18.02.1920
Neðri deild: 6. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 131 í C-deild Alþingistíðinda. (1023)

16. mál, skipun prestakalla Ísafjarðarprestakall

Flm. (Sigurður Stefánsson):

Jeg kom fram með frv. þetta í þingbyrjun í fyrra, samkvæmt áskorun frá sóknarmönnum í Hólshreppi, sem hefir meðmæli frá hjeraðsprófasti og biskupi.

En frv. dagaði uppi á þinginu í fyrra.

Jeg býst við, að forlög þessa frv. verði lík og forlög hins frv., að það verði sett í nefnd, jafnvel þótt það sje miklu yfirgripsminna og auðveldara viðfangs. Vil jeg fylgja því úr garði með nokkrum orðum.

Eins og öllum er kunnugt, er Ísafjarðarkaupstaður og Hólshreppur eitt prestakall. En á prestakalli þessu hafa orðið mjög miklar breytingar síðustu árin, sem valdið hafa því, að presturinn á Ísafirði á miklu erfiðara með að þjóna Hólshreppi en áður. Kostar sú þjónusta nú orðið margar þúsundir króna á ári. Hver ferð frá Ísafirði til Bolungarvíkur kostar á annað hundrað krónur. Og sóknarmönnum Hólshrepps er því mjög dýrt að ná í prest til aukaverka, en aukaverkin eru mikil, þar sem safnaðarmenn í Hólshreppi eru orðnir á fjórða þúsund. Jeg tók það fram í fyrra, að presturinn getur varla farið ferðir þessar nema á sjó. Landferðir eru mjög hættulegar, með fram bröttum og grýttum hamrahlíðum að fara, enda hefir hlotist af því manns bani, eins og menn muna. Auk þess hefir fólkinu fjölgað svo í Hólshreppi, að það er ofvaxið einum manni að anna báðum prestaköllunum. Presturinn hefir og lýst yfir því, að sjer sje stórtjón efnalega að því að þjóna Hólshreppi, því að þau gjöld, sem hann fái fyrir störf sín þar, nemi ekki kostnaðinum. Og þó að laun presta hafi dálítið verið bætt, hygg jeg að þau sjeu ekki svo mikil, að þeir sjeu ofhaldnir af þeim.

Jeg skal ekki endurtaka það að þessu sinni, sem jeg sagði um mál þetta í fyrra. Jeg veit, að áhuginn fyrir skiftingunni er ekki minni á Ísafirði en í Hólshreppi. Synjun þessa máls mundi sennilega leiða til þess, að söfnuðurinn í Hólshreppi sjái sig neyddan til að segja sig úr þjóðkirkjunni og stofna fríkirkju. Þó að jeg telji það undir hælinn lagt, að málið nái fram að ganga á þessu þingi, vildi jeg samt hreyfa því. Reyndar ætti framganga þess ekki að þurfa að taka langan tíma, þar sem allar ástæður eru þingheimi kunnar.

Ef frv. verður vísað til nefndar, vildi jeg leyfa mjer að óska að það fari til allsherjarnefndar.