28.02.1920
Neðri deild: 18. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 137 í B-deild Alþingistíðinda. (192)
8. mál, þingmannakosning í Reykjavík
Gunnar Sigurðsson:
Það er nú komið fram, að mín skoðun hefir verið rjett sú, að láta enga breytingu verða á þingmanna skipuninni fyr en kjördæmaskipunin væri öll endurskoðuð. Menn verða að sjá það, að það eru fleiri kjördæmi en Reykjavík, sem eiga heimtingu á fleiri þingmönnum, t. d. Hafnarfjörður og Árnessýsla Jeg verð þess vegna að halda fast við þá skoðun mína, að kjördæmaskipunin verði sem fyrst endurskoðuð, og þá mundi Reykjavík fá 5 eða jafnvel 6 þingmenn. En ef þingmönnum Reykjavíkur verður fjölgað um 2–4 að þessu sinni, þá treysti jeg ekki sanngirni sumra þingmannanna. sjerstaklega ekki þm. Reykjavíkur, til þess að láta önnur kjördæmi fá þá þingmannatölu. er þeim ber eftir sama mælikvarða.