talin ágæt. Það má telja rjett að styrkja jafnmikinn dugnaðarmann sem prestur þessi er, því að vænta má þess, að hann geti orðið forgöngumaður og fyrirmynd bænda í þessari afskektu sveit.

Við 14. gr. B. hefir nefndin orðið að gera margar breytingar. Fyrsta breytingin er sú, að nefndin leggur til, að liðurinn B. I. e. 2 falli niður. Stendur sú till. í sambandi við aðra brtt., sem jeg kem síðar að.

Þá leggur nefndin til, að þóknunin til kennarans í lagalæknisfræði sje hækkuð úr 300 kr. á ári upp í 500 kr. Er það meira af handahófi gert en að vissa sje fyrir, að nokkur fáist til að kenna þessa grein fyrir þessa þóknun. Læknir sá, sem kent hefir greinina að undanförnu, hefir neitað að halda kenslunni áfram.

Þá leggur nefndin til, að þóknunin til kennara í dönsku við Háskólann falli niður. Þegar Danir sendu hingað sendikennara, þótti það hæverska að borga honum af landsfje jafnt sem öðrum sendikennurum. En með því að þessi kennari er nú farinn af landi, og ekki hefir heyrst, að annar eigi að koma í hans stað, þá mun auðfengið hjá háttv. deild að láta þennan lið falla niður.

Við 14. gr. B. I. d. hefir nefndin gert allmiklar breytingar. í stjórnarfrv. er þar úrfelling mikil, sem verður að skoða að annaðhvort sje prentvilla eða skrifvilla. Í stjórnarfrv. er d-liðurinn þannig orðaður: „Til annara gjalda, þar með talið styrktarfje nemenda, ljós, hiti o. fl., 15,000 kr.“. Þessi upphæð er alt of lág, og nefndin sá sjer ekki annað fært en að taka upp alla þá liði, sem fallið hafa niður í stjórnarfv., og gera tillögur um þá. Nefndin leggur til, að námsstyrkurinn sje ákveðinn 15,000 kr. á ári og húsaleigustyrkurinn 7000 kr., og að hámark húsaleigustyrksins handa nemanda sje 175 kr. um árið, en námsstyrksins 560 kr. Þetta er ekki nema hæfileg hækkun, og varla þó, þegar tekið er tillit til verðfalls peninga.

Nefndin varð og að taka upp styrk til læknadeildarinnar, til þess að kaupa kensluáhöld 800 kr. á ári, og til umbúða við ókeypis „klinik“ 200 kr. á ári.

Þá kemur liður um 2000 kr. tillag á ári til gerlarannsókna og kenslu í efnafræði. Stefán Jónsson, sem er aukakennari við háskólann, hefir verið fenginn til að fást við sóttkveikjurannsóknir fyrir háskólann og landið. Þetta er honum þó ekki skylt að gera; það heyrir ekki til hinum eiginlegu embættisstörfum hans, og hefir honum verið borgað sjerstaklega fyrir starf þetta, enda eru laun hans svo lág, að lífvænleg geta eigi talist. Maður þessi er hinn duglegasti læknir, og gæti að sjálfsögðu haft meira upp úr sjer með því að gefa sig við lækningum en hann fær fyrir rannsóknirnar. Honum hefir og boðist erlendis betur launuð staða en hjer. Jafnframt öðrum störfum hefir Stefán læknir tekið að sjer kenslu í efnafræði við læknadeild háskólans, og er þar ekki öðrum á að skipa nú sem stendur. Fyrir hvorttveggja þetta starf ætlast nefndin til að hann fái 2000 kr., og skil jeg ekki í, að nokkrum háttv þingdm. muni þykja það ofrífleg borgun.

Þá kemur liður um hita, ljós, ræsting og vjelgæslu við háskólann, og eru ætlaðar til þess 1500 kr. á ári. Athugavert við þann lið er, að þar er bætt inn í vjelgæslu. Hingað til hefir, þótt undarlegt sje, dyravörður háskólans orðið að borga vjelgæsluna úr eigin vasa af launum sínum. Þetta þótti nefndinni ekki viðeigandi, og hefir því fært vjelgæsluna yfir í þennan lið. En sannast að segja eru þessar 1500 kr., sem hjer eru ætlaðar til alls þessa, alt of lág upphæð. Jeg hefi heyrt sagt, að miklu hærri upphæð hafi gengið til útgjaldanna á þessum lið, og að ekki mundi af veita að þau væru sett 6500 kr. Þarf því að taka þetta til nýrrar athugunar.

Þá koma laun háskólaritarans. Ættu þau í sjálfu sjer að hækka, eins og laun annara starfsmanna, en eins og jeg gat um áðan, hefir nefndin látið þau óbreytt að sinni.

Dyravarðarlaunin ljet og nefndin halda sjer, 1600 kr., sem áður. En komið hefir til orða, að Ólafur Rósenkranz, sem nú gegnir dyravarðarstörfunum, muni ætla að láta af leikfimiskenslu í mentaskólanum eftir 43 ára ágætt starf, og þótti nefndinni ekki annað hlýða en að hann hjeldi áfram óskertum þeim 1200 kr., sem hann hefir haft fyrir kensluna. Þó lætur nefndin standa óbreyttar 1200 kr. handa leikfimiskennara við mentaskólann, og bætir því við, að hann skuli kenna leikfimi og líkamsfræði í kennaraskólanum. En nefndin hefir ekki breytt þessari upphæð, fremur en öðrum launaupphæðum, sem í launalögunum standa. Ætlast nefndin til, að sá maður, sem starfið fær, fái full kennaralaun fyrir kensluna í báðum skólunum, en embættið sje látið heyra undir mentaskólann. Í sambandi við þetta stendur það, að nefndin leggur til, að styrkurinn til Björns Jakobssonar fimleikakennara falli niður, af því að ætlast er til, að hann taki við kenslunni í báðum skólunum, ef Ólafur Rósenkranz lætur af kenslu.

Næst kem jeg þá að mentaskólanum. Þar leggur nefndin til, að veittar sjeu 200 kr. til bókasafns skólapilta, og býst jeg við, að enginn fetti fingur út í þessa örlitlu styrkveitingu. Nefndin leggur til, að þær 4000 kr., sem ætlaðar eru föstum aukakennurum við mentaskólann, falli niður. Það er af því, að stjórnin ætlast til, að þessir tveir föstu aukakennarar sjeu teknir upp í launalögin, á sama hátt og aðrir fastir kennarar skólans, og hefir sett þá þar. Jeg skal ekki segja um, hvort stjórnin muni þykjast þurfa aðra lagaheimild til þessa en þá, sem er í athugasemdum við launalögin. En fjárveitinganefnd hefir að sínu leyti fallist á þessa athöfn stjórnarinnar og því látið liðinn falla niður.

