23.02.1920
Efri deild: 8. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 75 í B-deild Alþingistíðinda. (129)

1. mál, stjórnarskrá konungsríkisins Íslands

Forsætisráðherra (J. M.):

Jeg ætla ekki að ræða neitt um frv. þetta, heldur rjett nefna það, að það hefir nú verið lagt fyrir háttv. deild óbreytt frá því, sem það var samþykt á síðasta þingi. Engar raddir hafa heldur heyrst um að breyta því, og tel jeg því sjálfsagt, að það verði samþykt óbreytt. Það hefir verið kosin hjer í deildinni stjórnarskrárnefnd, eða er ekki svo? (Forseti: Jú). Leyfi jeg mjer því að stinga upp á því, að málinu sje vísað til þeirrar nefndar að umræðu lokinni.