17.02.1920
Neðri deild: 5. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 219 í B-deild Alþingistíðinda. (338)
14. mál, stimpilgjald
Sveinn Björnsson:
Jeg vildi að eins segja það, hvort ekki væri ástæða til þess að breyta fyrirsögninni á frv., ef það næði fram að ganga. Jeg tel ekki rjett að kalla þetta stimpilgjald, sem er í raun og veru aðflutningsgjald. Hjer er að eins um að ræða verðtoll á algengum vörum. Jeg lít svo á, að einn af göllum óbeinu skattanna sje sá, að þeir eru ekki teknir beinlínis úr vasa einstaklingsins, heldur eru farnar ýmsar krókaleiðir til þess að ná skattinum, og í því felst töluverð hætta um misbrúkun í skattalöggjöfinni. Og þegar menn láta sjer þetta ekki nægja, en nefna skattinn nýjum nöfnum, þá er komið inn á hættulega leið. Og jeg vil benda á það, að meiri hluti tekjuauka hefir verið tekinn af aðfluttum vörum síðan í stríðsbyrjun, og af vörum, sem fluttar hafa verið út úr landinu. Mjer kemur það kynlega fyrir, að auk þess, að tollarnir hafa verið hækkaðir, hafa verið fundnar nýjar leiðir til þess að leggja á ýmsar vörutegundir. Afleiðingin verður síðan sú, að á sumum vörutegundum hvíla fleiri aðflutningsgjöld, með ýmsum nöfnum, þótt vörutegundirnar sjeu eins að eðli. Og jeg hygg, að nefndin ætti að athuga það, hvort sömu vörutegundir eru ekki nú þegar orðnar svo tollaðar, að þær þoli ekki meiri gjöld. Á síðasta þingi var t. d. lagt 10 kr. innflutningsgjald á hverja smálest af kolum. Lengra sá þingið sjer þá ekki fært að fara í þessu efni. En mjer skilst, að hjer við bætist nú 2 kr. til 2 kr. og 50 aurar, ef þetta frv. verður samþykt.
Jeg stóð að eins upp til þess að benda nefndinni á, hvort ekki væri rjett að kalla þetta aðflutningsgjald í stað stimpilgjalds, og enn fremur í því skyni að beina því að nefndinni, hvort nú sje ekki fullur bikarinn um tollálagningar á sumum vörutegundum, áður en þetta frv. verður afgreitt. Jeg býst við, að þess sje full þörf.
Jeg sje mjer ekki fært að athuga ræðu hæstv. fjármálaráðh. (S. E.), þar sem hún var öll bygð á tölum, sem ekki er auðvelt að átta sig á í fljótu bragði.