Um sjómannaskólann er þess að geta, að nefndin hefir lagt til, að veittar væru 2000 kr. hvort árið til að gefa út handa honum kenslubók í siglingafræði á íslenskri tungu. Það liggur í augum uppi, hvílíkt skaðræði það er fyrir tungu vora og þjóðerni, að í heilum flokkum atvinnugreina venjist menn á að nota útlend nöfn á fjölda hluta og athafna, er snerta atvinnugreinina, en þekki engin nöfn á slíku á sínu orðauðga móðurmáli. Það má alment segja um alla skóla, að það sje skemd á tungunni, að nemendur sjeu látnir læra og lesa þær bækur á útlendum tungum, en einna helst nær þetta þó til sjómannaskólans; í hann ganga að jafnaði menn, sem áður hafa átt lítinn kost á að afla sjer staðgóðrar undirstöðuþekkingar í móðurmálinu, og í þeim skóla lítill kostur á að veita hana. Hins vegar hefir slæðst inn í íslenska sjómannamálið fjöldi af útlendum orðum, svo að hvergi er meiri þörf á málhreinsun en einmitt þar. Því er hin mesta þörf á, að bókin sje samin á góðri íslensku, og nefndin hefir hugsað sjer, að það sje sett sem skilyrði fyrir styrkveitingunni, að gott mál sje á bókinni, svo að hún geti orðið til að bæta mál sjómanna, og að skólinn leggi einmitt áherslu á það.

Jeg sje ekki ástæðu til að rekja allar brtt., sem fram hafa komið hjá nefndinni og öðrum, en drep að eins á fáeinar þeirra.

Skal jeg þá fyrst minnast á styrkinn til iðnfræðslu. Þar vill nefndin, að bætt sje við því skilyrði fyrir styrkveitingu til hennar, að skólar þessir sendi stjórnarráðinu skýrslu, og að það staðfesti stundaskrá skóla þessara. Gerir nefndin ráð fyrir, að í skólum þessum sjeu aðallega stundaðar þær námsgreinar, er snerta atvinnuveg iðnnema, og þeim síðan að mestu haldi koma við rekstur iðna; en vill ekki, að skólarnir snúist upp í gagnfræðaskóla, eins og brytt hefir á um suma þeirra.

Þá er tillaga nefndarinnar að hækka laun hinna þriggja yfirsetukvenna í Reykjavík, sem leiðbeina yfirsetukvennaefnum, úr 600 kr. upp í 900 kr. Um þetta þarf jeg ekki að fara mörgum orðum. Konur þessar sjá sjer ekki fært að halda áfram starfinu, nema að kaup þeirra sje hækkað, sökum þess, hve mjög peningar hafa lækkað í verði síðan kaupið var ákveðið.

Nefndin leggur til, að styrkurinn til kvennaskólans í Reykjavík sje hækkaður dálítið. Í stjórnarfrv. er hann 12,000 kr., en kvað vera prentvilla, í staðinn fyrir að þar hafi átt að standa 11,000 kr. Þessa upphæð hefir nefndin fært upp í 14,000 kr. Forstöðunefnd skólans hefir skýrt nefndinni frá, að þessi hækkun væri nauðsynleg, meðal annars af því, að húsaleiga skólans hefði hækkað því sem næmi þessari upphæð, frá því sem áður var hún. Margir ágætir menn og konur hafa lagt á sig mikið erfiði fyrir skóla þennan og látið sjer einkar ant um hann. Taldi nefndin því viðurkvæmilegt að verða við málaleitan þeirra og styðja að því að sínu leyti, að skólinn gæti haldið áfram í líku horfi og verið hefir, þangað til föst skipun kemst á skólamál vor; og gagnfræðaskólum verði þá meðal annars komið í fast horf og kveðið á um, hve margir þeir skuli vera.

Þá kem jeg að 14. gr. B. XIII. 3. Þar vill nefndin skýra athugasemdina og bæta inn í orðunum: „í kauptúnum og sjávarþorpum og heimavistarskóla í sveitum“.

Það er sett til þess að sýna, að þingið vilji ekki, að reistir sjeu aðrir skólar í sveitum en heimavistarskólar.

Nefndin vill ekki hafa það á samviskunni að verða þess valdandi, að börn geti orðið úti að vetrarlagi, ef langt eiga að sækja til skólans. Auk þess er ekki hægt að veita þeim nauðsynlega aðhlynningu þegar illa viðrar, í öðrum skólum en heimavistar, og heilsu þeirra getur því verið búið tjón. En í veg fyrir þetta vill nefndin koma með þessari breytingu.

Þá er utanfararstyrkurinn handa barna- og unglingakennurum. Hann vill nefndin hækka úr 1600 kr. upp í 2500 kr., og er það sú minsta hækkun, sem verið getur.

Auk þess vill nefndin bæta fyrir þessum mönnum, með því að nema burtu það, sem þeim hefir verið gert að skyldu áður sem er það, að þeir eigi að gefa út prentaða skýrslu um ferð sína, 1 örk minst, og senda hana ókeypis öllum starfandi barna- og unglingakennurum á landinu.

Jeg býst nú við, að þótt einn maður fengi allan styrkinn, þá yrði ekki mikill afgangur, þegar hann væri búinn að standa straum af þeirri útgáfu. Auk þess er það hreinasta fjarstæða að gera hverjum manni að skyldu að skrifa bók um þessa för sína. Segjum, að í ár færi lærðasti og besti kennarinn. Hann gefur út þetta rit og sendir. Að ári fer svo lakasti kennarinn. Hann á þá að fara að kenna þeim, sem síðast fór, eins og öllum hinum, þegar heim kemur.

Þetta er hreinasti hjegómi, og full sanngirni í því að ljetta þessum heimskulegu kröfum af.

Þá kemur nýr liður, sem er 800 kr. styrkur til Skólablaðsins.

Það mun nú þykja nýstárlegt að veita styrk til blaðaútgáfu, og halda menn, ef til vill, að hjer muni fleiri á eftir fara, svo sem styrkur til „Tímans“ og „Ísafoldar“. „Vísis“ og „Morgunblaðsins“ og fleiri dagblaða.

