28.02.1920
Neðri deild: 18. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 160 í B-deild Alþingistíðinda. (206)
8. mál, þingmannakosning í Reykjavík
Gunnar Sigurðsson:
Hv. 1. þm. Reykv. (Sv. B.) skildi ekki afstöðu mína, að jeg ætlaði að greiða atkv. móti því, að Reykvíkingar fengju 5 eða jafnvel 6 þm., þar sem jeg taldi, eð þeir mundu eiga rjett á því eftir kjósendafjölda. En hann verður að viðurkenna það, að það er rökrjett og það eina sanngjarna í þessu máli, að öðrum kjördæmum sje sýndur sami rjettur og Reykjavík, og þess vegna álít jeg, að Reykvíkingar megi vel við una að fá nú 2 fulltrúa í viðbót — þangað til athuguð hefir verið kjördæmaskipun landsins, þótt mjer, eins og jeg hefi áður tekið fram, hefði þótt sæmst að láta alla fjölgun bíða, bæði í Reykjavík og annarsstaðar, og endurskoða kjördæmaskipunina sem fyrst. Fái Reykjavík 5 eða 6 fulltrúa nú þegar, þá er það skýlaust ranglæti gagnvart öðrum hjeruðum, sem eiga hlutfallslega eins mikla heimting á fulltrúum og Reykjavík. Jeg vil taka mjer þau orð háttv. 1. þm. Reykv. (Sv. B.) í munn, er hann hafði við um mig í síðustu ræðu sinni, að jeg vona, að hann skilji þetta þegar hann fer að athuga það rólega. Úr því að við, sem erum fulltrúar sveitakjördæma, erum álitnir blindaðir af hreppapólitík í þessu máli, því getum við þá ekki eins búist við því, að þm. Reykv. sýni hreppapólitík þegar að því kemur að fjölga þm. sveitakjördæma?