28.02.1920
Neðri deild: 18. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 146 í B-deild Alþingistíðinda. (198)
8. mál, þingmannakosning í Reykjavík
Jakob Möller:
Jeg geng hjer af mjer dauðum, með því að taka nú þegar til máls, en vona hins vegar, að mjer verði leyft að gera „örstutta athugasemd“ ef á mig verður ráðist.
Jeg sný mjer þá að háttv. frsm. (Þór. J.) og verð að segja, að hjá honum kendi enn mikils misskilnings, nálega í öllum atriðum.
Hv. þm. (Þór. J.) hefir víst dreymt illa undanfarnar nætur þar sem hann sjer alstaðar „hættur“ og ógnanir. Þær hættur og ógnanir komu að minsta kosti ekki fram í minni ræðu. Jeg mintist ekkert á slíkar hættur, sem hann talaði um, heldur talaði jeg um, að mönnum hafi verið það ljóst, að þessu máli í heild sinni, þingmannafjölgun Reykjavíkur mundi vera í hættu stofnað með því að láta það koma hingað aftur til þessarar háttv. deildar.
Allar hans hnútur og getsakir um æsingar og hótanir eru því gersamlega ástæðulausar; tómur misskilningur og ekkert annað.
Háttv. þm. (Þór. J.) heldur áfram að berja höfðinu við steininn, þar sem hann heldur því fram, að kjördæmaskiftingin sje ekki bygð á fólksfjöldanum. En hjer held jeg á í hendinni skýrslu stjórnarinnar um kjósendafjölda í einstökum kjördæmum, sem sýnir það gagnstæða. Öll tvímenningskjördæmi landsins eru einmitt fólksflestu kjördæmin. Sú skýrsla sýnir það og sannar, að þeirri reglu hefir verið fylgt, að ákveða þingmannafjölda kjördæmanna eftir fólksfjölda.
Þá er það líka fullkominn „misskilningur“ hjá hv. frsm. (Þór. J.), að kaupstaðirnir Ísafjörður og Akureyri hafi verið gerðir að sjerstökum kjördæmum „þegar þeir fengu“ kaupstaðarrjettindi og sjerstaka stjórn. Það höfðu þessir kaupstaðir fengið mörgum áratugum áður en þeir voru gerðir að sjerstökum kjördæmum.
Það er því alt saman algerlega rangt, sem háttv. frsm. (Þór. J.) hefir haldið fram gegn kröfum Reykjavíkur. Þetta kjördæmi á einmitt heimting á þingmannafjölgun eins og stjórnarfrv. fór fram á, eftir þeim „principum“, sem farið hefir verið eftir áður. Og verði þessu synjað, þá verður sá sami háttv. þingm. að renna því niður, hvort sem honum fellur það vel eða illa, að þetta er ekkert annað en hreint og beint ofbeldi.
Þá mintist háttv. þm. (Þór. J.) á peningavogina. Já, við skulum einmitt athuga hana dálítið betur. — Reykjavík geldur langmest í landssjóðinn af öllum kjördæmum landsins. En jeg hefi þó aldrei haldið því fram, að hún ætti að fá þingmannafjölda, sem því hlutfalli svarar, enda ætti hún þá rjett til, ekki að eins 6, heldur 26 þingmanna. En svo mikið tillit vil jeg láta taka til þessa, að skýlausum rjetti Reykvíkinga, miðað við fólksfjölda, verði ekki traðkað.
Þá spurði háttv. þm. (Þór. J.), hvers vegna flokkarnir í bænum sýndu ekki hvor öðrum rjettlæti, með því að taka mann úr minni hlutanum. Það mætti alveg eins vel spyrja, hvers vegna kjósendur í Húnavatnssýslu, sem kusu hann, hafi ekki kosið einhvern annan! — Hluturinn er, að menn vilja ógjarnan láta af rjetti sínum eða gefa þann rjett eftir, sem þeir hafa fengið, þó að þeir vilji láta aðra njóta síns rjettar að fullu. Þá var ein ástæðan sú, er hann færði gegn frv. að dragast mundi endurskoðun kjördæmaskiftingarinnar, ef þetta næði fram að ganga og vitnaði þar um til orða forsætisráðh. (J. M.).
En því til svara er það, að fyrst og fremst er það óvíst hvað hæstv. forsætisráðh. (J. M.) heldur þeirri stöðu lengi, og svo hjelt jeg í annan stað, að það væri þingið, en ekki forsætisráðherrann, sem rjeði þessu. Ef þingið vill, þá getur sú endurskoðun farið fram á næsta ári, hvað svo sem hæstv. forsætisráðherra segir þar um.
Jeg hefi lýst því yfir sem þingmaður Reykvíkinga, að þingmenn bæjarins, hvort sem þeir verða margir eða fáir, muni verða því fylgjandi og beita sjer fyrir því, að öll kjördæmaskipun landsins verði endurskoðuð svo fljótt sem unt er, og ætti því máli að vera því betur borgið, sem þm. bæjarins væru fleiri. Jeg tel þetta mál — endurskoðun kjördæmaskipunarinnar — beint varða hagsmuni Reykjavíkur, af því að hún mundi þá fá enn fleiri þingmenn, og breytingar á kjördæmaskipuninni yfirleitt hljóta að verða í þá átt, að hagsmunum hennar yrði betur borgið.
Jeg þarf ekki að vera að teygja umræðurnar lengur. Jeg hefi sýnt fram á, að alt, sem hv. frsm. (Þór. J.) hefir fært fram, er sagt út í bláinn og styðst alls ekki við reglur þær, sem farið hefir verið eftir hingað til.
Hann vitnaði í hreppapólitík, og var það vel til fallið, því að afstaða hans til þessa máls stjórnast ekki af neinu öðru en hreppapólitík.