En jeg vil benda mönnum á að það er af tilviljun, að rit þetta heitir blað. Það er í rauninni tímarit og er það ekkert sjaldgæft, að tímarit um uppeldismál fái styrk. Auk þess er það öllum kunnugt, að útgefandi ritsins er áhugamaður hinn mesti og alls góðs maklegur.

Þá kem jeg að 14. gr. B. XIII. 8. b., um ferðakostnað fræðslumálastjórans. Það tekur auðvitað engu tali, að honum geti dugað 600 kr., ef hann á annað borð ferðast nokkuð. 1000 kr. eru að vísu lítið, en þó nær sanni. En auðvitað er heimilt að greiða meira ef svo stendur á.

Þá koma lýðskólarnir. Hjer varð talsverður meiningamunur um upphæðir þessar, og án þess, að jeg leggi áherslu á upphæðirnar fyrir sig, vil jeg þó vara menn við því að breyta þeim, þar sem þær eru fram komnar með nokkurskonar samningum í nefndinni. Það mun því best fyrir skóla þessa að ekki verði hreyft við þeim, því að ekki er sagt, að jafngott samkomulag fáist í annan tíma.

Það er mjer ánægja, að styrkur þessi hefir nú verið hækkaður, svo að talsverður munur er að fyrir suma þá skóla, sem hans eiga að njóta. Að vísu eru sumir hræddir um, að lítið verði eftir handa þeim, sem ekki eru hjer nefndir, en um þá skóla er ekkert víst, og verður ekki einu sinni vitað hvort þeir starfa næsta vetur.

Þá er um Flensborgarskólann hið sama að segja og jeg sagði um kvennaskólana.

Þótti nefndinni rjett að halda hann svo, að hann kæmist af meðan þetta skólafyrirkomulag helst. Þó vill nefndin tilskilja það, að af fje þessu, sem honum er ætlað, verði skólastjóranum bætt svo upp, að laun hans verði sæmileg. Hefir hann nú um langt skeið lifað við sultarlaun, en er góður og gegn maður í stöðu sinni.

Þá er styrkur til alþýðukenslubóka. Er hann færður upp til helminga, og byggist það á því, að verðhækkun hefir orðið svo mikil á bókaútgáfu allri.

Um næstu brtt. þarf jeg ekki neitt að segja; það er að eins leiðrjetting, því að það er ekki rjett, að fólkið í málleysingjaskólanum þurfi að borga kenslukostnað. Það er viðurværiskostnaður, en kenslan er ókeypis. Þetta er því að eins orðabreyting, og geta menn látið hana sjer í ljettu rúmi liggja.

Þá leggur nefndin til, að hækkaður verði styrkur til sundkenslu utan Reykjavíkur og mun þess full þörf, þar sem sú kensla hefir orðið að leggjast niður vegna fjárskorts.

Styrkhækkun til Ingibjargar Guðbrandsdóttur er ekki mikil. Hins vegar er það víst, að hún mun nota vel þessa litlu upphæð, og er því sjálfsagt að samþ. hana.

Styrkurinn til Björns Jakobssonar er feldur niður, vegna þess, að hann á nú að taka við kenslu í mentaskólanum, ef núverandi fimleikakennari segir af sjer, og auk þess á hann að hafa á hendi þá kenslu í kennaraskólanum.

Þá er síðasta breytingin við 14. gr., að Stefán Eiríksson fái 1500 kr., stað 1000 kr.

Hefir hann, eins og kunnugt er, lengi haldið uppi kenslu í trjeskurði, og hafa margir snillingar í þeirri list frá honum komið. En styrkauka hefir hann aldrei fengið. En uppbót þessi er svo lág, að um minna getur ekki verið að ræða.

Jeg gleymdi að geta þess við 14. gr., að nefndin hefir geymt sjer til 3. umr. till. um verslunar- og samvinnuskóla. Mun verða gerð grein fyrir því þá.

En þá kem jeg nú að 13. gr., sem jeg svo kalla, þar sem hún er vegabótagreinin í þessum kafla. Þar hefir talsverð hækkun orðið, þó ekki sje tekið upp nema sem svarar af því, sem um hefir verið sótt.

Þótti sumum helst til mikið um umsóknir til námsiðkana og fleira, og var af sumum jafnvel kvartað yfir því.

En á það lít jeg alt öðrum augum. Jeg tel það góðs vita, að svo miklar andlegar hræringar eru í landinu og löngun til að afla sjer þekkingar, bæði á sviðum vísinda og lista.

Því skyldi enginn trúa sem les það, sem hjer er daglega gefið út, að slíkar hræringar sjeu til með þjóðinni.

Og jeg tel þetta því fremur góðs vita, þar sem það er víst, að engin af öllum þessum umsóknum, að undanskildum tveimur, frá andlega veikluðum mönnum er svo, að ekki hefði þurft að taka hana til greina. Þetta tel jeg vott um vorgróður í hugsunarlífi þjóðarinnar.

En því miður sá nefndin sjer ekki fært að verða við öllum þessum styrkbeiðnum. Hún hefir því valið þær úr sem hún telur sjálfsagðastar í bili.

Jeg skal þá fyrst geta þess, að það var eftir ósk stjórnarinnar, að tekinn var upp í 15. gr. nýr liður eftir 2. d., að veita 1500 kr. til að afrita og ljósmynda skjöl er varða Ísland, í erlendum söfnum. Þetta hefir fallið niður af eðlilegum ástæðum, á meðan stríðið stóð yfir, en þar sem þetta er nauðsynjaverk, er sjálfsagt, að það verði nú aftur upp tekið.

Þá hefir nefndin lagt til að veittar verði 5000 kr. til aðgerða á Þingvöllum.

Háttv. þingm. er það nú kunnugt, af umræðum hjer fyrir skömmu. hve þar er háttað, að þar hafa ómildar hendur gengið að verki.

Almannagjárbarmurinn hefir verið sprengdur og rifnar búðir og fyltar mold, og lagður alfaravegur yfir þveran hinn helga stað. Hafa þá verið framin slík hermdarverk, að líkast er því sem útlendir víkingar og ræningjar hafi að unnið.

Þó nefndin hallist nú að því, að friða skuli stað þennan með öllu og flytja veginn niður undir vatnið og brúna sömuleiðis, þá hefir hún nú samt ekki treyst sjer til að leggja meira fram í þetta skifti og er það að eins til bráðustu viðgerða og til þess að sjá um, að staður þessi verði ekki saurgaður meira en orðið er.

