28.02.1920
Neðri deild: 18. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 130 í B-deild Alþingistíðinda. (190)

8. mál, þingmannakosning í Reykjavík

Jakob Möller:

Jeg vil ekki stofna til langra umr. að þessu sinni. Jeg veit ekki, hvort háttv. deildarmenn hafa lagt fullan trúnað á það við síðustu umr., að Reykvíkingum væri það alvara, að halda kröfum sínum til streitu, en nú geta þeir ekki verið í vafa lengur. Því hefir verið komið til leiðar, að frv. var breytt í hv. Ed. og það sent hingað aftur, þó að öllum væri ljóst, að það mundi ekki vera með öllu hættulaust. Mjer skildist á háttv. frsm. (Þór. J.), að hann furðaði sig á festu Reykvíkinga, en jeg skil ekki, að nokkrum manni geti þótt það undarlegt, þótt þeir vilji ekki láta traðka rjetti sínum. Þeir hafa nú snúið sjer til þingsins í því trausti, að það mundi ekki virða einróma kröfu þeirra algerlega að vettugi. Er þá að eins eftir að vita, hvernig þingið verður við því.

Það hafa engin rök verið færð gegn því, að Reykjavík ætti rjettmæta kröfu til 5 eða 6 þingmanna, hvort sem miðað er við fólksfjölda eða annað. Jeg veit ekki til, að þetta hafi verið dregið í efa, nema af háttv. frsm. (Þór. J.). Hann benti á það, að hver hreppur kysi að eins einn mann í sýslunefnd, án tillit til stærðar eða fólksfjölda eða atvinnuvega, og var það vel valið dæmi af honum, því að hreppapólitíkur kennir mjög í ræðum hans um þetta mál. En það eru ekki allir hv. þm., sem vilja láta stjórnast af hreppapólitík, og fyrir þeim sannar þessi samanburður ekki neitt. Annars skýtur háttv. þm. yfir markið með þessari röksemdafærslu, því að mörg kjördæmi kjósa, eins og kunnugt er, 2 menn á þing, en enginn hreppur nema einn mann í sýslunefnd. Ef hreppadæmið ætti að vera hliðstætt, þá ætti ekkert kjördæmi að kjósa nema 1 þingmann. Kjördæmi háttv. frsm. (Þór. J.) sjálfs, Húnavatnssýsla, hefir fleiri en einn þingmann, einmitt vegna þess, að það er eitt af hinum stærri og fjölmennari kjördæmum landsins og nýtur þannig fólksfjölda síns. Er með því sýnt, að aldrei hefir verið farið eftir sömu reglu um alþingiskosningar og sýslunefndarkosningar. En ef farið er eftir fólksfjölda, þá á Reykjavík heimting á 6 þingmönnum, ekki síður en Húnavatnssýsla á 2. — Enn má sýna það með dæmum, þrátt fyrir fullyrðingar háttv. frsm. (Þór. J.), og þvert ofan í þær, að kjördæmaskipun hefir verið hagað eftir atvinnuvegum. Eða hvers vegna voru kaupstaðirnir Seyðisfjörður, Akureyri og Ísafjörður gerðir að sjerstökum kjördæmum! Auðvitað vegna þess, að þeir áttu annara hagsmuna að gæta, vegna atvinnuvega sinna, en kjördæmin, sem þeir voru áður í sambandi við. Þá hafa andmælendur hengt hatt sinn á það, að fleiri kjördæmi sjeu afskift en Reykjavík. En það er algerlega óleyfileg röksemdafærsla að halda því fram, að Reykjavík eigi að gjalda þess og þess vegna að halda áfram að vera verst sett. Þeir, sem finna til þess, að mörg kjördæmi eru órjetti beitt, ættu að verða fyrstir til að laga eitthvað, ef þess er kostur. Auk þess má geta þess, að landbúnaðarsveitirnar eru í heild sinni betur settar í þessu efni en aðrar, og gerir því ekki eins mikið til, þótt einhverjar ójöfnur sjeu á milli þeirra innbyrðis.

Því verður ekki mótmælt, að Reykjavík á sjerstakra hagsmuna að gæta á þingi, og á hún því fremur heimtingu á því að hafa eins mikið atkv. um landsmál og önnur kjördæmi, og það er þeim hættulaust, því að hagsmunir Reykjavíkur koma yfirleitt ekki í bága við hagsmuni þeirra.

Háttv. andmælendum frv. er eins ráðlegt að hætta alveg að reyna að færa rök fyrir sínu máli. Þeir vita það fyrirfram, að það tekst ekki. Málið er svo einfalt, að það er ekki um að villast, hvorum megin rjetturinn er. Þeir háttv. þm., sem greiða atkv. á móti frv., vita það, að þeir eru að traðka skýlausum rjetti Reykjavíkur og fremja ofbeldisverk, og þeir verða að geta horfst í augu við samvisku sína og viðurkenna það hátt og í hljóði og standa hreinskilnislega við atkvæði sitt frammi fyrir Reykvíkingum og sínum eigin kjósendum.

Það er vitnað í það, að margir þm. sjeu búsettir í Reykjavík. Það er satt, en hvaða gagn er Reykjavík að því? Ef háttv. þm. gætu bent á dæmi þess, að þeir þm., sem búsettir eru í Reykjavík, hafi dregið hennar taum, þá gæti verið vitglóra í þessum framslætti, en meðan svo er ekki, þá getur þessi „ástæða“, sem háttv. andmælendur leyfa sjer að benda á, ekki átt kröfu til þess að vera tekin til greina. Hjer í deildinni eru margir hv. þm. búsettir í Reykjavík, en kosnir af öðrum kjördæmum, og að eins einn — segi og skrifa einn — þeirra greiddi atkvæði með ótvíræðum rjetti hennar til þingmannafjölgunar, en 2–3 úr öðrum kjördæmum. Á því má nokkuð marka um það, hve mjög þessir „búsettu“ þingmenn Reykjavíkur bera hag hennar fyrir brjósti!

Háttv. þm. mega vera sannfærðir um það, að Reykvíkingum er full alvara að halda málinu til streitu. Um þessa kröfu hafa sameinast andstæðir flokkar í bænum, sem annars geta aldrei fylgst að málum, og jeg vil benda á það, að annar flokkurinn gerir það áreiðanlega ekki í hagsmunaskyni. Ef þingmennirnir verða 5, þá verður það til þess, að minni hluta flokkurinn, sem undir varð í kosningunum í haust, getur komið að einum þingmanni. Meiri hlutinn „græðir“ það eitt á fjölguninni, að andstæðingarnir geta þá komið að manni. Hann er því að vinna á móti hagsmunum sínum, metur rjettlætið meira en flokka, er hann nú tekur höndum saman við minni hlutann um það, að halda kröfunni um fimta þingmanninn sem fastast fram, þrátt fyrir það, að öllum mátti vera augljóst, að málinu gæti verið nokkur hætta búin af því. Jeg vona, að háttv. þm. taki sjer dæmi þetta til fyrirmyndar, því þeim dylst það væntanlega ekki, að rjettlætið heimtar, að frv. sje samþ. óbreytt.