19.02.1920
Neðri deild: 7. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 137 í C-deild Alþingistíðinda. (1031)

21. mál, skipun læknishéraða o. fl. Bakkahérað

Þorsteinn Jónsson:

Hv. flm. (B H.) hefir gert grein fyrir þessu frv. En af því, að hjer er allmikið nýrra þm., þá ætlaði jeg að minnast á ýmislegt, sem þyrfti ef til vill frekari skýringar við.

Þeir, sem kynna sjer þetta mál, reka augun í það, að ef Hróarstungulæknishjeraði væri skift sundur í tvö læknishjeruð, þá yrðu þau læknishjeruð fámenn. Eins og kunnugt er, þá er hjeraðið nú mjög víðlent, og það, sem verra er, að þar eru torfærur miklar innan hjeraðs. Á fjallveginum, sem klýfur Borgarfjörð frá Hjeraðinu, eru miklar torfærur, og er kafli af þeirri leið mjög hættulegur á vetrum, hinar svo kölluðu Njarðvíkurskriður.

Um Hjerað renna 3 stórár, sem þráfaldlega eru ófærar, Lagarfljót, Jökulsá á Dal og Selfljót. Það má því heita frágangssök fyrir þá, sem lengst búa, t. d. Jökulsárhliðarmenn, að sækja lækni til Borgarfjarðar. Þegar íbúar Hróarstungulæknishjeraðs vitja í mörgum tilfellum læknis á Vopnafirði eða Brekku, þá verður það oft árangurslaust, því læknarnir þar eru bundnir við læknisstörf í sínum hjeruðum, og eru auk þess ekki skyldir að gegna vitjunum úr öðrum læknishjeruðum, þótt þeir geri það, þegar þeir sjá sjer fært.

Þótt jeg telji rjett að fjölga ekki embættismönnum, þá verða læknar að vera undantekningar. Það er ómögulegt að komast hjá að fjölga þeim, enda krefst þjóðin þess. Hún sjer ekki eftir því fje, sem til þeirra gengur. — Jeg vil benda á það, að hvert mannslíf er dýrt, og er það tvísýnn sparnaður að hafa of fáa lækna. — Það væri ef til vill viðkunnanlegra, að málið færi í nefnd, en jeg get þó fallist á þá till., sem fram er komin, að það fari nefndarlaust í gegnum þingið, til þess að meiri líkur sjeu til, að frv. verði að lögum á þessu þingi. Það var óhæfilegur dráttur á þessu máli í fyrra, og þess vegna dagaði það uppi. Menn voru yfirleitt á því, að lofa því fram að ganga, en það mun hafa verið af skeytingarleysi hv. Ed., að það varð ekki að lögum. Jeg vona, að frv. vegni betur í þetta sinn.