Um styrkinn til Bókmentafjelagsins þarf jeg ekki að fara mörgum orðum. Hann er lítið hækkaður, og oflítið, ef til þess er ætlast, að gefið sje út jafnmikið og verið hefir. En líkindi eru til þess, að bókaútgáfa þess fjelags verði að minka.

Um Fornleifafjelagið og Sögufjelagið er hið sama að segja og Bókmentafjelagið. Þar er líka hækkað nokkuð, því að veita jafnmikið til hverrar arkar og verið hefir getur ekki náð nokkurri átt. Sama er einnig að segja um næstu 2 liði, Landsyfirdóma og Dómasafnið.

Þá hefir meiri hluti nefndarinnar orðið ásáttur um að fella niður liðinn til þýðingar íslenskra skáldrita, en setja í staðinn 1000 kr. til Dansk-Islandsk Samfund, og þarf ekki að ræða þá breytingu.

Þá er um Fræðafjelagið hið sama að segja og um Bókmentafjelagið. 600 kr. er sama og enginn styrkur, og hefði þurft að hækka meira en upp í 1000 kr. til þess, að vel væri.

Þá hefir nefndin felt niður liðinn um greiðslu til Bernarsambandsins. Hefir sá liður verið settur í fjárlögin um nokkurt skeið, án þess að Ísland kæmist nokkurn tíma í sambandið, og hefir fjeð því aldrei verið greitt.

En þar sem gera má ráð fyrir, að íslenskir rithöfundar missi nokkurs í við að vera ekki í sambandinu, vegna þess að þýðendur telji sjer ekki skylt að greiða þeim ritlaun, þá hefi bæði jeg og aðrir lagt það til, að ríkissjóður greiddi rithöfundum þessum skaðabætur. Til þess mundi nú sjaldan koma, en með því væri þeirra rjetti engu síður borgið.

Sumir vilja telja það ræningjahátt að ganga í heimsbókmentirnar og velja úr. Þó munu útlendingar ekki hafa gert sjer að fjeþúfu þær þýðingar, sem gerðar hafa verið á íslensku. Jeg get sagt fyrir mig, að þegar jeg hefi þýtt eitthvað hefi jeg venjulega skrifað höfundinum og sagt honum fyrirfram, að hjer gæti ekki verið um nein ritlaun að ræða, og hefi jeg fengið þau svör, að öllum væri kært að fá rit sín þýdd á þetta fornfræga mál, en ekki væri ætlast til borgunar.

Þá kemur styrkurinn til skálda og listamanna og hefir nefndin hækkað hann nokkuð. En eftir því, sem hagað hefir verið úthlutuninni fram að þessu, hefir styrkur þessi næstum orðið að engu. Í síðasta sinn var honum skift milli 16 manna. Voru sumir þeirra skáld, aðrir aftur listamenn, og sumir þeirra fullnuma í sinni grein. Verður því erfitt að skilja, eftir hvaða reglum farið hefir verið um úthlutunina.

Fjárveitinganefndin hefir nú hugsað sjer að láta standa í fjárlögunum 22000 kr., til þess að fylla þessar rjettmætu þarfir.

Er þó ekki bundið við að borga alla þá fjárhæð út að svo komnu; mætti t. d. borga meira út annað árið.

Nefndin álítur ekki rjett að láta fullnuma listamenn hafa árlegan styrk, nema þegar sjerstaklega stendur á. Annars eigi fjárveitingin til þeirra að koma fram í öðrum lið, til að kaupa fyrir af þeim listaverk, sem þeim er bæði gagn og sómi að ef landið kaupir þau og geymir.

Svo er annað atriði, að efnilegir listamenn fái styrk til að ferðast og sjá sig um. Er þá helst að leita þangað, sem listin hefir hæst komist til Rómaborgar. Er þeim holt að sjá, hve hátt listin stóð hjá Rómverjum hinum fornu fyrir 2000 árum og meira svo að ekki ofmetnist þeir af sínum eigin verkum, þótt góð sjeu. Þar geta þeir gengið upp á Kapitolium og sjeð svo fögur listaverk, að ekki getur fegri: minnist jeg sjerstaklega eins, þar sem er skínandi hvítur vagn með tveim skínandi hvítum hestum fyrir. Jeg tel sjálfsagt fyrir landssjóð að styrkja þessa menn til að fá listamannseðlinu fullnægt. Brautin sem þeir verða að ganga, er löng og erfið. Þeir vinna ekki fyrir sjálfa sig, safna ekki fje, heldur vinna þeir fyrir þjóðina. Þeirra ríki er ekki af þessum heimi

Nú þætti nefndinni hæfilegt að ætla 6000 kr. á ári í þennan ferðastyrk. Það hafa þegar fjórir menn sótt um styrkinn, og mundi þessi upphæð duga nokkuð til þess, að þeir gætu farið þessa fyrirhuguðu för sína. En í framtíðinni væri óhætt að gera ráð fyrir því, að styrkurinn gengi ekki upp allur; væri þá afgangurinn eftir og kæmi aldrei til úthlutunar neinum.

Um skáldastyrkinn er það sama að segja að nefndin hefir áætlað hann 6000 kr. hvort árið. Eftir beiðni sjera Valdimars Briems sjálfs hefir hann verið fluttur úr 16. gr. í 18. gr.

Annars eru nú þrjú góðskáld okkar dáin, hvert eftir annað, fyrst þeir nafnarnir Guðmundur Magnússon og Guðmundur Guðmundsson og nú síðast Jóhann Sigurjónsson. Er gott til þess að vita að ekki skuli vera hægt að telja eftir þeim styrk lengur en mikill skaði var að þeim öllum. Nú hefir nefndin ætlast til þess, að þessi skáldastyrkur yrði ekki bitaður niður á marga, heldur væri honum skift niður á þrjú góðskáld eða þá tvö og einhverjir fleiri en þau fengju svo minni styrk. Þá er enn fremur námstyrkur til listamanna og er ekki nema sjálfsögð skylda landsins að veita styrk til kenslu í þeirri grein eins og öðrum.

Einn mjög efnilegur söngmaður. Eggert Stefánsson hefir sótt um styrk til Ítalíufarar. Hann sótti um 5000 krónur en mundi eflaust láta sjer þykja vænt um, þótt styrkurinn yrði minni. Svo hafa aðrir tveir efnilegir söngmenn sótt um minni styrk. Væri vel, ef þeir gætu fengið þann styrk, því allir, sem sótt hafa, eru mjög góðs maklegir.

