04.09.1919
Neðri deild: 55. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 286 í B-deild Alþingistíðinda. (87)

1. mál, fjárlög 1920 og 1921

Frsm. fjárveitinganefndar (Bjarn Jónsson):

Jeg skal reyna að vera sem stuttorðastur og forðast að ýfa mjög reiði manna. En af því að minsta kosti tveir hv. þm. hafa minst á háskólasjóðinn, og það með nokkrum misskilningi á tilætluninni með honum, verð jeg að minnast lítið eitt á það atriði.

Þeir virðast líta svo á, að nema eigi burt úr fjárlögunum ýms þau útgjöld til háskólans, sem áður hafa verið, því renturnar af sjóðnum eigi að koma í staðinn. Gefa þeir í skyn, að stjórnin hafi ekki vitað, hvernig verja ætti rentunum af sjóðnum, þegar hún samdi fjárlagafrv., og þess vegna sje eigi gert þar ráð fyrir námsstyrk og fleiri gjöldum til háskólans, sem eigi að vera þar. En jeg hefi nú fyrir mjer gerðabók háskólans, og samkvæmt fundargerð háskólaráðsins 7. júní síðastl. samdi háskólaráðið reglugerð um, hvernig verja skyldi rentunum af sjóðnum, og sendi síðan landsstjórninni skýrslu um það, og um hverjir stafliðir háskólaráðið ætlaðist til að fjelli úr fjárlögunum. Stjórnin vissi því fullkomlega hver var vilji háskólans.

Samkvæmt áætlun háskólaráðsins, sem jeg hefi hjer bókaða fyrir framan mig í fundargerðinni, eru tekjurnar áætlaðar 48.000 krónur, og skal verja þeim þannig: Til aukningar sjóðnum kr. 9.600

Til eflingar sambandi Íslands og

Danmerkur — 4,000

Til vísindarannsókna og safna

og rannsóknarstofu háskólans — 14.800

Bókakaup háskólans — 4.000

Til útgáfu kenslubóka — 3,000

Utanfararstyrkur háskólakenn-

ara — 4,000

Utanfararstyrkur kandídata .. — 6,000

Til stúdentaheimilis, vísir bygg-

ingarsjóðs — 2,000

Ýms útgjöld — 600

Samtals kr. 48,000

Hjer er eins og menn sjá, svo langt frá því nokkursstaðar, að um svo mikið sem námstyrk til stúdenta geti verið að ræða. Enda var aldrei sú tilætlunin með sjóðnum, að stytta með honum fjárlögin. Sjóðurinn er til þess að gera háskólanum dálítið færara en áður að vera vísindastofnun.

Þetta hafa kennarar skólans líka skilið svo og ætlast til, að 20% af rentunum fari til að auka sjóðinn. Þá eru eftir 39,000 kr., sem ætlast er til að gangi til nauðsynlegra fyrirtækja í sambandi við skólann, og ef menn athuga liðina, sjá menn, að enginn einasti þeirra má missast, og allir eru þeir of lágir. Jeg held því hyggilegast fyrir hv. deildarmenn að hætta að ræða um þetta atriði, en samþykkja þennan lið fjárlaganna, sem jeg nefndi, orðalaust.

Svo er rjett að fara yfir brtt. þær, sem fram hafa komið og nefndin hefir haft til yfirlits.

Jeg hafði áður lýst því yfir, að jeg væri á móti brtt. þeirra þm. Borgf. (P. O.) og 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) um lýðskólana. En svo vil jeg minnast á brtt. á þgskj. 610, frá þm. Borgf. (P. O.), um að styrkurinn til Bræðrasjóðs mentaskólans falli niður. Einhver annar ljet þess getið, að þessi liður mundi vera kominn af misskilningi inn í fjárlögin. En það er ekki rjett. Sjóður þessi hefir verið einn af nytjamestu sjóðstofnunum landsins. Úr honum hafa ungir, efnilegir, en fátækir námsmenn oft fengið góða hjálp, og honum hefir altaf verið útbýtt með „caritas sapientis“. Annars er sjóður þessi stofnaður upphaflega af andvirði báts, sem skólapiltar Bessastaðaskóla áttu, en seldu þegar skólinu fluttist til Reykjavíkur. Síðan hefir sjóðurinn notið gjafa og styrks góðra manna. Þegar jeg var í skóla, varð bæði mjer og öðrum mikil hjálp að þeim styrk, sem þessi sjóður veitti, og þær fjárveitingar, sem til hans hafa gengið, hafa aldrei orðið landinu til skaða.

