24.02.1920
Neðri deild: 11. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 166 í C-deild Alþingistíðinda. (1068)
42. mál, skipaferðir milli Íslands og Gautaborgar
Magnús Kristjánsson:
Jeg hefi í sjálfu sjer fáu að svara, því röksemdaleiðslan frá báðum hliðum hefir verið mjög hógvær. En jeg hefi nú samt ekki sannfærst að öllu leyti.
Svíar hafa á síðari árum eflt útveg sinn hjer allmjög, og mun það vera takmark þeirra að veiða svo mikið hjer, sem þeir hafa þörf fyrir. Þess vegna er jeg deigur til að hjálpa þeim til þessa. Jeg álít, að við höfum ekki mikils hags að vænta af viðskiftum við þá í framtíðinni. Þar verðum við að líta í aðrar áttir og reyna að koma okkar vöru á markaðinn þar, sem hann er bestur. En sænski markaðurinn er ekki svo, að það borgi sig að koma upp geymslu á þessum stað.
Hv. þm. (B. J.) talaði um eitthvert nýtt fjelag, sem vildi gerast milliliður í verslun okkar. Jeg hygg, að þetta sje ekki svo mikilsvert, að til þess sje kostandi miklu fje.
Annars þýðir ekki að vera ræða þetta frekar; en jeg vildi að eins drepa á þetta til athugunar nefnd þeirri, er fær málið til meðferðar.