Þá hefir nefndinni dottið í hug að hafa nokkuð af styrknum til verðlauna. Ef verðlaun eru veitt fyrir einstök snildarverk, gæti það orðið mönnum hvöt til að gera sem best. Það er eins um þessa upphæð eins og þá fyrstu að ekki þarf að vera ástæða til að veita á hverju ári þessar 2000 krónur til verðlauna.

Að síðustu er lagt til, að einum fullnuma listamanni, Einari Jónssyni, væri veittar 2000 kr. hvort árið. Hann hefir þegar gert landinu og þjóðinni mikinn sóma með verkum sínum og að síðustu gefið því öll sín verk, mörg og góð.

Þá kem jeg að 22. lið í 15. gr., þar sem nefndin leggur til, að fjárveitingin til íslensku orðabókarinnar, sem verið er að semja, hækki úr 6000 upp í 9000 kr. hvort árið. Jeg fyrir mitt leyti álít, að þessa fjárveitingu ætti að hækka meira. En jeg deili ekki við meiri hluta nefndarinnar um það, fyr en jeg heyri ástæður hans.

Næst er farið fram á hækkun úr 4000 kr. upp í 15000 kr. til dansk-íslenskrar orðabókar. Nefndin var öll sammála um að ganga að tilboði Sigfúsar Blöndals og veita honum fje þetta til lúkningar orðabókinni. Má sjá nánar um þetta í nál. Hann bauð, að handritið skyldi verða eign íslensku orðabókarinnar og er það mikils virði. Andvirði bókarinnar á að bera sig sjálft og renna í sjóð, til nýrrar útgáfu.

Þá er orðabók Geirs T. Zoëga. Hefi jeg leyft mjer að setja í nál. nafn þess manns, sem næga sönnun þess, að sú fjárveiting sje rjettmæt.

Þá hefir nefndin ekki talið sæmilegt að láta lækka styrk Helga Pjeturssonar heldur hækkað hann upp í 2500 krónur. Nefndinni fanst ekki rjett að draga af honum, eins og hún væri með því að gefa í skyn, að hann væri síður vinnufær nú en áður, og hryggja hann með því.

Nefndin hefir lagt til, að tveir nýir liðir bætist við 27. lið. um styrk handa tveim mönnum til jarðfræðisrannsókna. Sá fyrri er þegar allmikið kunnur fyrir þær rannsóknir, ekki að eins hjer á landi, heldur erlendis, og hefir skrifað merkilega ritgerð um það efni, sem hlotið hefir lof vísindamanna. Hinn maðurinn, Frímann Arngrímsson, hefir sagt nefndinni, að þær 600 krónur, sem hann hafði, sjeu sjer ófullnægjandi, sem og skiljanlegt er, þar sem hann hefir mikil ferðalög, og þar af leiðandi talsverðan tilkostnað við þessar rannsóknir sínar. Hann hefir fullkomlega unnið fyrir þeim styrk, sem hann hefir haft. Því starf hans er nytsemda starf, hvort sem það leiðir til þess að uppgötva nýtileg efni í landinu eða ekki. Því kæmi það fram, að engin nýtileg efni væru í landinu, ættu menn síður á hættu, að fjeglæframenn færu um og seldu námur, sem svo reynast ónýtar, og spiltu með því áliti landsins og þjóðarinnar út á við.

Um styrkinn til Pjeturs Zophoníassonar, til að lúka við sjóðarannsóknir Jóhanns Kristjánssonar, skal jeg ekki fjölyrða, tel hann svo sjálfsagðan, að óþarfi sje orðum um það að eyða.

En svo er hjer farið fram á dálítinn styrk til frú Önnu Thorlacius, sem um langt skeið hefir staðið fyrir veðurathugunum, og auk þess safnað mjög miklu og merkilegu um háttu og siðu manna fyrrum. Er mikill fróðleikur þar saman kominn, og ætti enginn að sjá eftir þeim 800 kr. hvort árið, sem nefndin vill veita henni í viðurkenningarskyni fyrir þetta starf hennar.

Þá eru veðurskeytin í 15. gr., 35. tölulið. Jeg býst við, að háttv. þingdeildarmenn hafi tekið eftir því, að þetta er töluvert há fjárveiting, sem hjer er farið fram á. En hún er ekki eingöngu verk nefndarinnar, heldur er hún fram komin eftir till. stjórnarinnar og sprottin af þeirri nauðsyn, sem knýr ríkið til að láta ekki þessar athuganir liggja niðri. Tillagið er hærra fyrra árið, vegna þess, að kaupa verður öll tæki til stöðvarinnar, annaðhvort hjá veðurathugunarstöðinni í Kaupmannahöfn eða annarsstaðar. En árlegur rekstrarkostnaður, 18,800 kr., felst í síðasta liðnum.

Þá er b.-liður sömu greinar, um jarðeðlisrannsóknir í sambandi við norðurför Roalds Amundsens. Hjer er einnig allmikill mismunurinn á tillaginu hvort árið, sem stafar af því, að kaupa verður sjerstök verkfæri til rannsóknanna. En verkfæri þessi verða ekki ónýt að rannsóknunum loknum; þau eru góð eign til segulmagnsmælinga. Rannsóknirnar fara fram á ákveðnum tíma, svo að Amundsen geti gert rannsóknir á sama tíma. Samanburður á niðurstöðu rannsóknanna mundi verða mjög fróðlegur, og með öllu ófært að þennan lið vantaði í athuganirnar. Nefndin taldi sjálfsagt að verða við tilmælum frænda vorra, Austmanna, um þetta, og býst við, að háttv. deildarmenn hafi þann skilning á málinu, að þeir taki því vel.

Þá kemur fjárhæð, sem nefndin leggur til að veitt verði mönnum til þess að sækja olympísku leikana árið 1920. Þessi liður nemur 20 þús. Þetta mál hefir að vísu tvær hliðar. Það er ekki skemtilegt að veita mönnum stórfje til þessarar farar, ef þeir yrðu síðan lakastir allra, þegar á mótið kæmi. En fjárveitingin mundi þó knýja þá til fararinnar og hvetja þá til að æfa sig sem allra best undir hana, og niðurstaðan yrði ef til vill sú, að íslensku íþróttamennirnir yrðu ekki lakastir. Og ef niðurstaðan yrði sú, að íslensku íþróttamennirnir vektu eftirtekt, væri mikið unnið. Það mundi verða til þess að hvetja þá og þjóðina til íþróttaiðkana. En íþróttirnar efla fegurð líkamans og styrkja gáfur og sanna lífsgleði. Nægir að benda þar á Forn-Grikki sem fyrirmynd. Hjá þeim rann saman fegurð líkamans, íþróttagleði og annálaðar gáfur. Jeg hygg þess vegna, að rjettast sje að eiga það á hættu, að veita íþróttamönnum vorum þennan styrk, því að úrslitin geta þó aldrei orðið verri en svo, að íþróttum vorum aukist styrkur og þekking.