En þar sem þingið hefir algerlega kipt að sjer hendinni með námstyrkinn til lærða skólans, væri fremur ástæða til, að það ljeti þetta af mörkum í Bræðrasjóðinn. Og ef þingið hjeldi áfram að styrkja þennan sjóð, mundi hann bráðlega verða svo stór, að það gæti hætt með góðri samvisku, að styrkja hann. Jeg hygg, að þetta sje einhver allra sjálfsagðasti og viturlegasti liðurinn í fjárlögunum, og vildi jeg, að menn sýndu við atkgr., að þeir skildu, hvað þeir væru að gera.

Þá er brtt. á þgskj. 619, frá 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.), sem er athugasemd aftan við styrkaukann til Bókmentafjelagsins. Meiri hluti nefndarinnar hefir fallist á þessa till. En mjer finst varla rjett að láta þessa athugasemd fylgja, því að þótt tillagið hafi verið ofurlítið hækkað, þá er ekkert útlit fyrir, að fjelagið geti gefið út meira af ritum en að undanförnu, sakir dýrleika. sem öll bókaútgáfa hefir nú í för með sjer. Þetta er ekki heldur styrkauki, heldur að eins ljeleg uppbót á styrk. Jeg skal ekki mótmæla meiri hluta nefndarinnar, vildi lýsa yfir því, frá mínu sjónarmiði, að jeg tel þessa athugasemd óþarfa. Hún er einskisnýt, því fjelaginu er ókleift að gefa út meira en það hefir gert að undanförnu. þrátt fyrir þessa litlu uppbót.

Þá er brtt. á þgskj. 614, frá 1. þm. Árn. (S. S.). Nefndin hefir athugað þær og lagst á móti þeim öllum og hefir hv. þm. S.-Þ. (P. J.) minst á þær áður. Önnur brtt. fer fram á 25 þús. kr. hvort árið til vatnsveitu. Nefndin var í sjálfu sjer ekki á móti því að veita þetta fje, ef málið hefði verið eitthvað undirbúið. En hún vildi ekki snara 50 þús. kr. óákveðið út í loftið, án rannsókna og útreikninga. En þessari beiðni verður vel tekið, þegar fenginn er nægur undirbúningur.

Þá er brtt. á þgskj. 617 frá sama þm., um utanfararstyrk til Jóns Guðmundssonar, ostagerðarmanns. Nefndin átti tal um þennan lið, og eru atkv. nefndarmanna þar óbundin. Jeg vil ekki blanda mjer inn í deilu lærðra manna um þessi efni, en vildi að eins geta þess, að þótt þessi maður hafi einhvern veginn komist upp á að búa til gráðaost, þá hafi hann ekki þar með lært að búa til alla osta.

Hið sama er að segja um brtt. á þgskj. 598, frá sama þm. Nefndarmenn hafa þar óbundin atkv. Þótt jeg sje sammála till.-manni um, að bókin þurfi að koma út, vildi jeg benda honum á, að þetta er líkt og þegar tófan bauð storkinum heim og gaf honum að eta af grunnum diski. Storkurinn náði engu af matnum, en hann galt tófunni líku líkt, með því að bera henni mat í flösku. Það er dálítið svipað að gefa út dýralækningabók, fyrir 50 kr. styrk á örkina. Till.-maður ætti að taka till. út af dagskrá og gera hana betur úr garði fyrir 3. umr.

Nefndin hefir ekki heldur sjeð sjer fært að mæla með brtt. á þgskj. 611, frá háttv. þm. Borgf. (P. O.).

Hins vegar hefir nefndin getað fallist á brtt. á þgskj. 620, frá hv. þm. Barð. (H. K.), um lán til raforku í Patrekshreppi. Í till. stendur „rafveitu“, en þetta er skakt; raf er fastur hlutur, og er því ekki veitt, heldur raforkunni. Nefndinni virtist síðari liður till. vera sjálfsagður. Þarna stendur svo sjerstaklega á vegna tálmana, sem stríðið hefir haft í för með sjer.

