09.09.1919
Neðri deild: 59. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1088 í B-deild Alþingistíðinda. (871)
40. mál, skipun barnakennara og laun þeirra
Frsm. (Þorsteinn Jónsson):
Jeg þarf ekki að vera margorður, því hv. þm. V.-Sk. (G. Sv.) hefir tekið flest það fram, sem jeg vildi segja. Hv. 1. þm. Skagf. (M. G.) taldi, að útgjöldin ykjust við það, að ríkissjóður greiddi fje til kennaranna; sveitarsjóðir yrðu sparsamari. (M. G.: Þetta sagði jeg ekki). Jeg skildi hv. þm. svo, en það getur verið, að hann hafi ætlast til, að annar skilningur væri lagður í orð sín. En launin verða nú fastákveðin með lögum, verði þetta frv. samþykt, og því jafnhá, hvort sem sveitarsjóðir og bæjar greiða þau að öllu leyti, eða ríkissjóður að nokkru leyti. Hjer er ekki um nýja stefnu að ræða, því ríkissjóður greiðir nú þegar fje í þessu skyni, og er þá eðlilegt, að það aukist eftir verðfalli peninga, þó að eigi sjeu hjer rjett hlutföll á milli.
Jeg skal taka það fram, að nefndin hefir fallist á till. hv. þm. V.-Sk. (G. Sv.), á þgskj. 710, um hækkun á lágmarkslaunum kennara utan kaupstaða. Hún er líka öll meðmælt till. á þgskj. 746, frá sama hv. þm. (G. Sv.), nema 3. lið hennar, um að 150 kr. komi í stað 100 kr.; þar hafa nefndarmenn óbundin atkv. Nefndin lítur svo á, að óhæfilegur munur sje gerður á launum kennara í og utan kaupstaða, og er því þakklát hv. þm. fyrir till. hans um að gera þann mun minni.
Viðvíkjandi brtt. á þgskj. 730, frá hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.), er það að segja, að öll nefndin hefir fallist á hana, enda er annar liður hennar sá sami og standa átti í brtt. nefndarinnar, en fjell niður af vangá.
Brtt. við 17. gr. er eðlileg afleiðing þess, að ýmsar brtt. nefndarinnar voru feldar, og er því að eins sjálfsögð orðabreyting.