24.02.1920
Neðri deild: 11. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 256 í B-deild Alþingistíðinda. (370)
14. mál, stimpilgjald
Sveinn Björnsson:
Til þess að þurfa ekki að verða alt of langorður ætla jeg að taka það fram, að jeg hefi ekki breytt um skoðun síðan við 1. umr. og get jeg vísað til þeirra athugasemda sem jeg gerði þá við frv., eins get jeg líka fallist á þær athugasemdir, sem háttv. þm. V.-Ísf. (Ó. P) hefir gert nú við þessa umr.
Eins og málið liggur nú fyrir, þá lítur helst út fyrir, að fjárhagsnefnd og einstakir þm., sem hjer hafa talað, hafi talið sig neydda til að ganga að frv. út úr vandræðum. Með öðrum orðum, stjórnin hefir gert það svo líklegt fyrir þessum mönnum að tekjuauka þyrfti, að þeir sjá sjer ekki annað fært en að aðhyllast frv. um það efni og það þó að þeir fallist á ekkert annað í því en tekjuaukann. Ef málið er sjeð í þessu ljósi, þá veit jeg ekki, hvort hæstv. fjármálaráðherra (S. E.) hefir haft ástæðu til að þakka mönnum stuðninginn eins innilega og hann gerði. En annars þori jeg varla að minnast á hæstv. fjármálaráðh. (S. E.) í þessu sambandi. Hann tekur mjer það svo illa upp, að jeg get átt það á hættu að koma honum í geðshræringu.
Það getur verið, að vandræði sjeu fram undan og því þörf á tekjuauka, en af hverju á að velja þá leiðina, sem flestum kemur saman um að sje vandræði, og kemur þá eitt í annars stað? Hvers vegna á að velja þá leið, sem margir meðmælendur frv. telja „principielt“ ranga? Það hefir verið bent á aðra leið, að hækka vörutollinn, eða 3. og 6. flokk hans. Jeg býst ekki við, að það hefði orðið tilfinnanlegt, og 3. flokkurinn, sem er vefnaðarvörur, er nú í svo háu verði, að ekki hefði munað mikið um einhverja tollhækkun. Jeg get ekki skilið, hvers vegna menn vilja ekki heyra nefndar þessar aðrar leiðir. Það er viðurkent, að frv. fer fram á óeðlilega vandræðaaðferð, og til að láta hana líta betur út er stimpilgjaldsnafni dembt á alment innflutningsgjald.
Það hefir verið talað um bót á gamalt fat, eða að bæta gamalli bót á aðra gamla bót á gömlu fati. Háttv. frsm. (M. G.) sagði, að sjálfsagt væri að bæta þangað til nýja fatið væri fengið. Þetta er rjett, en það er ekki rjett að hafa bótina sjálfa slitna og götótta og auk þess úr mislitu efni: en það er verið að gera hjer. Alt er varið með því, að halli muni verða og hann þurfi að bæta upp. Það er talað um, að landsbúskapurinn þurfi að borga sig. Þetta er vitanlega fallega sagt, en það verður að taka annað með í reikninginn, og það er þjóðarbúskapurinn. Atvinnuvegirnir verða að bera sig líka, og verður því að fara varlega í að hlaða á þá sköttum. Menn mega ekki líta á það eitt, að atvinnuvegirnir hafa getað blessast nú á stríðsárunum, þrátt fyrir alla skattana, en það er eingöngu vegna þess, að óvenjulega hátt verð hefir fengist fyrir afurðirnar. Nú getur svo farið, að verðið lækki, og það er með tilliti til verri tíma, að þetta frv. er fram komið. En ef þessir verri tímar koma, þá eiga atvinnuvegirnir engu síður en landssjóður í vök að verjast, og getur farið svo, að þeir beri sig ekki. Það er því ekki hyggin fjármálastjórn, sem eingöngu lítur á landssjóð, en ekki á hag þjóðarinnar í heild sinni. Nú liggur hlutfallslega meira á atvinnuvegunum en fyrir stríð, og þó þeir hafi borið það til þessa, þá er ekki víst, að þeir beri það framvegis. Þessu vildi jeg skjóta til væntanlegrar stjórnar og þeirrar skattanefndar, sem nú sest á rökstóla, og jeg vona, að hún taki tillit til þess í skattafrv. sínu.
Öll skattalöggjöfin, sem vjer nú búum undir er bráðabirgðaráðstöfun; flestöll skattalögin taka það sjálf fram, að þeim sje tjaldað til einnar nætur. Jeg held, að óþarfi sje, að bæta við. Jeg held, að óhætt sje að bíða og jafna upp þann halla, sem verða kann, með betri skattalöggjöf, og jeg vona, að ekki líði langur tími þangað til þingið getur gert hana úr garði þannig, að hún sje ætluð meira en til bráðabirgða.