Jeg gleymdi að geta þess síðast að nefndin hefir tekið upp lítils háttar styrk til ekkju Guðmundar Hjaltasonar, og vænti jeg að deildin taki því vel; því að ekki er til neins að vísa til hreppsins; því fylgir smán og skömm og missir almennra mannrjettinda.

Þá hefir nefndin gert þá breytingu á 21. gr. 6. að landsstjórninni skuli heimilt að ábyrgjast alt að 300,000 kr. lán til Hólshrepps í Ísafjarðarsýslu, og alt að 100.000 kr. til Búðahrepps í Suður-Múlasýslu, hvorttveggja til raforkuveitu. Heimildin er bundin því skilyrði, að stjórnin hafi vissu um það, að fyrirtækin beri sig, og að sveitarfjelög þessi sjeu fær um að standa straum af þeim. Stjórnin verður því að vanda til rannsóknanna og gæta þess vandlega, að skilyrðunum sje fullnægt.

Háttv. 1. þm. Árn. (S. S.) vildi ekki fallast á að búnaðarfjelagsskrifstofan væri skrifstofa stjórnarráðsins. Þetta er þó svo, og þeir sem þar vinna, eru embættismenn landsins, og þar á meðal hann sjálfur.

Um þennan nafnfræga Gvend Faust, sem var kunnastur þeirra manna. er hjer voru nefndir í gær, skal jeg ekki fjölyrða.

Um íslensk-íslensku orðabókina vildi jeg segja örfá orð. Það er einkennilegt, að þingið vill veita styrk til allra þeirra orðabóka, sem styrks hafa beiðst, nema til þessarar af því að hún er íslensk-íslensk. Á hinum orðabókunum þurfa menn þó ekki að halda daglega, en íslensk-íslenska orðabók þarf hver maður að eiga. Það er satt að það þarf mörg ár til þess að vinna verkið. En það skal líka vel vanda sem lengi á að standa og stórvirki verður ekki unnið í flughasti, nema það sje illa unnið. Og það er kynleg ástæða, að verkið geti beðið af því að það taki langan tíma. Því fyr, sem byrjað er á því, því fyr verður því lokið. Og svo eru menn að vitna í Finn Jónsson. Jeg hefi sjeð mjer til mikillar undrunar, að hann vill að orðabókinni sje tvískift eða látin byrja á 15 öld. Jeg hygg, að lærdómur okkar, hvers sem er nægi til að sjá, að þetta er vitleysa. því að nútíðarmálið er eitt og sama málið og hjer var talað í fornöld. Við getum tekið hverja nútíðarbók sem er og borið hana saman við bók frá ritöldinni, og við munum komast að raun um, að orðin eru hin sömu í báðum en einstaka orðmyndir dálítið breyttar. Það væri þess vegna ekkert sparað, þó að ritöldinni væri slept, því að öll fornu orðin eru til enn þann dag í dag að undanskildum 100–200 orðum úr Eddumáli, sem ekki hafa verið notuð í bókmáli síðari tíma. Hvað græðist þá á að sleppa fornöldinni? Saga orðanna missist, og það verður ekki hægt að heimfæra þau undir gullöld og ritöld vora. Það væri undarleg hagsýni að sleppa úr fornöldinni, þar sem þessi kafli bókmentanna er langmest unninn, því að vjer eigum margar orðabækur yfir forna málið. Þetta getur hver athugað og sagt sjer sjálfur, sem vill. Það er miklu vitlegra en að hlaupa eftir því, sem sagt er í blaðagreinum. Jeg veit ekki, af hverju Finni Jónssyni hefir yfirsjest svona hrapallega.

Í annan stað hafa menn vitnað hjer til Sigurðar Nordals um það, að bókin mætti bíða. Jeg hefi aldrei sjeð eða heyrt eitt orð frá honum í þá átt, og hefi jeg þó setið með honum á fundum og talað við hann um bókina. Menn hljóta því að hafa tekið rangt eftir, eða þeir fara þá eftir einhverjum heimildum sem jeg hefi ekki sjeð og furðar mig þó á því því að við sátum báðir á fundi þegar þetta mál var rætt í háskólanum í vetur. (S. S.: Fjellu þá atkvæðin öll á einu veg?). Það voru allir sammála um, að verkinu skyldi haldið fram. Ef einhverjar mismunandi skoðanir komu fram, þá snertu þær alt önnur atriði, sem hjer koma ekki til greina.

