23.02.1920
Neðri deild: 10. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 121 í B-deild Alþingistíðinda. (169)

8. mál, þingmannakosning í Reykjavík

Þorleifur Guðmundsson:

Jeg vildi að gera stutta grein fyrir atkvæði mínu.

Sje það rjett, að Reykjavík eigi að fá 2 þm. í viðbót, þá er ekki rjett að hamla því, að hún fái þá þegar í stað. Nú eru alvarleg mál á döfinni, og sje það viðurkent, að Reykjavík eigi að hafa þá hlutdeild í málum þjóðarinnar, sem þetta frv. fer fram á, þá á hún að fá hana áður en þau mál eru tekin til meðferðar. Jeg mun því greiða atkv. með frv. eins og það liggur fyrir.