23.02.1920
Neðri deild: 10. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 155 í C-deild Alþingistíðinda. (1060)
36. mál, hlunnindi í nýjum banka í Reykjavík
Flm. (Sveinn Björnsson):
Jeg ætla síst að draga úr þeirri nauðsyn, sem er á að Landsbankinn verði efldur En heppilegra tel jeg þó, að til sje 3. bankinn, sem einkabanki. Jeg á þar við, að það sje dálítið áfátt með rekstur beggja bankanna, að þeir hafi ekki fylgst með tímanum, og að viðskiftin sjeu ekki eins greið og nútíminn krefst. Vanti nýjan vönd að sópa til hvatningar þeim gömlu um umbætur. Jeg held, að það sje æskilegt, að því valdi í viðskiftalífinu, sem óumflýjanlega fylgir bönkunum, þegar þeir eru fáir, eins og hjer, verði dreift meira. Jeg held auk þess, að það sje rjett á takmörkum, að bankarnir geti annað þeim viðskiftum, sem eru, og því væri æskilegt að fá bætt úr því. Dýrtíðin hefir gert það að verkum, að peningaþörfin hefir aukist; get jeg nefnt í því sambandi, að húsabyggingarþörfin er tilfinnanleg í Reykjavík, og jeg efast um, að bankarnir geti fullnægt því. Jeg fer ekki fram á það, að Alþingi búi til hengingaról á Landsbankann. Jeg geri ráð fyrir, að Alþingi fari ekki lengra en það álítur fullkomlega forsvaranlegt. En svo nauðsynlegt er það í mínum augum að fá þriðja bankann, að jeg vona, að hv. deild stuðli að því. Þó þetta frv. nái ekki fram að ganga á þessu þingi, þá er þó altaf unnið við að málið hefir verið tekið til íhugunar á þessu þingi. Á seinni árum hefir engin ákveðin uppástunga komið um þetta efni.