06.09.1919
Neðri deild: 57. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1071 í B-deild Alþingistíðinda. (863)

40. mál, skipun barnakennara og laun þeirra

Pjetur Ottesen:

Jeg get ekki komist hjá að minnast á nokkur atriði í máli þessu aftur. Mjer hafði síst dottið í hug að jafnhógværar athugasemdir og þær sem jeg gerði í gær um málið, mundu hleypa slíkri ólgu í blóð hv. frsm. (Þorst. J.), sem raun varð á. Mjer þótti sem háttv. þm. (Þorst. J.) vildi sýna, að hann talaði í þessu máli sem sá, er valdið hefði og viskuna, og ekki gleymdi hann að láta vita, að hann væri maður með kennaraprófi. Mjer þótti það ekki hafa verið rjett gert að ganga fram hjá mentamálanefnd með mál þetta, sem beint sýndist heyra undir hana; og mjer þótti það undarlegt, hvílíkt kapp var lagt á að koma því til launamálanefndar, og það ekki síst af háttv. frsm. (Þorst. J.), þar sem þó er í frv. um svo mikilvægt mál að ræða sem skipun kennara jafnframt launaspursmálinu. Það sjest og ljóslega, að launamálanefnd muni ekki hafa haft mikla samvinnu við mentamálanefnd, sem var þó áreiðanlega tilætlun sumra hverra, sem greiddu atkvæði með því, að frv. færi í launanefndina, þar sem nú er nýkomin tillaga frá mentamálanefnd um að endurskoða alt skipulag alþýðufræðslu frá rótum: því að sú niðurstaða sem við þá endurskoðun kemur fram, getur hæglega komið í bág við ákvæðin um skipun kennara í frv. þessu.

Háttv. frsm. (Þorst. J.) vildi gera lítið úr því, að bagalegt gæti orðið að bægja öllum öðrum frá barnakenslu en mönnum með kennaraprófi, hvað vel mentaðir sem þeir kynnu að vera. Hann vildi halda því fram, að engir aðrir en úrkast mentamanna mundu gefa sig fram til þeirrar kenslu. Það kann að vera eitthvað til í þessu, á meðan launakjör barnakennara eru eins og þau eru nú alment; þó hafa sumar skólanefndir launað kennurum mun betur en lög mæla fyrir. En ef launakjör barnakennara batna, eins og frv. þetta gerir ráð fyrir, þá fer fullyrðingin að verða hæpin, og hún var hæpin hvort sem var, því að sumir menn eru svo gerðir, að þeir horfa ekki í að gefa sig við barnakenslu, þótt fyrirsjáanlegt sje, að þeir geti haft meira upp úr öðru; mætur á börnum, áhugi á kenslumálum og fleira knýr þá til þess. Suma þessa menn, eða flesta, er að líkindum meiri skaði að missa frá kenslustarfi en ýmsa, sem kennarapróf hafa tekið, þótt hins vegar sje nauðsynlegt að gera þær kröfur til kennara, að þeir hafi aflað sjer þeirrar undirstöðuþekkingar, sem útheimtist til að geta leyst kennarastarfið sæmilega af hendi.

Áður fyrri var það algengt, að prestar tækju þátt í uppfræðslu barna, og er það síst að efa, að það hafi komið að liði. Mentun þeirra til prestsskapar hefir því reynst fullnægjandi einnig til þeirra starfa.

Að það sje rjett hjá háttvirtum frsm. (Þorst. J.), að kennarapróf sje gert að skyldu á öllum Norðurlöndum, skal jeg ekki efast um.

En hitt getur verið álitamál, hvort alþýðumentun þeirra er nokkru betri en okkar.

En tæplega verður því neitað, að það skyti nokkuð skökku við, ef kennarar við kennaraskólann eiga ekki að teljast hlutgengir í barnakennarastöðu. Þeir, sem hafa á hendi að kenna barnakennurum og búa þá undir starf sitt, geta sjálfir ekki komist að barnaskólunum.

