28.02.1920
Efri deild: 18. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 164 í B-deild Alþingistíðinda. (215)

8. mál, þingmannakosning í Reykjavík

Sigurður Eggerz:

Jeg get alls ekki fallist á skilning hæstv. forseta á 17. gr. stjórnarskrárinnar. Það má breyta tölu þingmanna í báðum deildum, 26 og 14, en það er engin heimild til að breyta tölu þeirra þingmanna, er kjósa á úr sameinuðu þingi upp í efri deild. Hún er föst tala, sem stjórnarskráin heimilar ekki að breyta. Hins vegar er það ekki afleiðing af því, að breyta má þingmannafjölda í Ed. og Nd., að þessari tölu þurfi að breyta, því í efri deild má fjölga án þess, með því að fjölga landskjörnum þingmönnum, en í neðri deild má fjölga kjördæmakosnum þm. Jeg efast um, að nokkur dómstóll mundi leggja annan skilning en jeg hefi gert í málið, og þó háttv. þm. Seyðf. (Jóh. Jóh.) telji nú, að tillagan sje í samræmi við stjórnarskrána, þá efast jeg um, að hann kæmist að sömu niðurstöðu, ef hann hefði nægan tíma til að athuga málið. Jeg hefi fundið skyldu mína til að brýna þetta fyrir hv. deild, því leitt væri að enda þingið með stjórnarskrárbroti.