Þá er utanfararstyrkur til nokkurra efnilegra manna, sem fást við kenslu og vilja afla sjer frekari mentunar í kenslugreinum sínum, og sjá siðu annara þjóða (Hjer hefir ræðuritarinn (Þórb. Þ.) slept setningu á grísku). Og þetta þótti vel fara á Odyseifi. Það er kunnugt, að kennarar þurfa að sjá siðu og kanna hugi annara þjóða. Og orsökin til þess, að jeg mæli glaður með þessum mönnum, er, að jeg þekki þá báða. Jeg veit, að þeir eru svo vel mentaðir, að þeir apa ekki eftir erlenda sníkjumenningu, þegar heim kemur heldur veita þjóðinni það, sem henni má að gagni verða.

Hina kennarana þekki jeg ekki. En að almannadómi eru þeir góðir menn og gegnir. Lítið eitt kenni jeg þó Guðmund Ólafsson, og Norðlendingar, sem jeg hefi átt tal við segja, að hann sje góður maður og gáfaður.

Þá er styrkur til Guðmundar Jónssonar teiknikennara, sem er mjög ástundunar samur maður og ágætur kennari.

Jeg vona, að hæstv. deild verði tillögum þessum hlynt. Styrkirnir eru að vísu ófullnægjandi, en þá mætti síðar tiltaka, ef á þyrfti að halda öðru sinni.

Þá koma 3 nýir liðir. Er þar fyrst styrkur til Eyjólfs Bjarnasonar til raffræðináms í Gautaborg. Þetta er efnilegur maður, sem hefir tekið óæðra próf, en langar til að ljúka æðra prófi. Býst hann við að geta lokið því á 2 til 3 árum. Hann hefir ágætan vitnisburð frá skólanum, sem nefndin hefir haft til meðferðar.

Þá er styrkur til Jóns Eyþórssonar til veðurfræðisnáms í Kristjaníu, 2000 kr. á ári. Nefndinni þótti sjálfsagt að veita þennan styrk, til þess að hann gæti lokið náminu og tekið við veðurfræðisstöðinni hjer að náminu loknu.

Í þriðja lagi er styrkur til Sigurðar Sigurssonar frá Hoffelli, til þess að kynna sjer samvinnufjelagsskap í Englandi. Þetta er mjög efnilegur maður og hefir áhuga á samvinnufjelagsmálum. Nefndinni virtist sjálfsagt að veita honum styrkinn, svo að menn gætu orðið sem fróðastir um þetta mál.

Þá hefi jeg lokið við 15. gr., og vænti jeg, að deildin taki henni vel og fallist á till. nefndarinnar. Greinin felur að vísu í sjer dálitla hækkun, en þó svo litla, sem frekast mátti. Mönnum má ekki þykja það neitt óeðlilegt, þó að nefndin hafi hækkað útgjöldin dálítið frá því, sem gert var ráð fyrir í frv. stjórnarinnar. Því að nefndinni hefir borist flóð af umsóknum, sem stjórnin hefir ekki sjeð, en mundi sjálfsagt hafa tekið vel, ef þeim hefði verið beint til hennar. Það er því mjög eðlilegt, að útgjöldin hafa hækkað í fjárlögunum, þar sem óskir landsmanna koma ekki fram fyr en í þingbyrjun.

Þá kem jeg að 16. gr., og verður þar fyrst sá liðurinn, sem mestu máli skiftir, en það er styrkur til landbúnaðarins. Jeg verð að drýgja þá synd, að minnast enn þá einu sinni á það, að land sem Ísland er dauðadæmt, ef það hefir ekki bændastjett. Annars verður þjóðin skrælingjaþjóð. Vjer þurfum ekki annað en bera saman, hvar Íslensk menning heldur sjer best, hvort það er í sveitunum eða bæjunum, þar sem ægir saman lýð úr öllum áttum; sumir eru þar að vísu þjóðlega mentaðir, en aðrir eru uppskafningar, sem flytja inn í landið erlenda sníkjumenningu; en hún fer illa á gamalli menningarþjóð. Vjer vitum allir, að margskonar hætta steðjar að landbúnaðinum hjer á landi. Allir þekkja samkepnina við sjávarútveginn, sem legst mjög þungt á, af því að þessi atvinnuvegur hefir ekki vaxið í hlutfalli við fólksfjölgunina. Þess vegna verður þingið að leggja kapp á að ljetta undir með landbúnaðinum. Honum er nú að vísu minna íþyngt með gjöldunum en sjávarútveginum, en það er fólkseklan og dýr vinnukraftur, sem stendur honum mest fyrir þrifum. Það verður því að koma honum í það horf, að sem mest verk verði unnið með sem fæstum höndum. Jeg segi ekki, að gagngerð breyting þurfi að verða á landbúnaðinum. Þúsund ára reynsla sýnir og sannar, að það verður aldrei og getur aldrei orðið. En það þarf að verða gerbreyting á verkfærunum. Nú leggur nefndin til, ásamt systurnefnd sinni í Ed., að veitt verði mikið fje til eflingar landbúnaðinum. Höfuðstefna nefndanna var þó ekki sú, að styrkja sjálfan atvinnuveginn, því að ef hann ber sig ekki sjálfur, getur hann ekki borið landið. En þær vildu hjálpa honum til þess að ryðja brautina til nýrra framkvæmda, svo sem vatnsveitu í stórum stíl, kaupa á dýrum verkfærum og reynslu á þeim. Því að auðvitað er nauðsynlegt að reyna fyrst verkfærin, svo að ekki sje kastað út ógrynni fjár í blindni fyrir áhöld, sem síðar reynast ef til vill einskis nýt, líkt og átti sjer stað með manndrápsbollana, sem menn keyptu hjer á árunum. Menn geta verið óhræddir um, að styrknum verður að mestu leyti varið eins og nú hefi jeg sagt, enda verður hann undir eftirliti búnaðarfjelagsins, sem hefir einmitt tekið þessa stefnu. Eins og sjá má á brtt. nefndarinnar, hefir hún lagt það til, að veittar yrðu 180 þús. kr. til landbúnaðarins, í stað 60 þús., sem stjórnin hafði áætlað. En þessi hækkun nemur ekki meiru en samsvarar verðfalli peninga, og því ekki að vænta, að framkvæmdirnar geti orðið meiri en fyrir stríðið. En sennilega verður fjárhæð þessari sjerstaklega varið til þess að gera tilraun með verkfæri.