Ekki veit jeg til, að þeir menn, sem nú kenna við kennaraskólann, sem bæði eru guðfræðingar og háskólamenn, hafi tekið kennarapróf, og munu þeir þó vel færir til að undirbúa menn til kenslu.

Þá má líka benda á það, að bæði söng- og teiknikennarar eiga eftir þessu ekki að vera hlutgengir til að kenna sínar greinar, ef þeir hafa ekki kennarapróf. Það getur þó engum dulist, að margir þeirra manna hafa notið betri undirbúnings í sinni kenslugrein en völ er á í kennaraskólanum. En þetta á nú auðvitað frekar við stóru skólana í kaupstöðum, þar sem kenslunni er skift milli margra manna. En það er sama, lögin ná líka yfir þá skóla.

Jeg held því, þegar háttv. frsm. (Þorst. J.) gefur í skyn, að jeg hafi ekki athugað þetta mál nógu rækilega, að þá hafi jeg talsverða átyllu til að beina sömu aðdróttun að honum.

Það er auðvitað, að ef taka á lögin bókstaflega, eins og hver önnur lög, þá hafa þessir menn, sem jeg mintist á, engan rjett til kennarastöðu.

En ef veita á eilífar undanþágur og undantekningar, þá eru lögin að eins pappírslög og einskisnýt.

Þá mintist háttv. þm. (Þorst. J.) á skóla- og fræðslunefndir og taldi þær bæði þekkingarsnauðar, áhugalausar og að þær hefðu enga dómgreind. (Þorst. J.: Þetta er ekki rjett eftir haft). Jú, það er alveg rjett, og hv. frsm. (Þorst. J.) færði þessu til sönnunar orð úr einhverju „dokumenti“, sem komist hefir inn í Alþingistíðindin, frá fræðslumálastjóranum.

Annars lítur út fyrir, að þetta „dokument“ sje orðið nokkurskonar gimsteinn í íslenskum skólamentum, þar sem það er lesið upp á hverju þingi.

Það var lesið upp á þinginu í fyrra, og það er lesið upp nú, og á sjálfsagt eftir að verða lesið upp mörgum sinnum í framtíðinni.

Annars held jeg, að þessi ályktun sje töluvert hæpin, þó finna megi ef til vill einstök dæmi þessa, en það er hin mesta fjarstæða og herfilegasti sleggjudómur að álykta það út af þessu, að ástandið sje svona yfirleitt.

Þetta átti nú að vera sönnun þess, að engin meining væri í því að hafa veitingavaldið í höndum þessara manna. En jeg hygg nú, að engar skýrslur hafi komið um það, hvernig því valdi hefir verið beitt á hinum hærri stöðum.

Það hefði þó verið rjett að láta eitthvað koma fram um það um leið. Það hefir að minsta kosti verið deilt um það, á hvern hátt fræðslumálastjórinn hafi komist í sitt embætti, þar sem það var alt annar maður, sem lagt hafði grundvöllinn undir það fræðslumálakerfi, sem nú er, og mun hann því ekki hafa verið neitt síðri í þetta embætti. En út í þá sálma skal jeg ekki fara frekar.

Það er því ekki neitt víst, að betri trygging fáist með því, að veitingavaldið hverfi í hendur stjórnarinnar, eða öllu heldur fræðslumálastjórans, eins og reyndin verður, þar sem stjórnin verður nokkurskonar skósveinn hans, sem skrifar undir og samþ. tillögur hans.

Um skriffinskuna þarf ekki að deila. Hv. frsm. (Þorst. J.) hlýtur að kannast við það, að þessu fylgir óskapleg skriffinska. Og trúað gæti jeg því, að fljótlega þætti ástæða til þess að bæta talsverðum starfskröftum við í stjórnarráðinu, til að annast öll þau brjefaskifti og skriftir sem þessu mundu fylgja.

En það er önnur hætta, sem felst í þessu, að taka veitingavaldið af fræðslu- og skólanefndum.

