28.08.1919
Neðri deild: 48. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 61 í B-deild Alþingistíðinda. (8)
1. mál, fjárlög 1920 og 1921
Fjármálaráðherra (S. E.):
Jeg skal ekki fara að deila við háttv. framsm. (M. G.) um einstök atriði málsins; þar er svo margt í óvissu, að ekki er gott að fullyrða neitt.
Að því er snertir skattana, þá hefir stjórnin áætlað þá 750 þús. kr. Þar er gengið út frá að fiskist 150 þús. tunnur af síld, og mun það varlega áætlað. Jeg hygg, að það sje undir meðaltali af því, sem fiskast hefir undanfarin ár. Auk þess hefir þingið bætt við ýmsum nýjum tekjuliðum, og er ekki hátt farið að gera það 100 þús. kr.
Viðvíkjandi skipunum, þá held jeg, að þar hafi jeg farið rjett með, að varla mundi mögulegt, eins og nú standa sakir, að selja þau með bókskráðu verði, sem er 3.081.130,00 kr.
Um landsverslunina má altaf deila. En jeg held, að það sje eins varlega farið, að telja ekki þessa 1 milj. kr. nú þegar.
Jeg sje svo ekki ástæðu til að segja meira nú. Háttv. framsm. (M. G.) lítur eins á aðalatriði þessa máls og jeg. Og það skiftir langmestu máli.