Þá skal jeg minnast á Skólablaðið. Hv. 1. þm. Árn. (S. S.) taldi viðsjárvert að styrkja þetta blað, af því að með því væri gengið inn á ískyggilega braut. Bjóst hann við, að hvert stjórnmálablaðið mundi koma á fætur öðru svo sem Tíminn, Ísafold og Frón, og heimta samskonar styrk. Þm. ætti þó að vita að Búnaðarritið er gefið út á landssjóðs kostnað, sömuleiðis Ægir sem fiskifjelagið gefur út, og fær meira að segja sjerstakan styrk til þess að gefa blaðið út. En svo á það að vera að leggja inn á hættulega braut, að styrkja blað, sem fjallar um kenslu- og uppeldismál! Jeg vona, að þvílíkar fjarstæður vinni ekki tiltrú nokkurs manns.

Hæstv. forsætisráðh. (J. M.) sagði ýmislegt um háskólann og fjárlagafrv. Því hefir nú verið svarað, og skal jeg ekki endurtaka þau rök aftur. En ef menn vilja þreyta þetta mál frekar, þá situr sjálfur háskólastjórinn hjerna og hann mun telja sjer skylt að halda uppi svörum fyrir skólann.

Þá er styrkur til Jónmundar Halldórssonar. Hæstv. forsætisráðh. (J. M.) talaði heldur á móti þessari styrkveitingu, en var þó ekki strangur. Háttv. þm. N.-Ísf. (S. St.) hefir nú svarað honum, svo að jeg þarf ekki að fjölyrða um þetta atriði frekar.

Þá er skólalóðin. Jeg gleymdi að geta þess, að nefndinni þykir það engin umbót, þó að steinsteypa sje gerð í kringum húsið. Það er kunnugt, að vatn festir á steinsteypu og það mundi ekki verða til neinna bóta fyrir skólapilta að spyrna knetti eða glíma á steinsteypu. Það er víst aldrei svo blautt á blettinum, að piltar geti ekki verið þar að leikum. Enda sje jeg ekki betur en nauðsyn beri til að stækka skólann áður en langt um líður og gera þar húsagarð með íbúð, og er þá tvíverknaður í að rífa aftur upp steinsteypuna. Jeg vona, að þess verði ekki lengi að bíða, að þingið leggi fje fram til breytinga á skólanum. Það er algerlega ótækt, að nemendur þurfi að hírast í herbergiskytru, í kulda og illu lofti, úti í bæ, í stað þess að búa í skólanum og hafa þau andlegu viðskifti sem þektust á minni skólatíð og bundu okkur traustari böndum en hugsanlegt er um menn, sem varla þekkjast, eins og nú á sjer stað um skólapilta.

Jeg hefi líka talað um styrkinn til Pjeturs Guðmundssonar. Hæstv. forsætisráðh. (J. M.) talaði um, að það væri skylda þeirrar sveitar, sem hann hefir unnið fyrir, að hlaupa undir bagga með honum. Þetta má til sanns vegar færa. En nefndin vildi forða góðum kennara frá að flýja á náðir sveitarinnar, í þeirri von, að einhver sæi hvort það ætti að varða rjettinda- og ærumissi að verða fátækur. Það er vitanlegt, að gjöldin í 18. gr. hækka öll þau árin, sem slík rangindi eru í lögum höfð, sem samþ. voru í stjórnarskrárfrv. síðast.

