04.09.1919
Neðri deild: 55. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 298 í B-deild Alþingistíðinda. (88)

1. mál, fjárlög 1920 og 1921

Pjetur Ottesen:

Jeg hafði búist við að hæstv. stjórn gæfi einhverjar skýringar viðvíkjandi styrknum til háskólans. Því það er ekki alllítið, sem þar ber á milli hennar og nefndarinnar. Jeg drap á þetta atriði hjer í gær, því jeg lít svo á eins og kom í ljós bæði hjá mjer og öðrum fleirum á síðasta þingi, í umræðum manna á milli um þetta mál að vextir af þessari miljón, sem fjell háskólanum í skaut, yrðu notaðir að einhverju leyti til að ljetta styrk til háskólans af fjárlögunum. Jeg sje auk þess á frv. stjórnarinnar, að hún hefir lítið kíkt á þetta. Enn fremur þori jeg að fullyrða, að menn, sem standa nærri háskólanum og sæti eiga hjer í deildinni, ljetu falla þannig orð í fyrra. En nú hefir sýnt sig, að þetta hafa ekki verið annað en orðin tóm, og tilætlun fjárveitinganefndar er, að styrkurinn til háskólans sje lækkaður um einar 6,500 kr. En vextirnir af þessari miljón nema 50 þús. kr., sem háskólaráðið hefir bútað niður eftir eigin höfði. Af frv. stjórnarinnar má draga þá ályktun, að hún álíti ekki þá ráðstöfun, sem háskólaráðið hefir gert, bindandi, og hið sama hefir komið fram í umræðum við hæstv. forsætisráðherra um þetta mál.

Auk þess var annað atriði, sem hv. frsm. (B. J.) hefir minst á, sem sje tillaga mín um að fella niður styrkinn til Bræðrasjóðsins. Eins og menn sjálfsagt rekur minni til, var leikinn nokkurskonar skollaleikur með styrkinn til stórstúkunnar hjer á þingi 1917, og niðurstaðan af þeim skollaleik varð sú, þegar ekki tókst að fella styrkinn niður með öllu, að koma honum yfir á Bræðrasjóðinn. Jeg efast nú ekki um að ýmislegt gott má segja um þennan sjóð, eins og yfir höfuð aðra slíka sjóði en eins og þetta er til komið, sje jeg enga ástæðu til að halda því við, enda hefir aldrei verið sótt um styrk handa þessum sjóði, en hann að eins notaður í þetta sinn sem nokkurskonar skálkaskjól fyrir þá sem höfðu tilhneigingu til að níðast á stórstúkunni. Annars er hv. þm. Dala nú að síðustu farinn að færa fram rök sín á grísku og latínu, auðvitað til að sýna kunnáttu sína í þeim efnum og er því ekki gott fyrir leikmenn að henda reiður á því, sem þingmaðurinn hefir fram að bera.