19.02.1920
Neðri deild: 7. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 182 í B-deild Alþingistíðinda. (264)
10. mál, laun hreppstjóra og aukatekjur
Gísli Sveinsson:
Jeg álít ekki vert að setja sig á móti þessu frv., þótt smágallar kunni á því að vera. Laun hreppstjóranna hafa hækkað nokkuð í dýrtíðinni. en þó má ske enn ástæða til að hækka þau. Það getur enginn ætlast til þess, að um sjerlega mikla borgun sje að ræða fyrir störf þessi: gegnir þar alt öðru máli en um störf embættismanna sem hafa starf sitt fyrir lífsatvinnu.
Jeg tel það að vísu illa farið, ef enginn vill vinna fyrir þjóðina án þess að heimta fulla borgun fyrir. En þótt hreppstjórar eigi heimtingu á sómasamlegri borgun, þá krefjast þeir alls ekki að þeim sje goldið í samræmi við hina æðri embættismenn landsins, og jeg vil alls ekki hindra það, að frv. nái fram að ganga. Jeg vil geta þess hjer, að jeg sendi stjórninni fyrir nokkru erindi um störf og laun skattanefnda þar eystra frá einni slíkri nefnd, og get ætlað að stjórnarráðið taki það mál nú til athugunar, við væntanlega endurskoðun skattamálanna.