24.02.1920
Neðri deild: 11. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 266 í B-deild Alþingistíðinda. (377)
14. mál, stimpilgjald
Hákon Kristófersson:
Þó að umr. sjeu nú orðnar nokkuð langar, þykir mjer þó hlýða að gera grein fyrir atkvæði mínu.
Eins og sjá má af nál., og háttv. form. nefndarinnar mun í framsöguræðu sinni hafa tekið fram, þá hefi jeg ekki ritað nafn mitt undir það, af því að jeg gat ekki forfalla vegna verið á fundi þeim, er nefndin lagði seinustu hönd á málið. Jeg hafði þó þegar í upphafi lýst yfir á fundum nefndarinnar, að jeg væri frv. mótfallinn, af mörgum ástæðum. En hins vegar skal jeg taka það fram, að jeg virði viðleitni stjórnarinnar í að sjá þjóðarbúskapnum borgið. Og þó að jeg hafi lýst yfir því, að jeg sje frv. mótfallinn, þá má ekki skilja það sem vantraust á stjórninni. Þetta vil jeg taka fram, af því að jeg hefi heyrt, að þannig væri af ýmsum litið á, að þeir, sem væru á móti frv. þessu, lýstu með því vantrausti á fyrverandi stjórn. Það, sem hefir fyrir mjer vakað, er að jeg kann ekki við leiðina, sem farin er, og því hefði jeg fremur átt samleið með hv. þm. Borgf. (P. O.). En mjer óar við að hækka gjald á brýnustu lífsnauðsynjum, þegar jeg gæti þess, hversu síðasta þing hækkaði það mikið. Hv. frsm. (M. G.) sagði nú að vísu, að hækkun þessi næmi ekki miklu, t. d. að eins 1 eyri á sykurpundinu. Það er nú altaf svo í hvert skifti, sem lagt er á vöruna, að því er haldið fram, að þessi eða þessi viðbót muni ekki miklu. En þeir heiðursmenn, sem segja t. d., að ekki muni um 1 eyri á sykurpundið eða eina kr. á kolatonnið, gleyma því alveg, að 1 eyririnn verður að 5–10 aurum og 1 krónan að 5–6 kr. þegar kaupmaðurinn leggur tollinn á vöruna. En safnast þegar saman kemur. Jeg fæ ekki betur sjeð en að það skapi órjettlæti að leggja þennan toll á kol og salt. Það kemur harðast niður á þeim, sem sækja sjóinn og i kaupstöðum búa. Þó að jeg líti svo á, að verðtollurinn sje eðlilegastur, þá er þess þó að gæta, að hann kemur hart niður á ýmsum nauðsynlegum vörutegundum, sem eru í háu verði. Því hærra verði sem t. d. kol og salt eru í, því hærri verður tollurinn. Þetta er mjög órjettlátt. Því verðtollur í dýrtíð, sem fer eftir því stígandi, sem varan er í hærra verði, gerir almenningi dýrtíðina enn þá erfiðari. Hitt væri sanni nær, að eftir því sem útlenda varan er ódýrari, eftir því væri tollurinn hærri. Annars get jeg tekið undir það, að ef brýn nauðsyn hefir verið fyrir tekjuauka, er rjettlætt geti framlagningu frv. þessa, þá held jeg að brotaminst hefði verið hækkun á vörutollinum.
Háttv. þm. Stranda. (M. P.) benti á, að fjárhagurinn væri miklu betri en við mætti búast. Þó að þetta muni nú orka nokkuð tvímælis, vil jeg þó vænta þess, að ræða þessa hv. þm. (M. P.) hafi ekki verið neitt öfgakend. En að gefnu tilefni vil jeg taka það fram í sambandi við 500 þús. kr. tekjuaukann, er hv. þm. Stranda. (M. P.) benti á af hinu hækkaða símagjaldi, að þeim tekjuauka verði varið til nýrra símalagninga, en ekki til annara þarfa ríkissjóðs. Það má líka óhætt fullyrða, að þjóð vor hafi búist við, að svo yrði, og því ekki látið almennari óánægju uppi yfir símagjaldshækkuninni en orðið hefir. Jeg vil því undirstrika það, að hækkunin verði til þess eins, að fjölga símalínum og stuðla að því, að þau hjeruð, sem nú eru — þeim til ómetanlegs tjóns — án símasambands, fái það, heldur en að láta þær tekjur ganga til annara landsins þarfa, því að vitanlega er þetta gjald hreint og beint lagt á viðskifti manna, og því eðlilegast, að það verði til að greiða fyrir viðskiftum.
Skal jeg svo að endingu geta þess, að eftir því, sem jeg hefi litið á, þá felli jeg mig við brtt. hv. þm. Stranda. (M. P.) á þgskj. 82, og nái hún fram að ganga, sje jeg ekkert á móti því, að frv., eins og það verður þá breytt, komist í lög, en eins og það liggur fyrir nú, sje jeg mjer ekki fært að styðja það.