24.02.1920
Neðri deild: 11. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 261 í B-deild Alþingistíðinda. (373)

14. mál, stimpilgjald

Gunnar Sigurðsson:

Háttv. frsm. (M. G.) og fjármálaráðh. (S. E.) hafa lagt mikið upp úr því, að þetta væri að eins bráðabirgðatilraun, til þess að sjá, hvernig frv. reyndist. En það hefði heldur átt að gera þessa tilraun á öðrum vörutegundum en nauðsynjavörum, ef menn telja hana svo nauðsynlega. Eða myndu þeir þá ekki sætta sig við, að þessi tilraun væri að eins gerð á óþarfavarningi; jeg býst við að það næði fram að ganga.

Jeg ætla ekki að eyða löngum tíma til að bera af mjer hnútur og hártoganir hv. frsm. (M. G.) út af fyrri ræðu minni, tel slíkt stafa af gremju og vandræðum sökum þeirrar andspyrnu, sem frv. mætir. Það gladdi mig, að hann var mjer sammála um, að frv. væri bót á gamalt fat, sem þingið er búið að telja svo slitið, að óbætandi sje með því að setja nefnd manna til að gera tillögur um nýja skattalöggjöf. Og eins og áður er komið fram í umræðum, þá er engin brýn nauðsyn á, að frv. þetta gangi fram nú á þessu þingi, fjárhagsins vegna.

Það kom sýnilega illa við hv. frsm. (M. G.), að jeg taldi, að skattalöggjöf vor mundi vera einhver sú vitlausasta og grautarlegasta, sem til væri á hnettinum, og var það eðlilegt, þar sem hann er með þessu frv. að auka þar við drjúgum skerf. (M.G.: Þekkir þm. tollalöggjöf allra landa). Að vísu geri jeg það ekki, og mun þar vera svipað um okkur báða, en jeg hefi það meira ímyndunarafl en hv. frsm. (M. G.), að jeg get ekki hugsað mjer, að svo geti verið.

Hv. frsm. (M. G.) spurði, hvernig ætti að leggja skatt á gróða, ef um engan gróða væri að ræða. Heldur má þetta heita barnaleg spurning af væntanlegum fjármálaráðherra. Hvernig hugsar hann sjer að halda áfram þjóðarbúskapnum, ef enginn græðir, allir tapa. Vonandi kemur það ekki fyrir í hans ráðherratíð, en beinasta leiðin til þess, að gróði verði enginn, er að þrautskatta þær vörutegundir, sem notaðar eru til og við framleiðslu. Það venur menn líka best af þeim ósóma, að vera að brjótast í því að framleiða nokkuð.

Hæstv. fjármálaráðh. (S. E.) varaði deildina við því, að leggjast á móti tekjuauka landssjóði til handa. Til þess er því að svara, að það er alt undir því komið, hvernig sá tekjuauki er fenginn. Sje hann t. d. fenginn eins og fyrri hluti frv. þessa fer fram á, þá tel jeg tvímælalaust rjett að leggjast á móti því.