Með sama formála hefir nefndin hugsað sjer fjárveitinguna til búnaðarfjelaga. Nefndin hefir ekki hugsað sjer, að fjárhæðinni væri skift til einstakra manna, eins og átt hefir sjer stað, heldur væri henni úthlutað eftir samanlagðri dagsverkatölu fjelaga innan sambandsins, verði með öðrum orðum varið til smærri framkvæmda innan einstakra fjelaga, líkt og búnaðarfjelagið gerir í stærri stíl. Nefndin leggur til, að vatnsveitustyrkurinn falli niður, af því að vatnsveitan hverfur undir starfssvið búnaðarfjelagsins.

Þá er nýr liður til áveitu í Óslandshlíð í Skagafirði. Það mun hafa verið farið fram á styrk, sem samsvaraði hluta af áveitukostnaðinum, en hann er áætlaður 20 þús. kr., og gæti komið til tals að athuga þetta síðar.

Þá eru 3000 kr. til uppbótar á samningsvinnu við skurðgröft í Miklavatnsmýri. Botninn í skurðinum reyndist miklu harðari en gert hafði verið ráð fyrir, og vinnan varð þar af leiðandi miklu dýrari en áætlað hafði verið. Telur nefndin rjett að veita þessa uppbót.

Um sandgræðsluna þarf jeg ekki að fjölyrða.

Þá er garðyrkjufjelagið. Fjelag þetta vill vinna af kappi að garðyrkju, í minningu þess, að Ísland er nú aftur orðið fullvalda ríki, og fer fram á að fá sjerstakan garðyrkjustjóra, með 5000 kr. launum. Þetta gat nefndin fallist á og taldi rjett að ljetta stjórninni af búnaðarfjelaginu, sem hefir ærið að starfa, því að ekki þarf altaf sömu mennina til hvorttveggja, og það hefði ekki kostað minna, þó að búnaðarfjelagið hefði haldið garðyrkjustjórann.

Þá eru næst aðallega ýmsir smástyrkir, sem óþarft er að fjölyrða mikið um. Þó skal jeg nefna 1000 kr. til þess að kaupa málmbræðsluofn, í því skyni að rannsaka, hvort það borgaði sig að vinna málma, ef þeir fyndust.

Þá er 500 kr. styrkur til manns, er leiðbeini almenningi um raforkuveitu. Styrkur þessi er veittur Guðmundi Jónassyni Hlíðdal.

Nefndin hefir lagt til, að styrkurinn til íslenskra samvinnufjelaga falli niður, af því að nefndin hefir hugsað sjer að athuga nánar fyrir 3. umr. tillögu um verslunarskóla í sambandi við þennan lið.

Þá er styrkur til fiskifjelagsins. Við þennan lið er þess að geta, að nefndin hefir ætlast til, að sendimaður fjelagsins fengi kaup sitt og ferðakostnað greitt af styrknum. Þó að sendimaðurinn fái 12 þús. kr. laun, þá er honum ekki fært að borga ferðakostnað af þeirri fjárhæð, og því hefir nefndin talið fjelaginu skylt að greiða honum ferðakostnað aukreitis.

Þá er 200 kr. uppbót til Jakobs Björnssonar. Þetta eru gamlar leifar af utanfararkostnaði, og þótti nefndinni sanngjarnt að veita þetta. Tel jeg óþarft að eyða að þessu fleiri orðum.

Þá eru 2000 kr. til skipverjanna af „Gullfaxa“. Skipið hafði komist inn á ófriðarsvæðið í grend við Færeyjar og verið sökt þar. Skipverjar komust nauðulega undan, en mistu allan farangur sinn. Þótti nefndinni rjett að veita þessa skaðabót.

Þá kemur till. til heimilisiðnaðar. Nefndin telur það illa farið, ef heimilisiðnaður skyldi leggjast niður.

Þá kem jeg að vörumerkjaskrásetjaranum. Það er víst, að þessi maður hefir haft of lítið fyrir vinnu sína. Vill nefndin því bæta honum það upp með 600 kr. fyrir liðinn tíma, en síðan á hann að fá 800 kr. fyrir að rækja starfið. Hann var skipaður árið 1904 og átti þá að hafa 360 kr. í laun. Hann hefir nú unnið að þessu starfi í samfleytt 15 ár og aldrei fengið neina launauppbót. En auk þess hefir hann orðið að leggja sjálfur til ljós og hita til skrifstofunnar, því honum er gert að skyldu að hafa hana opna 1 kl. tíma hvern virkan dag. Nú er auðsætt, að starfið mun aukast talsvert, þegar viðskifti komast í samt lag aftur, svo að launin mega ekki minni vera en hjer er tiltekið. Þessi maður skrásetur vörumerki frá Danmörku, Noregi, Bretlandi og fleiri löndum. Allir hljóta að sjá, að það er ekki lítið starf. Enda býst jeg ekki við að neinn hafi á móti þessari hækkun.

Jeg þarf ekki að orðlengja um Tvískerjabóndann nje heldur Fornahvammsbóndann.

Um brimbrjótinn í Bolungarvík get jeg látið mjer nægja að vitna til þess, sem áður er sagt um hann hjer í hv. deild. Það er hið mesta nauðsynjafyrirtæki, eins og öll hafnarvirki eru. Enda var nefndin á einu máli um, að hækka þennan lið úr 5 þús. upp í 10 þús. kr.

Þá er næst endurveiting.

Svo er veiting til bryggjugerðar á Blönduósi, 18 þús. kr., en þó eigi yfir þriðjung kostnaðar. Það hefir lengi verið erfitt að finna hæfilegt bryggjustæði á þessum stað. En nú er sagt, að sje fundinn góður staður. Það er stór klöpp, sem talið er að megi steypa bryggju ofan á. Og hún er þeim megin árinnar, sem kauptúnið er, svo að ekki þarf að fara yfir ána eftir á.

Bryggjan í Stykkishólmi hefir skemst fyrir skömmu, og mun þurfa viðgerðar. Vill nefndin því leggja til, að gefnar verði eftir 8,800 kr. af óborguðu láni.

