10.02.1920
Sameinað þing: 1. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 38 í B-deild Alþingistíðinda. (42)
Rannsókn kjörbréfa
Benedikt Sveinsson:
Meiri hluti deildarinnar hefir orðið ásáttur um að taka til greina kæruna um kosninguna í Reykjavík og tekið gildar þær ástæður, sem þó ekki sýnast mikilvægar, til þess að ónýta þá kosningu að hálfu leyti. Hann vill svifta kjördæmið öðrum þingmanni sínum fyrir smáyfirsjónir kjörstjórnar, sem ekki verður þó sýnt með rökum, að haft hafi nokkur áhrif á úrslit kosningarinnar.
Búast hefði því mátt við, að önnur mikil yfirsjón, sem í rauninni er svo miklu alvarlegra eðlis, hefði þá einnig verið tekin til greina, og það er kæran um kosninguna á Ísafirði.
Kjördeildin hefir að vísu lagt það til að láta rannsókn fara fram út af þessari kæru, en þó ráðið þinginu jafnframt til að samþykkja kosninguna, áður en rannsókn þessari væri lokið. Í þessu kemur fram mikið ósamræmi, ef ónýta skal kosningu í Reykjavík fyrir lítils háttar ógætni kjörstjórnar, en taka gilda kosningu, sem þungar kærur liggja fyrir um og kjördeildin verður að viðurkenna að taka beri til rannsóknar. Samkvæmt kærunni má fullkomlega ætla, að misfellurnar á Ísafirði hafi ráðið úrslitum þar. (P. J.: Við höfum engar fregnir um það). Nei, en þótt hv. þm. S.-Þ. (P. J.) sje fjölvitur, þá hefir hann þó ekki sjeð alt, sem gerðist á Ísafirði 15. nóv. 1919, og þetta er einmitt það, sem þarf að rannsaka. En hjer skal ekki meira út í það farið, hver áhrif þetta hafi haft á kosninguna, nje frekari dómur á það lagður. En að brögð hafi verið að, má sjá af því, að alkunnur sæmdarmaður kemur með svo ákveðna kæru og staðfestir með ritgerðum í blaði sínu. Það virðist og eindregið benda til þess, að almenningsálitið á Ísafirði hafi breyst til fylgis við hann og hans málstað frá því er þingkosningar fóru fram og til bæjarstjórnarkosninganna um nýárið. Þau straumhvörf, sem urðu á þessum tíma, eru lítt skiljanleg, ef almenningsálitið hefði talið kærurnar gripnar úr lausu lofti, því að þá hefðu þær átt að gera almenninginn fráhverfan kærandanum, en ekki afla honum fylgis.
Jeg er samþykkur kjördeildinni um það, að rannsókn skuli fara fram, en hinu er jeg ósamdóma, að samþykkja kosninguna órannsakaða, ekki síst þegar þessa ósamræmis kennir, að hart er tekið á minni ágöllum, sem kjósendur eiga enga sök á, heldur þeim einum að kenna, sem með kæruna hafa komið, eins og er um kæruna reykvíksku, sem kemur einmitt frá kjörstjórnarmönnunum sjálfum, sem frömdu yfirsjónirnar.
Jeg enda mál mitt með því, að gera það að till. minni, að úrskurði um kosningu þm. Ísaf. verði frestað í samræmi við 5. gr. þingskapanna. Mönnum dylst víst ekki, að hjer þarf frekari skýrslna við, og er eflaust hægt að afla þeirra. Jeg hefi heyrt það af kæranda sjálfum, að hann hafi á reiðum höndum frekari upplýsingar en þær, sem fram eru komnar.