Þá verð jeg að mótmæla skoðun hæstv. forsætisráðh. (J. M.) um verðlaun fyrir listaverk. Þetta er hluti af listamannastyrknum, sem er einskonar loforð um verðlaun. Það er ekki ætlast til, að þetta sje borgað út á hverju ári, heldur að eins þegar slík verk koma út, sem eru verðlauna verð. Mjer heyrðist á hæstv. forsætisráðh., að styrkurinn mundi verða veittur, þó að um ljeleg verk væri að ræða. En þetta er ástæðulaus ótti. Þeir, sem skipaðir eru í nefndina, veita verðlaunin, og þeir munu ekki gera sjálfum sjer þá skömm að veita verðlaun fyrir ljeleg verk, því að þeir vita, að verkin koma fyrir almenningssjónir. Það er engin ástæða til að óttast, að þeir dæmi öðrum verðlaun en þeim, sem eiga þau skilin. Það má ekki jafna þessu við „Grand prix“. Því að það er ekkert kynlegt, þó að þau sjeu veitt á hverju ári. En það þarf samt ekki að eiga sjer stað hjer á landi. Enda hefir spunnist ágæt saga þaðan af tveim gömlum málurum. Þeir komu á sýningu, en veðjuðu um það áður hvort ekki mætti villa mönnum sýn. Síðan tóku þeir kúst og bundu aftan í kýrhala og ljetu hana sletta halanum á ljereft. Og þetta þótti ágætt málverk. Það er engin furða, þó að verðlaun sjeu oftar veitt í fjölmennu landi. Annars eru verðlaunin ágæt hvatning. Dæmi upp á það er verðlaunasjóður Jóns Sigurðssonar. Eða hafa ekki öll rit, sem best hafa verið samin hjer á landi um söguleg efni á síðustu árum, fengið verðlaun úr þessum sjóði? Heiðurinn hefir knúið margan til að vinna þarft verk, sem hann hefði annars látið óunnið. Ef menn trúa ekki nefndinni, sem á að dæma um listaverkin, þá er þeim þó óhætt að trúa þessu.

Því skyldi ekki eins mega trúa nefnd til að útbýta styrk meðal listamanna. Það er svo með allar slíkar nefndir, að þær gera sig ekki seka í neinni heimsku, frekar en þær hafa gáfur til af hendi náttúrunnar. Þær vita, að þær eiga dóm þjóðarinnar yfir höfði sjer á eftir.

Þá talaði hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) um hallann á 14. gr. Og skildist mjer á honum, að hann yrði margfaldaður með 2 í launalögunum. Þetta er samkvæmt einhverri nýrri reikningsreglu sem jeg kann ekki. Þori jeg því ekkert um þetta að segja fyr en jeg hefi fengið skýringu hv. þm. á því hvaða regla þetta er. Það mun hafa verið meining hans, að hallinn í þessari grein fjárlaganna yrði helmingi meiri þegar launalögin kæmust til framkvæmda.

Um Bókmentafjelagið hefi jeg þegar talað.

Jeg ætla mjer ekki að blanda mjer inn í deilur einstakra hv. þm. eða heitingar þeirra út af því, sem mjer kemur ekki við.

En þar sem hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) ber mjer á brýn, að jeg hefði sagt, að skáldin okkar hefðu dáið af þessum styrk, sem þau hafa fengið, þá sagði jeg aldrei neitt í þá átt. Heldur sagði jeg, að nú væru sum þeirra dáin, og þyrftu ekki lengur að taka móti þessum eftirtöldu aurum, er þau hafa notið. Það er mikil eftirsjá í þessum mönnum fyrir alþjóð, og mun það sýna sig, að eftir tíminn kann að meta verk þeirra.

Þá talaði hæstv. fjármálaráðherra (S. E.) um það, að deildin vildi ekki draga úr tekjuhallanum, og mundi hann því koma með ný tekjuaukafrumvörp. Já, því ekki það. Það er ekki nema auðvitað mál, að þegar landssjóður þarf að borga meira en áður í krónutali, þá verður að sjá honum fyrir meiri tekjum að sama skapi. Það væri því langbrotaminst að hækka tekjurnar í krónutali, í hlutfalli við það, sem verðstuðullinn hefir hækkað. Það er t. d. lítið samræmi í því, að bóndi, sem nú fær 100 kr. fyrir ána, gjaldi af henni t. d. 1 kr., eins og þegar hann fjekk að eins 12 kr. fyrir hana. Mjer finst, að menn sjeu að símast í kringum sjálfa sig, þegar þeir eru altaf að stagast á verðmæti. Því það er ekki sjálft verðmæti hlutanna, sem eykst; að eins þurfum við að borga meira fyrir það sama verðmæti í krónutali. Þess vegna ætti að sníða kaupgjald og annað eftir verðlagi því, sem á hlutunum er, og breytist, eins og vakti fyrir mjer með frv. því, er jeg flutti, en menn vildu ekki sinna.

