23.02.1920
Neðri deild: 10. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 192 í B-deild Alþingistíðinda. (293)
12. mál, gullforði Íslandsbanka og bann við útflutningi á gulli
Frsm. (Jón Auðunn Jónsson):
Það, sem mjer varð að orði áðan, að gull bankans væri mjög lítið, átti auðvitað að skiljast í sambandi við gjaldmiðil til útlanda. Nefndin hefir ekki rannsakað gullforða bankans hjer og ekki heldur aðrar tryggingar hans, en þar sem hæstv. atvinnumálaráðherra (S. J.) var mjer samdóma áðan, vil jeg geta þess, að það gladdi mig. Jeg var nefnilega ekki fullviss í þessu efni.