24.02.1920
Neðri deild: 11. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 193 í B-deild Alþingistíðinda. (298)
12. mál, gullforði Íslandsbanka og bann við útflutningi á gulli
Frsm. (Jón Auðunn Jónsson):
Jeg hefi engu við að bæta það, sem jeg sagði hjer í gær um þetta mál; að eins ætla jeg að ítreka ástæðurnar fyrir breytingartillögu nefndarinnar, á þgskj. 52.
Eins og sjá má, þá er þetta öryggisráðstöfun til þess að koma í veg fyrir, að Landsbankinn neyðist til þess að flytja seðla út úr landinu, því ef seðlarnir eru fluttir út, þá kemur verðfall á peningunum, og kemur þar fram gengismismunurinn, sem jeg mintist á í gær og hjer þarf eigi að fjölyrða um, en hann getur orðið okkur til tilfinnanlegs fjártjóns, þar sem vjer þurfum meira að flytja inn en vjer getum flutt út.
Þá er og önnur ástæða, er jeg ætla að minnast lítið eitt á, og hún er sú, að það má varla heita sanngjarnt, að Landsbankinn hafi verri aðstöðu nú heldur en fyr var, áður en bráðabirgðalögin gengu í gildi.
Brtt. miðar að því að skylda Íslandsbanka til nauðsynlegrar yfirfærslu á peningum fyrir Landsbankann.
Þess má einnig geta, að stjórn Íslandsbanka telur sig fúsa til þess að yfirfæra, og varð það til þess að hvetja nefndina til þess að koma með þessa brtt. Og þó hún kunni að vera eitthvað skarpara ákveðin en Íslandsbanka þætti æskilegast, þá gátum við ekki haft þetta á annan veg, enda er svo, þegar Íslandsbanki er leystur undan því að innleysa seðla sína með gulli, að ekki er nema sjálfsagt, að eitthvað komi í staðinn.
Jeg skal svo ekki fjölyrða meira um þetta mál að þessu sinni.