Það er nú svo komið, að miklu minni rækt er lögð við heimilisfræðslu en áður var. Hún hefir þó fram að þessu verið einn sterkasti þátturinn í menningu landsins. En heimilin hafa varpað áhyggjum sínum upp á skólana og borið traust til þeirra. Um hitt er ekkert með því sagt, hvort þeir hafa reynst þess trausts verðir eða ekki.

En nú er það nauðsynlegt, að góð samvinna eigi sjer stað milli skólanna og heimilanna. Annars verður öll fræðslan eins og rótlaust trje.

En með þessu, að taka öll ráð og allar áhyggjur af skóla- og fræðslunefndum, er einmitt gengið lengra á þeirri braut, að draga úr heimilisfræðslunni, og það er jeg sannfærður um, að það getur haft meiri hættu í för með sjer en hægt er að gera sjer grein fyrir í fljótu bili.

Háttv. frsm. (Þorst. J.) sagði, að áhuganum fyrir alþýðumentun hefði stórhrakað á síðustu árum, en það á einmitt rót sína að rekja til þess, að heimilisfræðslan hefir lagst niður.

Jeg vil minna á það, að þótt menn hafi verið á kennaraskólanum og lokið prófi þaðan, þá getur það verið varhugavert að trúa of mikið á þá eða próf þeirra. Jeg hygg, að sama megi segja um það og háttv. frsm. (Þorst. J.) sagði í gær um þessa oftrú á „homöopata“.

Þar slæðast auðvitað inn misjafnir menn, eins og annarsstaðar, enda hafa menn oft keypt köttinn í sekknum í vali þeirra.

Það er því engan veginn víst, að allir þeir, sem gengið hafa á kennaraskólann, sjeu kennarar af guðs náð, eins og háttv. frsm. (Þorst. J.) hjelt fram.

(Þorst. J.: Jeg hefi aldrei haldið því fram). Það getur nú rjett verið, því farið er að skefla yfir þetta, og háttv. frsm. (Þorst. J.) var svo mikið niðri fyrir, þegar hann var að halda ræðu sína, að vel getur verið, að jeg hafi ruglast í einhverju af því, sem hann sagði.

En hvað sem því líður, þá hygg jeg, að ef breyting þessi nær fram að ganga og veitingavaldið tekið af fræðslu- og skólanefndum og fengið í hendur stjórnarráðsins eða fræðslumálastjórans, þá geti það orðið rothögg á alþýðumentun hjá okkur. Jeg veit, að háttv. frsm. (Þorst. J.) lítur öðruvísi á. Og ef til vill verður það eina ráðið til að sannfæra hann um það rjetta, að framkvæma þessar breytingar. En hræddur er jeg um, að sú reynsla hans geti orðið dýrkeypt.

Þá mintist háttv. frsm. (Þorst. J.) á, að jeg hefði haldið því fram, að of mikið væri að ákveða 6 mánaða kenslu í fræðsluhjeruðunum, eins og gert er í lögum þessum.

Jeg sagði ekkert um það, en spurði að eins, á hverju það væri bygt, þar sem ekkert slíkt ákvæði er í fræðslulögunum.

Jeg spurði enn fremur að því, hvort laun þau, sem hjer eru, ættu að haldast óbreytt, þótt kent væri á skemri tíma.

Jeg sagði heldur ekkert um það, að launin væru of há, jeg fór ekki einu sinni út í þann kafla laganna; að eins mintist jeg á mismuninn, sem gerður er á farkennurum og kennurum við fasta barnaskóla.

Að lokum mintist háttv. frsm. (Þorst. J.) á það, að hrepps- eða sveitarfjelög gætu slegið sjer saman um kensluna. Því hefir líka verið haldið fram af fræðslumálastjóranum.

En það er víðast hvar mjög miklum annmörkum bundið, og er því ekki til neins að vísa til þess, þar sem það mun víða reynast ógerningur, að minsta kosti meðan ekki er komið upp heimavistaskólum í sveitum. Þetta sýnir bara ókunnugleik þessara háu herra á þessu atriði.

Skal jeg svo ekki fara lengra út í þetta mál að sinni.