24.02.1920
Neðri deild: 11. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 271 í B-deild Alþingistíðinda. (382)
14. mál, stimpilgjald
Jakob Möller:
Jeg vil að eins taka það fram, að mjer finst þetta frv., eins og það er fram borið, og í sambandi við annað frv., um innflutningsbann á óþörfum vörum, alls ekki eiga þau gyllandi orð skilið, sem hv. 2. þm. Húnv. (Þór. J.) fór um það. Mín aðstaða til frv. er alveg óbreytt, þrátt fyrir særingar hv. þm. (Þór. J.), og jeg verð að greiða atkv. á móti því, fyrst og fremst af því, að jeg vil sjá út úr því tollamoldviðri, sem þingið hefir látið skella yfir þjóðina á síðustu árum, áður en jeg get greitt atkv. með nýjum tollum.