04.09.1919
Neðri deild: 55. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 268 í B-deild Alþingistíðinda. (81)
1. mál, fjárlög 1920 og 1921
Atvinnumálaráðherra (S. J.):
Það er ekki fyrir það sjeð, hvað teygjast kann úr þessum umr. Öll meðferð fjárlaganna hefir verið hæg og vafningamikil. Þau voru óvenjulega lengi í nefnd, og eru nú ákaflega mikið rædd, enda skal vel vanda það sem lengi á að standa. Jeg segi þetta ekki til að ámæla nefndinni; hún hefir reynt að vinna verk sitt vel. Jeg vil ekki tefja málið og ætla því að eins að minnast á örfá atriði.
Jeg ætla þá fyrst að snúa mjer að brtt. á þgskj. 86, um lýðskólana. Hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) leggur það til að minka styrkinn til nafngreindu skólanna, svo að meira verði eftir handa þeim ónafngreindu. Jeg hefi haft mikil kynni af unglingaskólum um æfina, og get því borið um hvað mikið gagn þeir gera, þó að eigi sjeu það fastir skólar. Föstu skólarnir eru svo fáir og litlir, að þeir geta ekki tekið á móti öllum þeim, sem þangað vilja leita. Þeir eru líka svo dýrir, standa svo langan tíma, að mörgum fátækun., en fróðleiksfúsum, alþýðuunglingi er um megn að njóta þeirra. Það er af þessari þörf, að unglingaskólarnir hafa risið upp, og hafa þeir haft góð áhrif og aukið mentun og framsóknarhug æskulýðsins. Margir þessara skóla starfa stuttan tíma, sumir innan við 3 mánuði, en eru þó engu síður þarfir en hinir. Þeir eru hentugir handa þeim, sem ekki hafa tíma, ráð eða hæg heimatök að fara á skólana, sem lengra eru í burtu og standa lengri tíma.
Því hefir verið haldið fram, að heimafræðslan væri hollust og haldbest. Því er nú svo komið, að henni verður ekki komið við, eins og högum manna er háttað nú. En í stað hennar ættu þessir unglingaskólar að koma. Þeir eru oft litlir, taka fáa nemendur, og fáir ungir fróðleiksfúsir menn koma þarna saman og mynda nokkurskonar heimili. Þar er hægt að hafa fjelagslíf og einlægari umgengni en hægt er að koma við á hinum stærri skólum. En þeir sem til þekkja, geta víst orðið sammála um það, að þetta hafi ekki minni þroska og mentun í för með sjer en námsgreinarnar, sem kendar eru. Ef mönnum er alvara með það að auka fræðslu æskulýðsins, þá ætti að styrkja þessa skóla.
Jeg held, að það hafi verið háttv. þm. V.-Sk. (G. Sv.). sem tók það fram, að ekki væri kunnugt um, að þessir skólar hefðu fastar reglugerðir eða sendu skýrslur um starfsemi sína. Jeg skal í þessu sambandi benda á það, að skólarnir fá ekki styrk. nema þeir hafi hvorttveggja, enda mun svo vera um flesta. Viðvíkjandi brtt. hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) vildi jeg skjóta því til hans, að taka till, aftur og hækka allan styrkinn, svo að þeir ónafngreindu fái hærri styrk, án þess að draga af hinum. Af þessum 25,000 kr. styrk fá þeir ónafngreindu 8.800 kr., og er það alt of lítið, en hins vegar komast hinir ekki af með minna en það, sem þeim er ætlað. Þó að styrkurinn væri ekki hækkaður nema upp í 10.000 kr., þá væri bót að því, og býst jeg ekki við, að nefndin legðist á móti því; að minsta kosti gat jeg ekki heyrt slíkt á hv. frsm. (M. P.).
Þá er brtt. um Búnaðarfjelag Íslands að styrkur til þess hækki úr 60,000 upp í 180,000. eða þrefaldist. Þetta er einhver mesta hækkunin í fjárlögunum, en því hefir ekki verið á móti mælt, að styrkurinn sje í raun og veru ekki meiri en áður; þetta sje að eins fyrir verðfalli peninganna. Stjórn fjelagsins sótti um meiri styrk, en hvorki stjórnin nje nefndin hafa sjeð sjer fært að verða við því. Í stjórn fjelagsins eru nú nýir menn, sem vilja fara að starfa og framkvæma meira en áður var og verður svo oft um nýjar stjórnir. Nú verður bráðlega skipuð ný landsstjórn og ef henni verður líkt farið þá má ætla, að þessar tvær stjórnir fallist í faðma að framkvæmd og dugnaði. Jeg ætla ekki að segja neitt um það, en ekki þykir mjer ólíklegt, að till. komi fram um að hækka þennan styrk.
Þá er till. um uppbót til Miklavatnsmýrarinnar. Það hefir margt farið á milli atvinnurekendanna og stjórnarinnar og sá stjórnin sjer ekki fært að veita þessa uppbót án samþykkis þingsins, en mjer finst sanngjarnt, að hún sje veitt. Sama get jeg sagt um uppbótina til Jakobs Björnssonar. Hún er búin að koma hingað svo oft og þykir mjer rjett að verða nú við henni.
Þá vil jeg minnast á brtt. á þgskj. 617. frá hv. 1. þm. Árn. (S. S.), að veita Jóni Guðmundssyni utanfararstyrk til að fullkomna sig í ostagerð. Jeg vona, að hv. deild samþykki till. þessa. Hjer er um það að ræða að ryðja nýja braut í landbúnaðinum, eða einni grein hans. Maður þessi mun fyrir nokkru hafa fengið lítils háttar styrk hjá Búnaðarfjelagi Íslands, til að kynna sjer ostagerð erlendis. Gerði hann það fyrst á Norðurlöndum, en fór síðan til Frakklands og kom sjer þar í vinnu hjá fjelagi, sem bjó til Rochefortost. Lærði hann þar svo mikið í ostagerð þessari, að þegar heim kom, rjeðist hann í að fara að búa til osta þessa. Hefir það þegar verið tekið fram, hvernig tilraunin hepnaðist. Með frábærum dugnaði og þrautseigju hefir maðurinn ráðist í þetta fyrirtæki og hepnast það prýðisvel. Nú vill hann kynna sjer enn betur ostagerð, bæði á Norðurlöndum, í Hollandi, og þó einkum í Frakklandi. Hjer er, eins og við vitum, mikið hægt að fá af sauðamjólk, og væri mikils um vert, ef mönnum lærðist að gera úr henni jafngóða og dýra vöru sem Rochefortostur er.
Jeg hefi ekki orðið var við, að tillögur um styrkveitingar til utanferða til listanáms og vísinda hafi sætt verulegri mótspyrnu í þessari hv. deild; og eigi mun jeg heldur leggja á móti, að þær fái framkvæmd, hvorki með orðum hjer nje með atkvæði mínu í hv. Ed. Og þá mun jeg því síður leggjast móti því, að efnilegum mönnum sje veittur styrkur til utanfarar, til að frama sig og fullkomna í einni eða annari atvinnugrein; og af því hlýt jeg að vera meðmæltur þessari styrkveitingu.
Jeg man ekki til, að hv. frsm. (B. J.) mintist á tillögu þessa, og er það líklega af því, að fjárveitinganefnd hafi enn eigi tekið afstöðu til hennar, en jeg vona, að hún síðar veiti henni meðmæli sín.