24.02.1920
Neðri deild: 11. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 254 í B-deild Alþingistíðinda. (369)
14. mál, stimpilgjald
Ólafur Proppé:
Herra forseti! Mjer þykir vænt um að heyra það, að það eru fleiri en jeg, sem telja þetta frv. varhuga vert. Hæstv. fjármálaráðherra (S. E.) og háttv. frsm. (M. G.) eru undantekningar meðal þeirra, sem talað hafa; annars eru allir mjer sammála í aðalatriðunum. (Fjármálaráðherra (S. E.): En háttv. þm. Ísaf.)? Hann var mjer líka sammála í „principinu“, þótt hann liti um of á þörfina á tekjuauka og ætlaði þess vegna að verða með frv.
Háttv. þm. Borgf. (P. O.) var mjer sammála um það, að tilfinnanleg vöntun á flokkum væri í frv., og hinir, sem staðið hafa upp, hafa viðurkent galla þess, hafa viðurkent, að „principið“ væri rangt, þó að sumir út af vandræðum ætli að greiða frv. atkv.
Jeg hefi tekið það fram, að jeg er „principielt“ á móti þessu máli, og jeg kann ekki við að „gaa paa Akord“, og vona jeg, að fáir hv. þm. verði til þess.
Aðfinsla mín um póstkröfuna var rjett, en það var rangt, sem hæstv. fjármálaráðherra (S. E.) hjelt fram. Það er skýrt eftir frv., að að eins á að greiða af upphæð póstkröfunnar, og það verður ekki rannsakað í hverju tilfelli, hvernig aðrar sakir kunni að vera milli þeirra manna, sem þar eiga í viðskiftum. Þetta er greinileg glompa í frv., eins og jeg hefi bent á.
Jeg tók það einnig fram, að jeg gæti skilið, að þörf væri á tekjuauka, þótt altaf megi um það deila, hvað þörfin er brýn. En jeg lagði aðaláhersluna á það, hvernig þessi tekjuauki yrði fenginn. Jeg álít leiðina, sem frv. bendir á, ófæra, fyrst og fremst af því, að hún stefnir ekki í rjetta átt, — hún er „principielt“ röng, — og þar að auki eru steinar í götunni, gallar á frv., svo sem 7. gr., um póstkröfur, og hætta á smyglun. Reynslan mun sýna það, að hún verður heldur í stærri en smærri stíl. Þessar vörur, sem tolla á um 10, 15 eða 20%, eru þannig lagaðar, að auðvelt er að smygla þeim inn í landið. Jeg skal taka það sem dæmi, án þess þó að jeg geri ráð fyrir, að það komi fyrir fremur en annað, að skrautsali fer til útlanda, kaupir inn saumavjelar eða annað þess hattar og felur í þeim skrautgripi. Jeg nefni þetta sem dæmi, sem auðveldlega getur komið til greina og ómögulegt er að varast, nema með mjög bættu tolleftirliti. Þetta stimpilgjald verður aldrei annað en pappírslög nema eftirlitið sje bætt, og þá fer tekjuaukinn af því að verða vafasamur.
Um tekjuskattinn skal jeg taka það fram, að jeg er honum hlyntur. Jeg tel hann rjettlátasta og heppilegasta skatt, sem völ er á. Þegar skattanefndin hefir lokið störfum sínum og þingið fer að fjalla um það mál gefst mjer væntanlega tækifæri til að láta skoðanir mínar betur í ljós.
Að endingu ætla jeg að endurtaka þá yfirlýsingu mína, að jeg mun greiða atkv. á móti frv., og jeg skora á hv. þm. að gera það sama. Ef bráð nauðsyn er á tekju auka, þá má hækka vörutollinn á 3. og 6. flokki, eins og jeg hefi bent á.
Jeg sje, að hjer eru allmargir þm. úr hv. Ed., og vil jeg beina því að þeim að athuga þetta mál vel, ef það kemur til þeirra kasta, sem jeg vona að ekki verði.