Um heimilisiðnaðinn talaði hæstv. fjármálaráðherra (S. E.) líka, og gerði heldur lítið úr. Efaðist hæstv. ráðherra um, að sá styrkur, sem veittur hefir verið undanfarin ár, hefði komið að notum. Það er auðvitað ekki hægt að gera mikið fyrir svo lítinn styrk. En þeir, sem fyrir þessu gengust, lögðu á sig mikið erfiði, og hefir enda orðið vel ágengt, svo að talsverður árangur sjest. Það á ekki að fara að stofna dýrt embætti hjer. En það er duglegur og vel hæfur kvenmaður, sem tekur þetta að sjer og á að standa fyrir framkvæmdum og er henni vel trúandi til að nýta þennan styrk sem best og ávaxta. Þetta er mjög nytsamlegt fyrirtæki, sem ætti að vera áhugamál okkar, að íslenskur heimilisiðnaður falli ekki alveg úr sögunni, því hann mun nú vera á hverfanda hveli.

Þá lagðist hæstv. fjármálaráðherra (S. E.) mjög á móti garðyrkjustjóranum, og þykir mjer, og sjálfsagt fleirum, sem eru í garðyrkjufjelaginu, það allundarlegt. Okkur fanst ekki nema sjálfsagt að borga einum manni, sem hefði á hendi garðyrkju og kendi hana öðrum, fyrir það maklega starf. Menn verða að gera sjer ljóst, og hæstv. fjármálaráðherra líka að garðyrkja er annað en jarðyrkja Búnaðarfjelagsins. Garðyrkja er ekki hvað síst stunduð í bæjum og kaupstöðum, þar sem Búnaðarfjelagið hefir ekkert að gera. Hins vegar mun það hafa nógu öðru að sinna en garðyrkju annarsstaðar. Því fer fjarri, að jeg vilji mótmæla því, að hinn nýi formaður Búnaðarfjelagsins sje duglegur maður, þó að jeg segi þetta. En hins vegar veit jeg ekki betur en að allir þeir, sem á undan honum hafa verið formenn þessa fjelags, síðastliðin ár, hafi einnig verið dugandi menn, bæði biskupinn, presturinn frá Reykholti, og síðast Eggert Briem, Það efast enginn um, að allir þessir voru ágætir menn í þeirri stöðu, þó má ske sá síðasttaldi hafi ekki getað beitt sjer fyrir framkvæmdum, eins og hann hafði getu til, ef atvik hefði ekki truflað. Jeg ber ekki heldur brigður á, að núverandi formaður sje bæði vitur og góður, en þó er hann ekki alvitur. Og ekki er það sagt honum til lasts, þó að jeg telji hann ekki færan um að stýra garðyrkju. Ef það ætti að heyra undir hans verksvið, yrði hann að fá sjer garðyrkjustjóra, sem hefði sjerþekkingu, og launa honum engu minna en hjer er farið fram á. Og kæmi það þá í sama stað niður. Jeg skil ekki, að nokkur setji sig upp á móti þessu, að hugsuðu máli. Það er auk þess ljettir fyrir Búnaðarfjelagið.

Það var eitt í ræðu hæstv. atvinnumálaráðherra (S. J.), sem jeg hjó eftir, þar sem hann sneiddi að nefndinni fyrir það, hve seint henni hefði sóst starfið. Jeg vil minna hæstv. ráðherra (S. J.) á, að það fjellu úr nokkrir dagar í þingbyrjun, sem ekkert var unnið, og mun nefndin því ekki hafa verið lengur að verki en venjulegt er. Svo er og hitt, að altaf vex verkefni nefndarinnar með hverju ári, og má líka taka tillit til þess.

Jeg hygg, að nú sje flestu svarað fyrir hönd nefndarinnar, sem svara þarf. Annars er jeg þakklátur hv. deildarmönnum fyrir, að þeir hafa flestir lofað nefndina fyrir starf hennar, að minsta kosti að einhverju leyti, og enginn hefir kastað á hana þungum steini. Svo vænti jeg þess, að hv. þm. samsinni því með atkvæðum sínum, að hún fór hvergi lengra en nauðsynlegt var og sanngjarnt. Og að þeir fari ekki að stryka út smávægilegar upphæðir, sem lítið munar um í rauninni, þó að þær kunni að nema nokkrum þúsundum króna. Jeg vil geta þess, að endingu, að þó að altaf hafi verið einhver halli á fjárlögunum, þá hefir hann ekki komið fram að lyktum, vegna þess, að tekjurnar hafa farið fram úr því, sem áætlað var, og þannig jafnað upp hallann. Það er því ekki rjett, að skera niður fyrirtæki og nauðsynlegar fjárveitingar fyrir ímyndaðan halla.