24.02.1920
Neðri deild: 11. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 246 í B-deild Alþingistíðinda. (364)

14. mál, stimpilgjald

Fjármálaráðherra (S. E.):

Jeg leyfi mjer að þakka hv. fjárhagsnefnd góðar undirtektir undir frv., og get tekið það fram, að till. þær, sem hún hefir komið með, eru að mínu áliti til bóta.

Háttv. þm. V.-Ísf. (Ó. P.) sagði það ekki í samræmi við ræðu fjármálaráðherra, að leita þyrfti frekari tekna, en þetta er ekki rjett. Jeg sýndi fram á það, að minni tekjuauka en þetta mætti ekki fá, ef ársbúskapurinn ætti að bera sig. Jeg sýndi fram á það, að þegar tekin er til greina hækkun á símatekjum og bætt við tekju afganginn á fjárlögunum — og auðvitað tekin til greina hækkunin á laununum — þá mundi hallinn vera um 700 þús. kr., og þær ætlaði stjórnin að fá með þessu frv.

Hv. frsm. fjárhagsnefndar (M. G.) benti einnig á, að gert væri ekki ráð fyrir í útreikningi þessum auknum útgjöldum samkvæmt fjáraukalögum. En jeg hefi vonast eftir, að áætlaðar tekjur í fjárlögum væru svo varlega áætlaðar, að þær hrykkju fyrir þeim útgjöldum, en hjer er að eins um von að ræða, og þess meiri nauðsyn er á tekjuaukanum, ef hún brygðist.

Hv. þm. V.-Ísf. (Ó. P.) fáraðist um það, hve útgjöldin væru orðin há. Getur verið, að svo sje, en hins vegar ættu menn að líta til veðurs og athuga, hve útgjaldabyrðarnar eru háar annarsstaðar.

Að því er sjálfar tekjuleiðirnar snertir, þá efast jeg stórum um, að unt væri að hækka tekjuskattinn, sem allra hluta vegna er rjettlátastur. Jeg hefi mikla reynslu fyrir mjer um það, að slíkur tekjuauki fær allmikinn andbyr í þinginu. Hingað til hefir blásið á móti honum bæði utan þings og innan, og kæmi mjer ekkert á óvart, þó líka bljesi á móti honum frá hv. þm. V.-Ísf. (Ó. P.). Þegar menn eru að kveinka sjer undan of miklum sköttum, þá er það af því, að menn hafa ekki litið í kring um sig. Ef menn litu til t. d. Danmerkur, þar sem tek inn er næstum því allur gróðinn, þá mundu menn sjá, að hvergi er annað eins Gósenland eins og hjer. Hv. þm. (Ó. P.) tók fram galla, sem honum fundust á frv. En væru þeir einhverjir, þá mundi auðvelt að leiðrjetta þá. Sjerstaklega tók hann til 7. gr., en þó er vitanlegt, að gjaldið á að reiknast af meiru en póstávísunarhæðinni, ef reikningar sýna, að varan er meira virði, eða ef nokkur hluti sendinganna hefir verið greiddur í peningum. Þá talaði háttv. þm. (Ó. P.) um, að smygluninni væri markaður stór bás í þessu frumvarpi, en sannarlega er sá bás ekki minni í gildandi tolllöggjöf, eins og t. d. í vörutollslögunum.

Annars er tolleftirlitið alt of lítið hjer og þarf að aukast, og án þess er ómögulegt að búa til rjettláta skattalöggjöf.

Hv. þm. (Ó. P.) taldi lítið samræmi í því að banna innflutning á þessum vörum að öðru leytinu og að hinu leytinu að leggja skatt á þessar sömu vörur. En í frv. því um innflutninginn, sem er á ferðinni, er stjórninni að eins gefin heimild til að banna innflutninginn, og enginn veit, hvað verður af framkvæmdum í því efni.

Í Danmörku hefir einnig verið mikið rætt um innflutningstakmarkanir á óhófsvarningi, en um framkvæmdir hefir orðið lítið í því efni enn, eftir því sem jeg veit best. (Ó. P.: Hver var þá tilgangurinn með frumvarpinu). Auðvitað var tilgangurinn að hafa heimildina til þess að takmarka innflutninginn, ef nauðsynlegt væri, en annars var það fjárhagsnefnd, en ekki stjórnin, sem kom með þetta frv.

Hvað snertir brtt. þessar, er undantaka ýmsar lífsnauðsynjar, þá er við þeim að segja, að það er auðvitað gott að hafa sem minstan skatt á þeim, en stjórnin leggur þetta frv. ekki fram að gamni sínu; það er ríkissjóður, sem krefst peninga, og einhversstaðar verður að taka þá.

Annars hefi jeg sýnt fram á það, að skattur þessi kemur ekki hart niður á nauðsynjavöru, og almenningur verður varla mikið var við hann.

Hv. þm. Borgf. (P. O.) tók fram, að geysilegur skattur væri orðinn á þessum vörutegundum (kolum og salti etc.), og er það að vísu satt, en jeg þarf ekki að taka það fram, því mönnum mun vera það kunnugt, að þessir tollar voru lagðir á til þess að vinna upp tap á landsversluninni, er hún tók í höndur sínar verslunina með þessar vörur, er enginn annar treysti sjer til þess, sökum hræðslu við verðfall. Það er bæði gott og nauðsynlegt fyrir ríkissjóð að fá þennan nýja skatt, og jeg veit að nýja stjórnin muni ekki hika við að taka í sama strenginn, þegar hún tekur við ábyrgðinni. Jeg veit nú ekki annars, hvernig fylgi hennar er, og það veit ef til vill enginn, en jeg vona, að hv. stjórnarsinnar verði að minsta kosti eins „passiv“ gagnvart frv. eins og þeir eru gagnvart stjórninni, svo það geti læðst í gegnum þingið.