15.08.1919
Efri deild: 31. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1008 í B-deild Alþingistíðinda. (775)
3. mál, fjáraukalög 1918 og 1919
Frsm. (Eggert Pálsson):
Jeg vænti, að ekki þurfi langa framsögu þó um mikilsvert frv. sje að ræða. Fjárveitinganefnd hefir gert svo skýra grein fyrir brtt. sínum í nál., að fáu er við að bæta. Jeg skal geta þess nú þegar, að villa hefir slæðst inn í sjálft frv., í 8. gr. 7. tölulið Þar stendur „við 30.“, en á að vera „við 40.“ Þetta er auðvelt að leiðrjetta í próförk.
Í nál. er tekið fram, að nánari grein muni verða gerð fyrir tveim brtt. nefndarinnar í framsögunni, nefnilega 9. lið 7. greinar, styrknum til útgáfu íslensk-danskrar orðabókar, og 7. lið 8. greinar, styrknum til brimbrjóts í Bolungarvík.
Til nánari skýringar á orðabókarstyrknum skal jeg lesa upp kafla úr umsókninni, er svo hljóðar: „Svo var gert ráð fyrir í fyrri áætluninni, að forleggjari gæfi bókina út, legði sjálfur til 15,000kr., en fengi alt, sem á vantaði, frá þingum beggja ríkjanna. Svo átti hann að fá alt, sem inn kæmi fyrir bókina. Nú er auðsætt, að með þessu móti mundu þingin verða að greiða jafnmikla upphæð eða meiri á nýjan leik, þegar ný útgáfa yrði nauðsynleg en mál okkar er á því þroskaskeiði nú, að þess mun varla mjög langt að bíða. Þá hugkvæmdist höfundi bókarinnar að sleppa forleggjaranum, einkum þar sem svo lítið munaði um tillag hans og láta alt andvirði bókarinnar renna í sjóð, sem yrði á sínum tíma varið til endurbóta á bókinni og nýrrar útgáfu, að svo miklu leyti, sem hann hrykki til. Höfundur gerir helst ráð fyrir því, að stjórn sjóðsins og tilhögun öll verði ákveðin af stjórnum beggja ríkjanna í samráði við höfundinn. Hugmynd þessari var einkar vel tekið af fjárveitingavaldi Dana, og taldi það sjálfsagt, að orðabókin yrði gefin út á þennan hátt.“ Fjárveitinganefnd var sammála höf. og fjárveitingavaldi Dana um það, að heppilegt væri, að bókin gæti framvegis endurnýjað sig sjálf, án frekari kostnaðar. Þetta er orsökin til, að útgáfukostnaðurinn vex frá því, sem áætlað var og ákveðið upphaflega. Sömuleiðis „stafar hækkunin sumpart af því“, — svo jeg vitni aftur í umsóknina — „að nú er ákveðið eftir tillögum margra málsmetandi manna, sem fengist hafa við útgáfu og sölu orðabóka, að hafa upplagið helmingi stærra en áður var ráðgert, eða 3000 eintök í stað 1500.“ Einnig veldur dýrtíðin og aukin aðstoð við undirbúning handrits til prentunar miklu um kostnaðaraukann. Þessar ástæður hefir fjárveitinganefnd viðurkent og mælir með, að hækkunin sje samþykt.
Í nál. er sýnt fram á, að hækkunin á styrk til brimbrjóts í Bolungarvík mun ekki baka ríkissjóði aukin útgjöld. Till. nefndarinnar byggist á tilmælum vitamálastjóra, og eru nægilega skýrar ástæður birtar í nál.
Veigamesta brtt. er til akfærra sýsluvega, kr. 22,106.14. Þessi upphæð hefði vitanlega þurft að koma í fjárlögin, ef hún hefði ekki verið tekin upp hjer. Flestir hlutaðeigendur munu vera búnir að vinna fyrir þeim fjárhæðum, sem þeim ber úr ríkissjóði, en hafa tekið bráðabirgðalán til að geta fullnægt útborgunum. Um flesta vegina mun vera svo, að þeir koma ekki að neinum notum fyr en þeir eru fullgerðir. Jeg er einkum kunnugur í Höfnunum og veit, að vegurinn þar kemur að engum notum fyr en hann er fullgerður. Hafnamenn hafa hingað til flutt mest á sjálfum sjer, því fæstir hafa haft efni á að hafa hesta til flutninga. Nú aftur á móti, þegar vegurinn verður fullgerður, geta þeir fengið miklu ódýrari flutning á vögnum og sjer þægilegri. Virðist mjer hin brýnasta nauðsyn að flýta þessum vegi.
Símalagningarnar eru tvær. Önnur línan, frá Kiðjabergi að Borg í Grímsnesi, 8 km. langur spotti. Fjárveitinganefnd átti tal um þessa lagningu við landssímastjóra og leit hann svo á að ekkert væri henni til fyrirstöðu, þó hann hins vegar teldi ekki meiri þörf á þessari línu en mörgum öðrum. Ef hlutaðeigendur vildu bera sinn hluta af kostnaðinum væri ekkert við þessu að segja. — Hin lagningin er frá Ofanleiti í Vestmannaeyjum út í Stórhöfðavita. Þá lagningu má með rjettu kalla bjargráðaráðstöfun. Vitinn stendur syðst á Eyjunum, en fiskileitirnar liggja aðallega þar suður af. Það kemur einatt fyrir, að vjelbátar lenda þar í sjávarnauðum, og er þá miklu hægra að sjá hvað slíkum bátum líður af Stórhöfðanum en frá prestssetrinu. En það kemur ekki að fullu gagni, nema hægt sje að síma athuganirnar jafnóðum niður í kaupstað. Jeg hygg því, að sú símalína þurfi ekki frekari meðmæla við.
Þá er 2000 króna launaviðbót handa hinum smærri vitavörðum, sem engrar dýrtíðaruppbótar hafa notið. Sú tillaga á rót sína að rekja til þess, að vitamálastjóri tjáði nefndinni að þessir menn myndu ef til vill segja starfi sínu lausu ef þeir fengju ekki nokkra aukaþóknun Nefndinni skildist, að ekki yrði gott til ráða, ef þessir vitaverðir segðu af sjer því svo er um marga smávitana, að þeirra er ekki hægt að gæta nema frá næstu stöðum. Leggur nefndin því til að þessi 2000 kr. aukaþóknun verði samþykt.
Að því er snertir styrkveitingar, er nefndin ber fram, vísa jeg til nál.
Brtt. hefir komið fram frá háttv. þm. Snæf. (H. St.) um dýrtíðaruppbót handa dýralæknum. Tillagan er komin fram eftir að nefndin lauk störfum og hefir hún ekki getað átt fund um hana. Eru því nefndarmenn óbundnir gagnvart þessari brtt. Hins vegar vildi nefndin ekki taka upp þessa till., þar sem þessir læknar eru ekki bundnir við neinn taxta, eins og aðrir læknar. Öðrum læknum var veitt uppbót af aukatekjum þeirra vegna þess, að taxti þeirra þótti lágr en menn vildu hins vegar ekki hækka hann.
Jeg sje ekki ástæðu til að tefja deildina með lengri ræðu, en vona að hún taki brtt. fjárveitinganefndar vel.