13.02.1920
Neðri deild: 3. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 170 í B-deild Alþingistíðinda. (232)
9. mál, kosningar til Alþingis
Forsætisráðherra (J. M.):
Þó að jeg hafi mikla tilhneigingu til að fara nánar út í frv. um fjölgun þingmanna í Reykjavík, þá verð jeg að stilla mig um það, því það brýtur þó í bága við þingsköp og allar þingvenjur að fara að tala um alt annað frv. en hjer er nú fyrir. En úr því að minst hefir verið á þingmannafjölgun þessa, vil jeg að eins láta þess getið, að því máli verður ekkert ver gert en að fara að blanda saman við það öðrum kjördæmum, fjölgun þm. eða breyting á skipun þeirra. Kröfunni um þingmannafjölgun Reykjavíkur hefir einatt verið komið fyrir á þann hátt.