24.02.1920
Efri deild: 9. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 125 í B-deild Alþingistíðinda. (176)

8. mál, þingmannakosning í Reykjavík

Forsætisráðherra (J. M.):

Jeg get ekki verið ánægður með breytingar þær, sem hv. Nd. gerði á frv., að þingmannatalan var færð niður og að eins bætt við tveimur þm.

En það verður best, ef þinginu á að verða slitið fyrir helgi, að hv. deild samþ. frv. óbreytt frá Nd., enda þótt rjettlætiskröfum Reykjavíkur sje alls ekki fullnægt með því. En betri er hálfur skaði en allur. Jeg vil leggja til, að frv. verði vísað til stjórnarskrárnefndar, sem gæti afgreitt það fljótt.