23.02.1920
Neðri deild: 10. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 116 í B-deild Alþingistíðinda. (162)

8. mál, þingmannakosning í Reykjavík

Bjarni Jónsson:

Jeg vil biðja háttv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) að minnast þess, að jeg bygði ekki neitt af því, sem jeg hefi sagt, á ályktun, heldur á staðreyndum. Jeg bygði það sem sje á því, sem verndarandi háttv. þm. og aðrir, sem nær honum standa, höfðu sagt um rúmleysið, en ekki á hv. þm. sjálfum.

Annars þakka jeg hv. þm. (Sv. Ó ) fyrir það, sem hann hefir sagt um útiganginn bæði í Dalasýslu og Reykjavík, en mjer er ekki þörf að gjalda honum í sömu mynt, með því mjer er ekki kunnugt um útiganginn á Austfjörðum. En það veit jeg, að hv. þm. (Sv. Ó.) hefir ekki orðið feitur á hnjótunum hjer, því hann hefir ávalt orðið að flýta sjer heim, þegar hann hefir verið búinn að dvelja hjer lítið eitt.