13.02.1920
Neðri deild: 3. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 202 í B-deild Alþingistíðinda. (319)
13. mál, eftirlit með útlendingum
Forsætisráðherra (J. M.):
Jeg vænti þess, að það hafi legið í orðum mínum, að sú stjórn, er nú starfar, telji sjálfsagt, að leggja beri fyrir þingið, svo fljótt sem auðið er, frv. um atvinnurjettindi erlendra manna, í einstökum atvinnugreinum eða alment. Jeg get ekkert sagt um, hvað næsta stjórn kann að gera, en býst við, að hún telji sjer skylt að leggja fyrir næsta þing einhverjar till. um slíka takmörkun atvinnurekstrar.