30.07.1919
Neðri deild: 21. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 983 í B-deild Alþingistíðinda. (753)

3. mál, fjáraukalög 1918 og 1919

Frsm. (Magnús Pjetursson):

Jeg þarf ekki að halda langa ræðu en úr því jeg stóð upp, þykir mjer leiðinlegt að enginn úr hæstv. stjórn er viðstaddur, því aðallega ætlaði jeg að beina orðum mínum að hæstv. atvinnumálaráðh. (S. J.) og hæstv. forsætisráðh. (J. M.). En nú er ekki annað fyrir mig að gera en að snúa mjer að síldarmálinu. Háttv. 1. þm. Árn. (S. S.) sagði að jeg hefði tekið till. hans vel. Þessu verð jeg að mótmæla. Jeg gat ekki tekið ákveðnari afstöðu til málsins en jeg gerði, þar sem jeg er frsm. nefndarinnar. Sjerstaklega þykir mjer hv. þm. (S. S.) ganga illa að færa rök fyrir loforðum stjórnarinnar. Annars get jeg vísað til þess sem jeg hefi áður sagt um þetta mál.

Úr því að hæstv. atvinnumálaráðh. (S. J) er kominn, þá ætla jeg að fara nokkrum orðum um Hvanneyrarmálið. Stjórnin óskar nú eftir viðtali við nefndina. Jeg legg þar ekkert til málanna; það verður hún að eiga við formann nefndarinnar um. En jeg get ekki neitað því, að mjer kemur þetta hálfkynlega fyrir. Nefndin hefir talað við stjórnina eins og hún þarf, og við höfum farið fram á að stjórnin ljeti í tje skriflegar till. En það er eins og hæstv. stjórn sje ekkert um það, það er eins og hún vilji heldur skrafa sig út úr öllu saman.

Þá vík jeg mjer að hæstv. forsætisráðh. (J. M.). Jeg held, að það kenni misskilnings hjá honum í ummælum hans um yfirmatsmanninn. Nefndin vill ekki brjóta í bág við erndisbrjef hans um það efni, að hann megi ekki taka þóknun annarsstaðar frá en úr landssjóði.

En hins vegar finst nefndinni ekki nema rjett, að hann fái aukaþóknun fyrir það, sem hann gerir og er ekki skyldugur til. Landssjóður getur hæglega greitt honum þessa þóknun, og það er í alla staði viðkunnanlegra og formlegra og kemur þá ekki í bága við erindisbrjefið. Og þó landssjóður aftur taki fjeð hjá kaupmönnum, þá get jeg ekkert haft við það að athuga.

Till. nefndarinnar hefir ekki verið mótmælt og verð jeg þá að líta svo á sem menn sjeu þeim samþykkir því annars mundu þeir hafa hreyft mótmælum. Jeg þarf þess vegna ekki að ræða þær frekar, vona að eins að háttv. deild taki þeim vel við atkvæðagreiðsluna eins og við umræðurnar og samþykki þær allar, og eins þær till. sem nefndin hefir mælt með.