24.02.1920
Neðri deild: 11. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 172 í C-deild Alþingistíðinda. (1079)

46. mál, Landsbanki Íslands sem hlutabanki

Bjarni Jónsson:

Mætti jeg beiðast þess, úr því að svo er langt komið þingtímanum, að hæstv. forseti vildi grenslast eftir því, hvort varpfuglarnir hjer í þessu háa þingi þykist nú ekki hafa legið nógu lengi á að þessu sinni; t. d. vildi jeg spyrja, hvort landbúnaðarnefndin myndi eigi bráðlega hafa ungað út. Eins og kunnugt mun vera, er hjá henni eitt frv., sem jeg hefi borið fram fyrir hönd íslenskra bænda, og hefi jeg gert það í þeirri trú, að það væri hvorki til skammar nje skaða fyrir þing vort, þó að kláðamaurinn yrði einu ári skammlífari, heldur en ef frv. yrði látið bíða næsta þings.