19.02.1920
Neðri deild: 7. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 177 í B-deild Alþingistíðinda. (258)

10. mál, laun hreppstjóra og aukatekjur

Frsm. (Magnús Pjetursson):

Jeg hefi sáralitlu við að bæta um frv. þetta fyrir hönd fjárveitinganefndar, eins og gefur að skilja, þar sem hún leggur til, að frv. verði samþ. óbreytt.

Að eins get jeg getið þess til frekari skýringar, að frv. þetta fer ekki fram á neina hækkun á sjálfum launum hreppstjóranna, heldur eru þeim að eins veittar þær bætur, að nú eiga þeir að fá fulla, dýrtíðaruppbót samkv. 33. gr. launalaganna.

Sumum þótti að vísu þetta of litlar bætur, en þær eru þó betri en ekkert. Lægstu laun hreppstjóra eru nú 80 kr. En verða í ár eftir frv. þessu 176 krónur, eftir núgildandi verðlagsskrá. Þess má einnig geta, að hæstv. stjórn flytur frv. þetta samkvæmt þingsál.till. frá síðasta þingi, og sýnir það enn betur rjettmæti frv.

Voru sumir óánægðir með þetta og þótti eigi nógu langt gengið, en þar sem engin brtt. hefir komið fram, verður að álíta, að þeir sætti sig við það.