Þá kem jeg að 18. gr. frv. Um hana er ekki mikið að segja, annað en að hún stækkar altaf og vex. Jeg vil benda þeim hv. þm. á það, sem voru mjer andvígir í stjórnarskrárumr. um þurfalinga. Þingið vildi ekki ganga inn á brtt. mína, enda þótt fleiri fylgdu mjer að málum nú heldur en síðast. Af því leiðir aftur, að því fólki fjölgar altaf í 18. gr. fjárlaganna, sem þinginu flust viðurhlutamikið að svifta öllum mannrjettindum, ef það hefir einhvern tíma þegið fátækrastyrk, enda þótt það hafi þjónað ríkinu vel og dyggilega árum saman. Menn ættu ekki að verða hissa á því, þó að talsvert bætist við í þessa 18. gr. Þeir geta sjálfum sjer um kent.

Um Olivu Guðmundsson og Stefán Stephensen er ekki annað að segja en að veitingin til þeirra er leiðrjetting á vantöldum eftirlaunum. Þá koma prestsekkjur, sem bætt er við. Um Hlíf Bogadóttur skal jeg geta þess, að hún er bláfátæk og er með mörg börn í ómegð. Auk þess er eitt af þeim veikt, þannig að það fær aldrei fulla heilsu. Bóndinn var brjóstveikur, svo að hann gat ekki fengið sig vátrygðan, til þess að ljetta undir með ekkjunni, þegar hans misti við. Nefndin leggur því til, að þessi fátæka ekkja fái 150 kr. með hverju barni, sem er í ómegð. Líkt má segja um ekkju Lárusar Halldórssonar. Nefndin hafði gleymt að taka hana inn í fjárlögin við 2. umr., en hún var lækkuð í fjáraukalögum. Mun jeg því sjá um, að hún gleymist ekki til 3. umr. Annars mun jeg ekki þurfa að ræða um einstaka menn hjer; sumir hv. þm. eru því sjálfsagt eins kunnugir og jeg. Þó vil jeg taka fram, að nefndin áleit rjett, að Elínu Briem yrði veittar 600 kr. á ári. Henni hefir áður verið veitt heiðurslaun. En eins og menn vita, þá er mikil dýrtíð, svo efni hennar eru gengin til þurðar. Hins vegar mun þessi kona ekki síður virðingarverð í alla staði en aðrar mætar forstöðukonur kvennaskólanna. Á hún fyllilega skilið, að hún fái þessar 600 kr. framvegis. Sama er að segja um góðan en gamlan barnakennara. Pjetur Guðmundsson, sem nú er orðinn heilsulaus. Hann hefir verið ágætur kennari í mörg ár og slitið sjer út, með því að gegna því starfi af alúð og trúmensku. Nú er hann orðinn alveg heilsulaus og getur ekki unnið lengur, svo afkoma hans sjálfs og heimilisins hvílir eingöngu á einum uppkomnum dreng, sem hann á. Nefndinni þykir ekki sæma að neyða slíkan mann til að þiggja fátækrastyrk, svo að hann missi öll mannrjettindi á gamals aldri, eftir að hafa sjeð betri daga fyr á æfinni.

Það hafði komið áskorun, frá mörgum kvenmönnum þessa bæjar, um að þingið veitti Bríeti Bjarnhjeðinsdóttur fjárupphæð í viðurkenningarskyni. Hún hefir, eins og menn vita, unnið kvenna best að því, að menta kvenþjóðina og bæta kjör hennar að mörgu leyti. Fanst nefndinni því sanngjarnt, að henni verði veittar 2000 kr.

Næsti liður er 1000 kr. veiting til Þorvarðs Bergþórssonar, í viðurkenningarskyni fyrir 50 ára hreppstjórn. Auk þess hefir hann komið upp 20 börnum, og ætti það að vera góðra gjalda vert hjá jafnfámennri þjóð. Þetta var felt hjer áður, en nefndin tekur það nú upp aftur og vill, að hann fái 1000 kr. Það er gert með tilliti til þess, að fyrir skömmu varð sonur hans, sem er bóndi, fyrir því óhappi, að skriða fjell á jörðina. Misti hann þar fje og eignir og varð að yfirgefa jörðina. Og faðir hans, sem hjer á að styrkja, varð að fara til annara. Þetta ætti að verða nóg hvöt fyrir menn til að samþykkja þennan lið.

Um aðra liði þykist jeg ekki þurfa að tala. Sömuleiðis hefi jeg fátt að segja um brtt. einstakra þingmanna.

Þó vildi jeg minnast á eina till., sem mjer sást yfir áðan. Það er till. hv. þm. V.-Sk. (G. Sv.), um styrk til Jóns Dúasonar. Nefndin hafði ætlað að veita þessum unga og efnilega manni 12000 kr., til að fullkomna sig í fræði sinni um bankamál, í Vesturheimi. Nú fer till. hv. þm. V.-Sk. (G. Sv.) fram á, að honum verði veittar 6000 kr., en auk þess heimilist stjórn Landsbankans að greiða til sama 6000 kr. árið 1920. Nefndin hefir fallist á þessa brtt., og telur það tryggingu fyrir því, að hún verði samþykt.

Þá hefir nefndin og fallist á brtt. á þgskj. 599, um 1000 kr. til Halldórs Briem til þess að fullgera íslenska málfræði.

Næst kem jeg að brtt. á þgskj. 615, frá hv. 1. þm. Árn. (S. S.). Fyrsti liður er að athugasemdin við listamannaliðinn falli burtu. Það vill nefndin ekki fallast á. Þá er næsti liður brtt., sem jeg skil ekki, hvað átt er við með. Það er þýðing eftir einhvern Guðjón eða Gísla Faust. Það stendur ekkert í till. nefndarinnar um þennan mann. Og jeg á ekki svo gott með að ræða um þetta, af því að jeg þekki engan mann með þessu nefni, nje hefi heyrt hans getið. Mjer er ekki kunnugt um, að neinn með þessu nefni hafi verið styrktur til að þýða eitthvað, og ekki kannast heldur aðrir við það, sem jeg hefi talað við. Síðasta lið brtt. getur nefndin fallist á, að því tilskildu, að Búnaðarfjelag Íslands veiti styrkinn í staðinn.

Að öðru leyti geymi jeg mjer að tala um aðrar till., þangað til jeg þarf að svara einhverja, þó að jeg hins vegar búist ekki við, að það verði mikið. Skal jeg svo leyfa öðrum hv. þm. að komast að. Geta þeir nú stigið á bak sínum mælskufákum og látið þá renna með sig í kvöld, enda eru hjer margir gæðingar saman komnir.